Monday, January 17, 2011

Heimur barnsins - stóll eða leikfang?

Leikföng sem geta verið húsgögn.
• 75 - 230 dollara leikföng frá Magis •






Eames Fíll
Börn nota flesta hluti öðruvísi en fullorðnir. Stólar gegna t.d. fleiri hlutverkum en að sitja á þeim, stólar á hvolfi, stólar sem búðarborð eða skip, möguleikarnir eru óteljandi. Hvað er stóll sem er búðarborð, er hann stóll, búðarborð eða hvort tveggja? Getur verið að hann sé "leikfang" sem fer bara í það hlutverk sem leikandinn finnur í hvert skipti?
Önnur gerð húsmuna fyrir börn er smækkuð útgáfa frægra hluta. Þessir hlutir ganga út frá því að heimur barnsins, sé smækkuð mynd af heimi fullorðinna. Getur verið að hamingja barns felist í litlum Barcelona stól, eftir Mies van der Rohe fyrir 5.655 dollara? Er hann gott búðarborð?

Myndasyrpurnar sýna; leikföng sem geta verið sæti og stóla sem geta verið....stólar? Leikföngin á efri myndinni kosta 75 - 230 dollara,  stólarnir á neðri myndinni 554 - 5.655 dollara. Svo er bara að ákveða af hvoru barnið hefur meira gaman og , ekki gleyma þessu, hvort er meira þroskandi. Hvað mig varðar, er valið auðvelt!




Húsgögn sem geta verið .....
• 554 - 5.655 dollara húsgögn frá Knoll, Kartell og Vitra •
Það er sanngjarnt að bæta við þessu;  það skiptir auðvitað máli hvernig hlutirnir eru þegar þeir eru ekki í notkun. Ákjósanlegt er að þeir séu augnayndi og geti bara staðið þar sem þeir voru skildir eftir þar til þeir bregða sér í nýtt hlutverk. Hér eru þannig hlutir Falleg leikföng frá Sirch
Þá er einnig rétt að taka fram að verðin eru gefin í dollurum vegna ástands krónunnar. Úr því verður bætt um leið og henni er batnað.

2 comments:

  1. Úff... ég kaupi ekki þennan smækkaða fullorðinsheim fyrir börn, hvorki þegar kemur að húsgögnum né fatnaði. Krakki í Burberry og Barcelona stól? Fílaðaekki!

    ReplyDelete

Gaman væri að heyra frá þér. Skrifaðu ummæli hér.