Tuesday, January 18, 2011

Bare Knuckle Pickups • Betri vefsíða


Bare Knuckle Pickups sem áður hefur verið skrifað um  hafa nú uppfært vefsíðunna sína. Það er vel, því gamla síðan var orðin lúin. Nýja síðan er einföld en greinagóð, þar eru allar upplýsingar sem þörf er á og ekkert skrum.  Hljóðdæmin á svona síðum eru oft gerð á sitt hvorn magnarann, gítarinn og spilarann að spila sitt hvort lagið. Bare Knuckle hefur bætt úr þessu og það er a.m.k. eitt hljóðdæmi fyrir hverja gerð tekin með sama hljómagangi og sama magnara. Loksins er hægt að leggjast í algjörar pælingar, það er frábært að setja á sig heyrnartólin og hlusta á misjafnar gerðir við sömu aðstæður. Held ég hafi aldrei áður gert mér grein fyrir muninum. Síðast tók það mig næstum tvö ár að ákveða mig, núna gæti ég gert það á nokkrum dögum!

 Bare Knuckle Pickups •
• Bare Knuckle Pickups • Facebook 

No comments:

Post a Comment

Gaman væri að heyra frá þér. Skrifaðu ummæli hér.