Monday, March 14, 2011

Sýnum Japan samstöðu


Það þarf ekki að fara mörgum orðum um þær hörmulegu náttúruhamfarir sem gengið hafa yfir jörðina okkar undanfarin ár - og nú Japan. Við erum svo ógnarsmá gagnvart þessu mikla afli sem enginn okkar ræður við. En við eigum hvort annað - og saman getum við létt til með þeim sem þjást - Rauði Krossinn tekur við fjárframlögum - við getum boðið fram vinnu - við getum beðið það almætti, sem hvert okkar trúir á, um styrk. Allt hjálpar.

  • Með því að hringja í síma Rauða krossins  904 1500 leggur þú fram 1500 krónur. 
  • Með því að fara á vef Rauða krossins "Sýnum Japan samstöðu" er hægt að leggja inn á reikning með kreditkorti..
  • Með því að nota heimabanka er hægt að leggja inn á reikning Rauða krossins: banki 0342, hb. 26, reikn. 12, kt. 530269-2649.


Hlekkur á vef Rauða krossins

No comments:

Post a Comment

Gaman væri að heyra frá þér. Skrifaðu ummæli hér.