Monday, August 1, 2011

Bók fyrir Bók Bókanna


"BókaBók" fyrir uppáhalds bókina okkar.
"PhoneBook" ?


Hvar á maður að geyma uppáhalds (Power )bókina sína annarstaðar en í bók? Helst í leðurbandi með einhverju heimspekilegu intelektúal nafni á kilinum. Og bókin á fyrir alla muni að vera snjáð og bera þess merki að sá sem hana ber sé gamaldags lestrarhestur - ekki iPaddari.


Framleiðendur "BookBook" telja henni margt til ágætis. Hún er búin öllum þeim kostum sem (Power)bókin okkar á skilið. Fer mjúkum höndum um hana og er næstum því vatnsheld. Hver og ein BókaBók er handunnin og einstök. Mikilvægasti kosturinn mun þó vera þessi: það má áhyggjulaust skilja hana eftir hvar sem er - það hefur engin áhuga á venjulegum bókum lengur. Henni verður því ekki stolið!


Auðvitað fást BókaBækur fyrir hina "i" hlutina líka.



No comments:

Post a Comment

Gaman væri að heyra frá þér. Skrifaðu ummæli hér.