|
• Klútur í stíl • |
Ég þori ekki að sverja fyrir það, en það er mjög líklegt að liturinn á bílnum, klúturinn og áklæði stólana séu eftir sama hönnuðinn. Hann heitir
Cristian Zuzunaga, er frá Barcelona og stundaði nám í London. Hann vinnur efnin sín með því að taka nærmyndir af hlutum bygginga og vinna svo með myndirnar í mikilli stækkun þannig að hver pixill er greinilegur. Þannig verður til mynstur sem hann segir þó aðeins vera hluta af mikið stærri heild sem sé byggingin öll.
Það getur varla verið neitt flottara en að þeysa um á Mini með blakandi klút í stíl við stólana heima. Best væri að hafa pláss fyrir bílinn í stofunni.
• Mini í stíl •
• Stólar í stíl •
No comments:
Post a Comment
Gaman væri að heyra frá þér. Skrifaðu ummæli hér.