Friday, February 4, 2011

Kosninga-lof-borð

• Mjúkar 50's línur, hnota, ull og kanína - upplagt fyrir næsta umgang kosninga • Flottur spegill •

Þetta borð, sem mér finnst vera svolítið eins og hreiður, hefði aldeilis verið til sóma í nýafstöðnum kosningum Íslendinga. Mjúkar svolítið 50's línur, hnotu viður og ávöl ullarhlíf hefðu gert kjörstaðinn glæsilegan, pappaskilrúm eru ekki í tísku lengur og  þar að auki alveg kolólögleg. Þessi "hreiðurborð" eru upplögð í næstu umferð - þau heita meira að segja "rewrite" sem er akkúrat það sem til stendur: að "endurskrifa" kjörseðilinn.  Kannske er þetta bara enn eitt "kosninga-lof-borðið".

Hannað af Gamfratesi fyrir Ligne Roset. Spegillinn er líka flottur - og kanínan.

No comments:

Post a Comment

Gaman væri að heyra frá þér. Skrifaðu ummæli hér.