"Roll & Mix" alt sem til þarf - olía, krydd, mortel og kefli |
"Roll & Mix" áhaldið sem Marcial Ahsayane hefur hannað er stórsnjalt - og gullfallegt. Hér er allt sem þarf til að gera t.d. pizzu nema hveitið og áleggið - olía, krydd, kefli og mortel. Áhaldið er gert úr sterku plasti og sérstaklega meðhöndlað til þess að deigið festist ekki við það. Myndirnar tala sínu máli og hér er myndband sem sýnir drauminn um pizzu rætast með aðstoð áhaldsins. Namm…
"itadakimasu" diskar á vegginn |
"Itadakimasu" diskarnir eru líka fallegir og praktískir, einkanlega fyrir þá sem vilja ekki hafa alla hluti inn í skápum. Þeir staflast reyndar ágætlega en vegghengið er sérlega flott. Þeir eru gerðir úr sama efni og "Roll & Mix" áhaldið.
Marcial Ahsayane er iðnhönnuður. Hann starfrækir Ahsayane Studio í Belgíu sem hefur þróað marga fína hluti sem vert er að skoða á vefsíðu hans.
No comments:
Post a Comment
Gaman væri að heyra frá þér. Skrifaðu ummæli hér.