Monday, March 28, 2011

Hönnunarmars - Félag vöru- og iðnhönnuða í Vöruhúsinu á Laugavegi




Sköpunargleði, bjartir litir og dugnaður - engin spurning


Í björtu húsnæði Vöruhússins  við Laugaveg setti Félag vöru- og iðnhönnuða upp sýningu 28 aðila. Sýningarnar á Laugavegi og á Grandagarði voru andstæður - önnur hvít  og hin svört. Það var kraftur og gleði í loftinu eins og búast má við, sýnendur spurðir spjörunum úr og mikið spjallað. Bestu sýningarnar eru þar sem gestir finna að þeir eru þátttakendur en ekki áhorfendur, það tókst hér. 

Það var líflegt í Vöruhúsi

Sýningin var fjölbreytt, flest tengt heimili og híbýlum á einhvern hátt, enda allt nytjahlutir. Myndirnar tala sínu máli, þær eru í skissuformi og ætlað að fanga stemminguna og nokkra hluti. Ekki náðist mynd af öllu aðallega vegna þess að einhver var skoða hlutina og það er auðvitað það allra besta! Það er sjálfsagt að setja inn (eða fjarlægja) myndir ef einhver óskar þess, sendið þær bara á netfang síðunnar. Krækjur í vefsíður eru tengdar við nöfn hönnuða og framleiðenda sem gefa upp vefföng á kynningarblaði sem var óviðunandi - a5 blað með örletri engum boðlegt nema með fylgi stækkunargler, en það væri reyndar flott.   


 Bookmark, Kristrún Hjartar
 Geyma smáhirslur,
Anna Þórunn Hauksdóttir
Skurðarbretti, Hrafnkell Birgisson og Fanney Long
Borð og bekkur úr Dokaborðum, Róbert Gíslason og Helgi Reyr Gíslason
Dvalinn kollur,  Ásdís Jörundsdóttir
Angelica borð og bakki, FærID
 Sawhorse, 
Kristrún Hjartar 
Svarti sauðurinn fatahengi, Ragnheiður Tryggvadóttir
TwoTable borð, Berglindi Snorra og Jón Snorri Sigurðsson
Rocking Records, 
Berglindi Snorra og Jón Snorri Sigurðsson
ShowIT hub og ShowIT Bubble, FærID
Peysuleysi fjölnota fík, Björg í bú
Sculptural light, Berglindi Snorra og Jón Snorri Sigurðsson
Vegglampi, Kristrún Hjartar 



Upplýsingar um alla þátttakendur og hlekkir á vefsíður þeirra eru hér.
Þáttakendur í sýningu Félags vöru- og iðnhönnuða.
á 
Hönnunarmars 2011
(netföng eru rituð "hjá" til að sporna við ruslapósti - vinsamlega látið vita um breytingar svo hægt sé að uppfæra listan)








Sverrir Ásgeirsson
Hleðsluskápur
Lítill vegghengdur skápur sem inniheldur fjöltengi og nýtist til hleðslu síma og annarra smátækja. Hleðslutæki og meðfylgjandi snúruflækja eru í felum inni í skápnum.

Tinna Gunnarsdóttir
Syllur
Smáhillur á vegg sem sprottnar eru upp úr verkefni nemenda við Myndlistaskólann í Reykjavík. Nánar á www.dyndilyndi.is.

Anna Þórunn Hauksdóttir
Ljósið
Styrkur byggir á fjórum einkennum góðs dansara: Hreyfingu, styrk, mýkt og útgeislun. Geyma Smáhirslur unnar út frá plastperlum. Þær gera hluti sýnilegri og minna á leik og gleði.

Hrafnkell Birgisson og Fanney Long
Skurðarbretti
Skurðarbrettin eru framleidd á Íslandi af fyrirtækinu Fást ehf. sem sérhæfir sig í plastvinnslu fyrir matvælaiðnað, sér í lagi fiskvinnslu.

Ragnheiður Tryggvadóttir
Svarti sauðurinn breytir um lit
Svarti sauðurinn er vegghengt fatahengi úr stáli, framleitt á Íslandi. Á sýningunni bætir sauðurinn við sig búk. 

Kristrún Hjartar / Vakna Design
Hversdagsleikinn
Hversdagsleikinn er brot af vörulínu Vakna Design sem leggur áherslu á nytsemi, einfaldleika og skemmtilegheit. Vakna vekur upp hversdagsleg viðfangsefni og skapar þeim nýjan búning.

Marý
Rignandi
Rignandi ljósakróna er innblásin af kyrrðinni sem fylgir á eftir úrhelli.

Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir
Notknot
Púðinn Notknot hefur hnútinn að fyrirmynd. Með því að breyta stærð og áferð hnútsins öðlast hann nýjan tilgang og gildi. Hinn harði og fasti hnútur verður mjúkur og notalegur.

Ragnheiður I. Margeirsdóttir RIM
Gersemar
Skartgripalína innblásin af þjóðminjum. Væntanleg á þessu ári í verslanir Leonard. Bleika slaufan 2010 hönnuð af RIM fyrir Krabbameinsfélagið verður einnig til sýnis.

Helga R. Mogensen
Árstíðirnar
Ýmis efniviður er nýttur til að túlka árstíðirnar fjórar í formi hálsmena sem hvert um sig hefur sitt sérkenni; liti og tákn. Lengd Árstíðanna er 162 sm, en uppröðun efnis er breytileg eftir árstíð.

Róshildur Jónsdóttir / Snæbjörn Þór Stefánsson
Hugdetta
Róshildur Jónsdóttir og Snæbjörn Stefánsson hafa unnið að nýjum hlutum á þessu ári. Hér sýna þau meðal annars ljós og húsgögn.

Árni Grétarsson / Darri Úlfsson
Hlutlægt
Rasti er lína af stemmningsljósum þar sem notast er meðal annars við íslenskan við. Fjall 914 er sófi úr vistvænu íslensku hráefni, meðal annars úr íslenskum við.

Róbert Gíslason / Helgi Reyr Gíslason
Gálgi
Borðlampi sprottinn upp úr samfélagi sem heimtar refsingu eftir hrun. Fyrirmyndin er hengingargálgar sem notast var við fyrr á tímum. Hönnunin blandar klassískum stíl saman við nútímaleg form.

Guðrún Edda Einarsdóttir
Íslensk arfleifð
Lokaverkefni í skóhönnun frá London College of Fashion, Cordwainers. Skórnir sækja innblástur í íslenska sögu og menningu, meðal annars sauðskinnsskóna og íslenska faldbúninginn.

Chuck Mack Design
Fákar
Fákar er lína borða og skrifborða úr gegnheilum harðvið og gleri þar sem stuðningsbitar gegna lykilhlutverki. Bekkur Dagrúnar er úr samlímdum krossviði með stálundirstöðum.

Kristín Birna Bjarnadóttir / Friðgerður Guðmundsdóttir - Gerist
Minjagripur Reykjavíkur
Hönnunarteymið Gerist sýnir Reykjavíkurhandklæðið í nýjum litatónum sem og Reykjavíkursápuna. Þessar vörur hlutu fyrstu verðlaun í samkeppni um minjagrip Reykjavíkurborgar. Nánar á www.gerist.is.

Stefán Pétur Sólveigarson / ýmsir listamenn
Ræðubindi
Stefán Pétur Sólveigarson sýnir Ræðubindi, lausn fyrir fólk sem halda þarf ræðu. Ræðubindið verður einnig til sýnis á hönnunarstofu hans, Boxinu Laugavegi 168.

Helga Egilsson
Minnisblokkir
Sérhannaðar minnisblokkir.

Prologus
Prologus heimilið
Prologus hönnunarhús kynnir ný húsgögn fyrir heimilið eftir Guðmund Einarsson.

Björg í bú
Peysuleysi
Fjölnota flík úr 100% íslenskri ull framleidd á Íslandi. Hægt er að nota hana á ótal vegu því að margar flíkur leynast í einu Peysuleysi: Vesti, bóleró, peysa, sjal, ermar, kragi, trefill, hetta og buxur. Peysuleysið fæst í sex mismunandi litum.

Project Reykjavík eftir Berglindi Snorra og Jón Snorra Sigurðsson
Project Reykjavík
Nýjung í milliveggjum, skálar, vegglampar og loftljós. Berglind Snorra sýnir plötustandana Rocking Records í nýrri útfærslu og takmörkuðu upplagi, sem og nýja kertastjaka.

Páll Einarsson og tónlistarmaðurinn Mugison
Mirstrument
Nýtt hljóðfæri sem Páll og Mugison hafa hannað í sameiningu.

Syrusson Hönnunarhús / Reynir Sýrusson
Hangover
Reynir Sýrusson húsgagnahönnuður frumsýnir tvo nýja stóla og Hangover vínrekkann sem hangir á vegg. Einnig teflir hann fram nokkrum sérvöldum hlutum sérstaklega útfærðum fyrir sýninguna.

FærID
Sýnir húsgögn og fylgihluti fyrir heimilið. 

Össur hf
Hönnun og þróun stoð- og stuðningstækja
Kynntar verða nýjar vörur á sviði stoð- og stuðningstækja frá Össuri hf. Vörur Össurar hf. hafa vakið athygli víða um heim fyrir framúrskarandi hönnun og hlotið alþjóðleg hönnunarverðlaun.

María Kristín Jónsdóttir
CUT
kynnir skartgripalínuna CUT sem hlaut fyrstu verðlaun í skartgripasamkeppni Hendrikku Waage 2010.

Ásdís Jörundsdóttir
Dvalinn
Í kollinum Dvalnn eru tveir hlutir sameinaðir: kollur og blaðarekki. Líkt og nafni hans úr Snorra-Eddu, tekur Dvalinn lítið pláss, er léttur og meðfærilegur en mjög sterkur og traustur. Dvalinn er smíðaður hérlendis, að öllu leyti úr endurvinnanlegum bylgjupappa.

Sruli Recht
Sýnir nýjan vinilplötustand

No comments:

Post a Comment

Gaman væri að heyra frá þér. Skrifaðu ummæli hér.