Wednesday, February 1, 2012

Einn stóll - tvö nöfn.

Stóllinn Gingko er getur brugðið sér í allra kvikinda líki!

Stóllinn Gingko fékk umfjöllun hér á síðunni, þar var m.a. haft eftir hönnuðunum að formið væri innblásið af laufblöðum plöntunnar sem stóllinn er nefndur eftir.
Nú hefur stóllinn verið kynntur í Evrópu en þá bregður svo við að hann hefur fengið nýtt nafn - nú heitir hann Shrimp -sem er allt önnur Ella og á ekkert sameiginlegt með laufblaði Gingko plöntunar.  Það er reyndar athyglisvert að  þegar á það er bent er samlíking við Rækju - krabbi hefði verið enn betra - nokkuð trúverðug. Svo er bara að sjá hvaða nafn hann fær næst.



No comments:

Post a Comment

Gaman væri að heyra frá þér. Skrifaðu ummæli hér.