Monday, January 10, 2011

Klukka fyrir arkitekt

Daniel Weil fékk það verkefni að hanna gjöf fyrir arkitekt. Hann skapaði þetta meistaraverk sem er í senn einfalt og slungið. Daniel hófst handa við að einfalda gangverkið þar til aðeins stóðu eftir nauðsynlegir hlutir. Klukkan er gerð úr krómhúðuðum kopar og undirstöðu úr aski. Skífan er u.þ.b. 24sm að þvermáli. Ein rafhlaða (guli hluturinn) knýr gangverkið, allar leiðslur eru sýnilegar. Gangverk sem ekki er sýnilegt á svo heima í húsinu á bak við vísana. Með tilliti til þess sem klukkuna á að fá í afmælisgjöf er það  afar viðeigandi.  [(Pentagram, London) ]

Klukka fyrir arkitekt • Samsett úr fimm einingum og gangverkið sýnilegt •
Sýnileg rafhlaða og tenging                       Klukkuhús fyrir arkitekt                          Falleg alltumkring      

Tíminn líður                                            Reimdrif                                               Bakdyramegin

Eitt að lokum, ég á bráðum afmæli. Datt bara í hug að minnast á það ef.......

No comments:

Post a Comment

Gaman væri að heyra frá þér. Skrifaðu ummæli hér.