Monday, February 28, 2011

Apollo húsgögn eftir Gunnar Magnússon


Apollo húsgögn Gunnars Magnússonar og maður á tunglið sama ár.

Bandaríska tunglfarið Appolo 11 lenti á tunglinu 20. júlí 1969, sama ár og Gunnar Magnússon, húsgagnaarkitekt, hannaði Apollo stólinn ásamt kolli og borði. Þetta var því merkisár. Eins og öll hönnun Gunnars er stóllinn elegant en jafnframt einfaldur. Efnislistin fyrir þennan stól er ekki langur; þrjár bognar limviðarplötur, hringlaga seta, sex (sýnilegar) skrúfur og tveir bólstraðir púðar. Úr þessu verður til flott húsgagn sem fer vel í rými, er hæfilega massívt en síbreytilegt eftir því hvar á það er litið, stundum opið, stundum lokað og svo er hnappur í miðri setunni eins og þar hafi verið stungið niður hringfara.


Sýningin "Gunnar Magnússon '61-´78" í  Hönnunarsafninu opnar 11.febrúar og stendur til 28. maí 2011.
.

Spegill, spegill herm þú mér…

Speglar - hart glerið virðist vera mjúkt  - eins og leikjáld
Kunningi minn sagði eitt sinn, "Ég hlakka alltaf til að horfa í spegilinn á morgnana, því ég verð fallegri með hverjum deginum sem líður." Gott viðhorf.
Gler er hart, sterkt og kalt, en Ron Gilad tekst að móta það eins og það sé mjúkt og fljótandi. Blaðra eða fígúra lyftir neðri hlutanum upp eins hann sé úr fisléttu efni eða leiktjald. Verk Gilads eru mjög athyglisverð, það þarf að gefa sér góðan tíma til að skoða vefsíðurnar hans en það er vel þess virði. Mæli með því.
Vefsíðurnar:  
'spaces etc / an excercise in utility' flott sýning frá 2009
designfenzider er sýning og vefverslun 



Smellið á myndina til að sjá fleiri stórar myndir
.

Sunday, February 27, 2011

The Voca people - Algjör snild!

The Voca people

Vinkona mín á Facebook benti á þetta stórkostlega band en ekki eru allir á Facebook (eða hvað...?) svo ég  set það hér svo allir fái að njóta. Það eru fleiri bönd á YouTube og  hér er vefsíða The Voca People


Saturday, February 26, 2011

Forsetastólll Alþingis eftir Guðjón Samúelsson


Forsetastóll Alþingis eftir Guðjón Samúelsson og Ríkharð Jónsson.

Guðjón Samúelsson (1887-1950), húsameistari, teiknaði þennan stól fyrir Alþingi 1925-1930. Stílbrigði stólsins er væntanlega innblásið frá mið-Evrópu. Stóllinn, sem er úr eik og bólstraður með leðri,  er listilega útskorinn af Ríkharði Jónssyni myndhöggvara.  Ég hef heyrt þennan stól nefndan "Ráðherrastóll" en tel að hið rétta sé "Forsetastóll" eins og fram kemur í sögu Alþingishússins á vef Alþingis.
.

Fatahengi hvar sem er

20 herðatré, svart nylon band, og krókur í vegg eða lofti= fatahengi.

Þegar ég spyr "hvers vegna datt mér þetta ekki á hug fyrir löngu síðan?" veit ég að ég er að horfa á eitthvað  bráðsnjallt. Það þarf nefnilega snilli til að sjá einföldustu lausnirnar og þær eru alltaf bestar. Þannig er það með þessi 20 herðatré sem ég hef ekki fundið gott íslenskt nafn fyrir - bráðsnjallt.  Alice Rosignoli, iðnhönnuður, selur gripina á vefsíðu sinni.

Ekki má gleyma því að auk efnisins þarf góðan skerf af skapandi hugsun.

Via: cubeme.com

Hurðarhúnn með lúðri

Tilgangur áhaldsins er ekki alveg ljós við fyrstu sýn, en augljós að fengnum  skýringum.


Foreldrið
Einfaldar og hugvitsamlega gerðar græjur hafa alltaf heillað mig og þessi er akkúrat þannig. Hurðarhandfang með innbyggðum lúðri til að láta vita af sér er skemmtileg hugmynd og ekki spillir hve fallegt það er og notadrjúgt. Hugsa sér t.d. þegar unglingurinn er með græjurnar eða heyrnartólin á fullu blasti og heyrir hvorki bank né köll - svona lúður nær örugglega í gegn um hljóðmúrinn. Svo er hægt að nota hann í margt fleira t.d. taka hann með í gönguferðina sem öryggistæki, en þá er reyndar ekki hægt að opna hurðina á meðan - unglingurinn er læstur inni!
Hönnuðurinn,  Dieter Volkers, hefur gert fleiri skemmtilega hluti úr silicon blöðrum sem vert er að skoða.

Belgur, hljóðfjöður og lúður "Er einhver heima?".

Via: Core 77      •      Vefsíða hönuðar: Dieter Volkers

Friday, February 25, 2011

Sindrastóllinn

Sindrastóllinn frá 1957 - Trapisulaga bakið og armarnir eru sterk einkenni.

Sindri (Sindrastál) var stofnað árið 1949 af Einari Ásmundssyni. Fyrirtækið flutti inn stál, byggingavörur og verkfæri og var eitt öflugasta fyrirtæki landsins á sínu sviði. Fyrirtækið starfrækti einnig stálsmiðju og um 1957 var hafin undirbúningur að smíði stálhúsgagna. Húsgögnin voru framleidd hjá Sindrasmiðjunni að Hverfisgötu 42. Smiðjan var í bakhúsinu (þar sem síðar var kaffistofa Samhjálpar) en árið 1959 var opnuð verslun  í framhúsinu, sem Sveinn Kjarval húsgagnaarkitekt hannaði. 
Sveinn Kjarval (1919-1981) lærði húsgagnasmíði og síðan húsgagnahönnun við Kunsthandværkerskolen í Kaupmannahöfn - þaðan útskrifaðist hann 1949. Sveinn var öflugur hönnuður sem setti mark sitt á umhverfi okkar sem gætir enn í dag. Því miður hafa mörg verk hans farið forgörðum t.d. flott kaffihús - kaffi Tröð - í Austurstræti þar sem nú er Eymundsson og fyrir nokkrum árum var Naustið við Vesturgötu eyðilagt. Hann teiknaði húsgögn og innréttingar í Samvinnuskólann að Bifröst sem ég held að séu enn í ágætu ástandi m.a. sandblásin viðarklæðning sem hann var upphafsmaður að hér á landi. Stólar úr matsalnum voru í notkun í kirkjunni að Hvammi (held ég fari rétt með nafnið) í Norðurárdal fyrir nokkrum árum. Það eru því fyrst og fremst húsgögn hans sem hafa varðveist.
Af húsgögnum Sindrasmiðjunnar eru tveir stólar best þekktir: stóllinn sem hét H-1; hannaður af Sveini Kjarval 1957 og stóllinn H-5 hannaður af Ásgeiri Einarssyni verk- og verslunarstjóra. 
H-1 stóll Sveins Kjarvals var framleiddur með eða án arma. Fæturnir voru úr 16mm rörum, efri hlutinn úr  11mm stálteinum og armar úr tekki. Neðst á fótunum flottur messing tappi. Seta og bak var bólstrað með gallondúk eða áklæði. Armarnir eru sterkasta einkenni stólsins og jafnframt vandasamasti hluti smíðinnar; með fjórum beygjum og þremur suðum á hvorum armi. Stóllinn var smíðaður til ársins 1970. Mér skilst að síðari árin hafi verið notaðir plast tappar undir hann - eigendur Sinrdastóla geta þannig gert sér einhverja grein fyrir hvenær á tímabilinu stólarnir þeirra voru smíðaðir.
Þessi stóll sést á mörgum gömlum myndum t.d. í Ljósmyndasafni Reykjarvíkur;  hann var algengur í mötuneytum og fundarherbergjum jafnt sem á heimilum. Á sýningu í París og vakti hann mikla athygli enda er mjög þægilegt að sitja í honum.
Verðmæti svona gripa liggur m.a. í að þekkja sögu þeirra og tengingu hvers og eins við þá. Þeir eru frá uppgangstímabili Eames hjónanna, Arne Jacobsen o.fl. þekktra hönnuða svo tímabilið er merkilegt. Talið er að Jón Gunnar Árnason, höfundur verksins "Sólfar" við Sæbraut, hafi annast frumsmíði H-1 Sindrastólsinns. Fleira fróðlegt mætti vafalaust telja til en látum hér við sitja. 
Hérlendis er engin raunhæfur markaður með svona gripi en hann mun vonandi þróast,. Amælisútgáfa - 50 stólar - af stólnum "H-5" er nú seld á 160.000-kr hjá Sólóhúsgögn   (það sama og hann kostaði hér áður fyrr að viðbættum verðbótum!). H-1 stóllinn verður vonandi smíðaður aftur og þá myndast eitthvað verðmat á hann. En ef hann kom t.d. frá langömmu eigandans verður hann vart metinn til fjár!

Uppfærsla mars 2013.
G.Á. húsgögn hafa nú endurvakið framleiðslu Sindrastólsins  eftir Svein Kjarval. Endurkoma hans var kynnt á sýningu íslenskra húsgagnaframleiðenda í Hörpu á Hönnunarmars 2012.

Textinn er aðallega unnin úr heimildum af hinum frábæra vef: timarit.is
Einnig: Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Og svo auðvitað „maður sem þekkir manna sem veit...“. Takk fyrir það!



Thursday, February 24, 2011

Teresa Kruszewsk - Stóllinn "Muszelka"

"Muszelka" (Hörpuskel) stóll 1956 - Hönnun/Design Teresa Kruszewska (1927-)

Þann 4, febrúar var opnaði sýningin "Pólsk hönnun 1955 - 1968", henni verða gerð betri skil hér á síðunum bráðlega. Hlutur dagsins er frá þessari sýningu, mér finnst hann svo fallegur að hann verðskuldi sérstakt pláss hér. Hönnuður stólsins er Teresa Kruszewska. Hún er fædd 1927, lauk námi 1945 og hefur síðan unnið við hönnun húsgagna og innréttinga ásamt kennslu. Teresa hefur hannað mörg húsgögn og er talin meðal fremstu hönnuða Póllands á síðari hluta 20. áratugarins.

Via: Kulture Poland

Vasar úr glösum og rörum

Vasarnir hlutu viðurkenningu Elle International 2010. 
Þessir blómavasar voru upphaflega gerðir úr glösum og rörum eins og þeim sem notuð eru á rannsóknastofum. Rörin er auðvelt að beygja með því að hita þau en glösin voru brædd saman.  Þeir sem unnið hafa í byggingaiðnaði þekkja vafalaust einfalt áhald sem notað er til hæðarmælinga - slanga er fyllt með vatni og þar sem vatnið er alltaf jafnhátt í báðum endum er hægt að taka jafna hæð við sitt hvorn enda slöngunnar. Hönnun vasans á neðri myndunum var innblásin af þessu lögmáli, rörið er beygt í lykkju og myndar tvo leggi sem opið er á milli - vatnið er því alltaf jafnhátt í báðum leggjunum  .
Hönnuðurinn Jan Padrnos er Tékkneskur , hann rekur Backbox í Třebíč, sem hannar húsgögn og innanstokksmuni

Vasin "Seven" er gerður úr sjö glösum eins og notuð eru á rannsóknastofum.
Vasin "Triu" er gerður úr glerrörum.

 Via: designeast.eu/

Tuesday, February 22, 2011

Einskonar húsgögn Raw Collection

Gert úr tré og ullar renningum,  líkist húsgagni - en getur auðveldlega verið eitthvað allt annað.
Coiling Collection, sem hér er sýnd, er gerð úr ullar ræmum og viði. Ullin er vafin utan um viðinn og síðan vætt með plastkvoðu til að festa hana saman og halda forminu. Á þennan hátt eru gerðir hlutir sem líkjast kollum, pullum og ábreiðum. Hönnuðirnir Yael Mer & Shay Alkalay,  sem standa að Raw Edges vinnustofunni í London, búa sjálf til hlutina. Þau fást við tilraunir í formsköpun sem þau segja vera einhvers staðar milli iðnhönnunar og sjónlistar. Þau hafa hlotið viðurkenningar fyrir mörg verkefni og það eru áhugaverðir hlutir á vefsíðunni þeirra. Ég bendi sérstaklega á pappírstré sem kallast "Revolving Trees".

Hönnuðirnir framleiða hlutina og segja þá flokkast einhvers staðar á milli iðnhönnunar og sjónlistar.

Strandbústaður Le Cobusier

 Le Corbusier teiknaði eitt hús fyris sjálfan sig -16 fermetra bústaðinn Le Cabanon á Frönsku Rivierunni
Hann teiknaði einnig Unité d'Habitation í Marseilles (1952) - 17 hæðir fyrir 1600 íbúa. Svolítið önnur stærðarhlutföll!

Bústaður meistarans 4 x 4 metrar
Það er merkilegt til þess að hugsa að eina byggingin sem Le Corbusier (1887-1965),afi modernismans,  hannaði algjörlega fyrir sjálfan sig hafi verið 16 fermetra strandbústaðurinn Le Cabanon. Og það er ekki einu sinni alveg rétt því bústaðurinn var gjöf til konu hans. Corbusier teiknaði hann á 45 mínútum á nýársdag 1951, hann var svo byggður 1952. Þar dvaldi hann á sumrin í 10 ár og eyddi þar sinni síðustu nóttu 27. ágúst 1965, síðar þann dag drukknaði hann í sjónum nálægt bústaðum. Bústaðurinn er einstakt dæmi um mikro-arkitektúr sem er einfaldur og vandaður, þjónar fullkomlega hlutverki sínu og er laus við allan óþarfaSumir segja að efnisvalið gangi þvert á önnur verk meistarans, sem hreifst af sjónsteypu og talaði um hús sem "maskínur til að búa í". Bústaðurinn er úr timbri, klæddur krossviði að innan. Innanstokksmunir, sem þjóna flestir meira en einu hlutverki, eru úr furu og hreinlætistæki eru sömu gerðar og í járnbrautarvögnum. Á nokkrum stöðum eru málverk eftir Corb td. á á gluggahlerum og í forstofu.
Myndirnar eru af módeli í fullri stærð,sem var á sýningu Breska arkitektafélagsins 2009. Mér þótti þær snyrtilegri, sem er auðvitað bara pjatt. Góðar myndir af bústaðnum eru hér og hér má lesa ýmislegt um Corbusier.

Bústaður eins áhrifamesta arkitekts 20. aldarinnar, einfalt, einlægt og virkar.

Monday, February 21, 2011

Óskilgetnir stólar í Kína

Sæti : steinar, stór steinhella, tágamotta, bakið er hlaðinn veggur.
Í umhverfinu eru margir hlutir sem við tökum ekki eftir  þrátt fyrir að þeir séu beint fyrir framan augu okkar. Michael Wolf  ljósmyndar þessa hluti og sýnir okkur að margt sem á vegi okkar verður er merkilegra en virðist við fyrstu sýn - ef við sjáum það. Ljósmyndirnar sem hér eru sýndar kallar hann „the bastard chairs of China", þær sýna að stóll getur verið „sæti" þó lífið hafi leikið hann grátt. Það má einnig sjá að „sæti er sæti er sæti" úr hverju sem það er gert. Mannlegi þátturinn er líka svo sýnilegur, nýtni, hógværð, hugkvæmni og nægjusemi. Á Vesturlöndum höfum við verið að fást við svona hluti, blogg og blöð eru full af hlutum sem kallast „re-make"og sumum hönnuðum hefur tekist að koma sér rækilega á blað fyrir vikið. Nú eru þessar myndir líka komnar á netið en því miður held ég að listamennirnir í Kína komi ekki til með að njóta þess eins og skyldi. 


Smellið á myndina til að sjá stærri myndir

Saturday, February 19, 2011

20 sófar og stólar eftir Karim Rashid

Offecct Orgy Sofa 2002   •  Krysalis Couch,2003 • Kloud Chair 2007   •   Zanotta Koochy Sofa 2007

Karim Rashid í hvítu og bleiku.
Karim Rashid (1960) er einn af afkastamestu hönnuðum samtímans, með yfir 3000 hluti i framleiðslu, 300 viðurkenningar og vinnustöðvar í meira 35 löndum. Karim er heimsborgari, fæddur í Kairó, alinn upp í París, London og Canada - nam iðnhönnun í Canada og á Ítalíu, þar sem hann vann um skeið m.a. með Ettore Sottsass, og hefur nú aðsetur í New York. Hann  er á þveitingi um heiminn 160 daga á ári og hefur haldið þúsundir fyrirlestra um hönnun og þá sýn sem hann hefur á veröldina. Hönnun hans er allstaðar, umbúðir, hús, innréttingar, húsgögn, tískuvörur - hann hefur fengist við þetta allt. Hann segir hönnun sína vera " ljóðrænan minimalisma" en jafnframt flokkar hann marga hluti sína sem "blobject", en það á við hluti sem hafa mjúka samfellda og stundum svolítið "útblásið" yfirbragð, oftast úr plasti t.d. Apple iMac (1998). Þessi lýsing á vel við mörg verka hans sem eru gjarnan ávöl, hafa í senn yfirbragð nytjahlutar og leikfangs í skærum neon litum. Karim Rashid og hressilegir litir fylgjast alltaf að, frá 2000 hefur hann eingöngu klæðst hvítu og bleiku, hann segist hafa orðið leiður á öllu svarta Gucci draslinu, gefið það Hjálpræðishernum og tekið upp nýjan stíl í samræmi við hönnun sína. Hér hef ég tekið saman myndir af nokkrum sóffum og stólum til að sjá örlítið af verkum hans í samhengi.

Kite Chair & Mini Kite 2004 •Kivas Couch 2010 • Kant Stool 2006 • Spline Chair 2002

Doux Collection 2010 • Kouch 2009 • Modular Seating System 2010 • Kairo Chair 2008

Careem Chair 2010  •  Contempo Karimy Couch  •  Omni 2004  •  Aphex Couch 1997

Loveseat 2006 •Rap Couch 2010 • Matrix Sofa System 2009 • High Roller Chaise 2011

Thursday, February 17, 2011

"Bölgen" báruhús í Vejle

Bölgen í Vejle mun verða eitt af kennileitum bæjarins. 





Smellið hér
til að sjá allar myndirnar




Við ströndina í Vejle á Suður-Jótlandi standa þessi hús sem heita "Bölgen", þar er væntanlega vísað í bárur hafsins. Íbúðirnar eru opnar í gegn um húsið,  elhús í miðju og stofur, með stórum svölum sitt hvorumegin, þannig að alltaf er birta og útsýni til austurs og vesturs. Sjávarmegin hússins verður smábátahöfn og strandstígur mun liggja út eftir firðinum. Að sögn arkitektana er form hússins innblásið af firðinum, hæðunum, brúnni og Vejle bæ. Þök klædd hvítum flísum og gaflar úr gleri munu á daginn speglast í sjónum en á kvöldin uppljómast og rísa upp sem marglit fjöll.  

Húsin eru hönnuð af "íslandsvinunum" á arkitektastofu Henning Larsen sem hafa m.a. hannað Hörpu og Háskólann í Reykjavík.

Wednesday, February 16, 2011

Níu stólar, 9 sögur



Það er svo merkilegt með stóla - við getum sent menn til tunglsins, en erum samt ennþá að bralla við að hanna stóla. Geimferjan Discovery hefur dugað í 25 ár, stóll sem lifir svo lengi má vera ánægður með sig, hvað þá ef hann verður eldri. Margir stólar frá bernsku modernismans bera aldur sinn vel og plast stólar frá 1950-60 eru enn í góðu gildi. Það var ekki sjálfgefið að hægt væri að framleiða suma stólana og oft liggur áhugaverð saga að baki þeim. Ég tók saman nokkrar slíkar um stólana sem hér eru sýndir. Vona að einhver hafi gaman af, stólarnir eru allavega stórmerkilegir. 

Harry Bertoia (1915-1978)
Diamond Chair 1952   •   Harry Bertoia (1915-1978)
Harry Bertoia vann með Eames og Knoll hjónunum í nokkur ár, hann var menntaður í skartgripa og málmsmíði og stafaði við það lengst af. Diamond Chair, sem Bertoia gerði fyrir Knoll, er hluti af húsgagnalínu sem hann vann  að í tvö ár. Smíðuð voru tæki til að framleiða stólinn en þau virkuðu ekki vel og  einfaldara var að handsmíða hann. Sessan sem oftast er sett í stólinn breytir þeim eiginleika sem Bertoia lagði mest upp úr - að stóllinn væri algjörlega gegnsær og nánast svífandi - eigi að síður virkar hann afar léttur.
Framleiðandinn: Knoll      •      Hönnuðurinn: Harry Bertoia

 Eero Aarnio (1932-)
 Ball Chair 1963  •   Eero Aarnio (1932-)
Aarnio hjónin vantaði stól fyrir fyrsta heimili sitt, Eero gerði nokkrar skissur og komst niður á þetta form. Til að gera sér grein fyrir hvort það virkaði festi hann teikningu í fullri stærð á vegg og "settist" í stólinn. Frúin dró svo línu umhverfis höfuð hans og þannig var innanmálið ákveðið. Sniðið í kúluna tók svo mið af því að stóllinn kæmist í gegn um venjulegt dyraop. Frumgerðina smíðaði hann sjálfur úr trefjaplasti á mót sem gert var úr krossviði og strekktum pappír, eins og vængur svifflugu. Frumgerðin er ennþá til á heimili hans.
 Bubble Chair 1968   •   Eero Aarnio (1932-)
Fimm árum síðar gerði Eero Bubble Chair úr glæru plasti sem blásið var eins og sápukúla og hékk í lausu lofti. Stólarnir eru, þrátt fyrir kúluformið, andstæður. Annar þeirra einangrar notandann frá umhverfinu en hinn gerir notandann að hluta þess. Bubble Chair er frábært dæmi um "minna er meira" hönnun.
Framleiðandinn: Adelta      •      Hönnuðurinn: Eero Aarnio

Charles (1907-1978) & Ray Eames (1912-1988)

Lounge Chair 1956   •   Charles (1907-1978) & Ray Eames (1912-1988)
Charles and Ray Eames sáu fyrir sér mjúk form en þau vantaði efni til að gera þau úr. Því leituðu aðferða til að móta stóla úr formbeygðum viði og smíðuðu til þess vél sem þau nefndu "Kazam." Þeim tókst að beygja krossvið á viðunandi hátt og smíðuðu fyrsts stólinn 1945, hann hét "Potato Chip."
Lounge Chair var um tíma smíðaður úr palesander en er nú gerður úr kirsuberjarviði. 
 DAX Chair 1948      •      Charles (1907-1978) & Ray Eames (1912-1988) 
Stóllinn DAX var hannaður fyrir samkeppni um ódýr húsgögn sem MOMA safnið í New York hélt árið 1948. Markmið samkeppninnar var að fá fram nýjar aðferðir til að framleiða ódýr húsgögn.  Eames hjónin fengu verkfræðideild Kaliforníuháskóla í lið með sér og niðurstaðan varð stóll sem settur var saman úr tveimur einingum. Í stólinn var notað stál sem var formað eins og í bifreiðaframleiðslu. Stólskelin var svo húðuð með mjúku plastefni til að hún væri ekki eins köld viðkomu. Þau gerðu tvær tillögur; La Chaise og Dax og hlutu önnur verðlaun. Stóllinn var aldrei framleiddur á þennan hátt, hann var of þungur og mótin entust illa, Herman Miller tókst svo að móta stólinn úr trefjaplasti og þannig er hann framleiddur í dag.
Stóllinn sem hannaður var fyrir samkeppni 1948 hefur eignast marga bræður.
Framleiðandinn: Herman Miller       •      Hönnuðirnir: Charles & Ray Eames


Eero Saarinen (1910-1961)
Tulip Chair 1956   •  Eero Saarinen (1910-1961)
Form stólsins getur verið hvort sem er túlípani eða vínglas. Saarinen vildi gera stól sem steyptur væri í heilu lagi - "eitt stykki, eitt efni". Saarinen hafði ákveðna hugmynd um hverju hann vildi ná fram með stólnum - hann vildi losna við "frumskóg" stólfóta og hanna stól sem gæti snúið hvernig sem er án þess að skapa óreiðu í rýminu. Út frá þessum forsendum þróaðist Túlipaninn (vínglasið) og borðið sem honum fylgir. Stóllinn var notaður í Star Trek þáttunum og segið það nokkuð um framúrstefnulegt form hans,
Womb Chair 1946   •   Eero Saarinen (1910-1961)
Womb Chair er örugglega einn af þægilegustu stólum sögunnar, enda hannaður samkvæmt kenningu Saarinen um að manninn  skorti það öryggi sem hann naut í móðurkviði, stóllinn eigi að gefa notandanum þetta öryggi með því að "halda utan um" hann. Sumir segja að aldrei hafi þörfin fyrir slíkri umhyggju verið jafn mikil og einmitt núna.
Framleiðandinn: Knoll      •      Hönnuðurinn: Eero Saarinen


Charles Eames (1907-1978) & Eero Saarinen (1910-1961)
 Organic Chair 1940   •   Charles Eames (1907-1978) & Eero Saarinen (1910-1961)
Charles Eames og Eero Saarinen voru kunningjar, saman tóku þeir þátt í samkeppni MOMA safnsins    "Organic Design in Home Furnishings" 1940. Formgjöf þeirra félaga var oft á undan sinni samtíð hvað framleiðslu varðaði og svo reyndist einnig með þennan stól. Skelin var formuð úr krossviði og ekki fanst ásættanleg aðferð til fjöldaframleiðslu fyrr en 10 árum síðar.
Framleiðandinn: Vitra


Eileen Gray (1878-1976)
Bibendum Chair 1929   •   Eileen Gray (1878-1976)
Eileen Gray (1878-1976) var falið að innrétta íbúð  fyrir konu sem rak virta hattasölu í París.  Eileen hannaði alla innanstokksmuni, teppi, lampa, húsgögn og stólinn Bibendum. Verkið tók fjögur ár. Stólinn nefndi hún Bibendum eftir fígúrunni sem einkenndi auglýsingar Michelin hjólbarða - það er auðvelt að skilja samlíkinguna. Stóllinn vakti mikla athygli, formið var í anda modernismans og efnisnotkun var nýstárleg t.d. krómuð rörin. Eileen var frábær arkitekt en hlaut ekki þá viðurkenningu sem hún átti skilið fyrr en á síðari hluta ævi sinnar, hún varð 98 ára gömul.
Framleiðandinn: Aram      •      Hönnuðurinn: Eileen Gray

Michelinmaðurinn Bibendum
Kveikja að mótun stóls