Thursday, December 8, 2011

Tommy Emmanuel í Háskólabíói 9. janúar 2012

Enginn gítargeggjari ætti að láta tónleika Ástralska snillingsins Tommy Emmanuel fram hjá sér fara. Þegar þetta er skrifað ( 9. 12. 2011) er ennþá hægt að fá miða í tónleikana sem verða í Háskólabíói þann 9. janúar 2012. Það er með góðri samvisku hægt að lofa ógleymanlegum tónleikum. Miðarnir eru seldir á midi.is.

Hér fylgja þrjú myndbönd - í því fyrsta fer Tommy á kostum í frásagnargleði og leikur síðan óskadraum allra gítarnemenda:  Guitar Boogie Shuffle  - því næst leikur hann syrpu af Bítlalögum eins og honum einum er lagið - og svo má sjá stemmingun á tónleikum hans.

Sjáumst í Háskálabíói !!!






No comments:

Post a Comment

Gaman væri að heyra frá þér. Skrifaðu ummæli hér.