Showing posts with label Innréttingar. Show all posts
Showing posts with label Innréttingar. Show all posts

Thursday, June 20, 2013

Hressilegt hostel.

 Ferðamenn sækjast í gjarnan eftir ódýrri gistingu og eru margir tilbúnir til að deila svefnskála með öðrum á hosteli. Í eina tíð var úr fáu að velja í þessum efnum og látlaus farfuglaheimili helsti kosturinn, en nú hefur þeim sem bjóða gistingu af þessu tagi fjölgað og nýju hostelin keppast við að gera dvölina að eftirminnilegri upplifun með hressilegu umhverfi og líflegri þjónustu.
Myndirnar eru af nýju hosteli í Króatíu. Hér er á líflegan hátt blandað saman nútíma hönnun og húsgögnum frá 1950+ . Rýmin einskonar samkomustaður þar sem fólk getur sest niður, farið á netið eða dregið sig í hlé í lokrekkjunni sinni eftir dagsstund við Miðjarðarhafið.  
Hönnuður er Lana Vitas Gruic sem hefur aldeilis hlotið mikla kynningu því myndir af þessari hönnun hennar hafa farið eins og eldur í sinu á netinu. Þessar myndir eru frá designboom.

Húsgögn frá 1950+ í bland við nútimalegar innréttingar.
Rúmin eru í litríkum einingum sem sem mynda einskonar bása út frá veggjunum.

Í rýmunum er aðstaða til að gera flest það sem ferðalangar þarfnast.

Óneitanlega eru hvítu herbergin ekki eins hressileg - en það er þó val.



Friday, February 8, 2013

Hús í Happdrætti DAS

Happdrætti DAS var stofnað 1954 og fór fyrsti útdráttur fram í júlí það ár. Dregnar voru út 6 bifreiðar af  þeim 9 sem fluttar voru inn til landsins í það sinn, en á þessum tíma voru margskonar viðskiptahöft, boð og bönn í gildi sökum gjaldeyrisskorts.
Miðarnir voru prentaðir í fánalitunum. 
Ásgeir Ásgeirsson, þáverandi forseti landsins, tók við fyrsta miðanum sem seinna skilaði honum plötuspilara í vinning. 
Á fyrst árunum voru vinningarnir af mörgu tagi s.s. glæsibifreiðar, góðhestar, trillur, landbúnaðartæki, farmiðar til utanlandsferða og seinna komu raðhús og einbýlishús. Fyrsta DAS-húsið dregið út áðið 1956, íbúð í raðhúsi við Ásgarði í Reykjavík, þá að verðmæti 350.000 krónur.
Húsin voru sýnd almenningi og reyndust sýningarnar svo vinsælar að takmarka þurfti aðgang sumar sýningarhelgar. Þetta voru merkilegar sýningar að því leyti að húsin voru sýnd fullbúin með nýjustu húsgögnum og vönduðum innréttingum. Þarna var því kjörið tækifæri til að sjá hvað var í tísku. Á veggjum voru oftast myndverk eftir Atla Már (höfund Ópal pakkans).
Töluvert af myndum er til frá sýningunum m.a. á vef Happdrættis DAS þaðan sem flestar meðfylgjandi myndir eru fengnar. Það er áhugavert að skyggnast inn í húsin og geta í húsbúnaðinn og hönnuði hans og eru þessar myndir verðmætar heimildir um slíkt. Skrifarinn sem hér situr kann ekki skil á öllu því sem er á myndunum - gaman væri ef þeir sem þekkja til einhvers sendu okkur línu svo bæta megi upplýsingum um hluti sem á þeim eru.


Einbýlishús við Reynilund í Garðabæ 1971
Stóll (Mini) og ljós Gunnars Magnússonar, Ruggustóll og borð eftir Helga Hallgrímsson, eikar skápur frá Kristján Siggeirsson hf.

Íbúð í fjölbýlishúsi við Nóatún Reykjavík 1959.
Rafha eldavél, Sindrastólar og borð, Hansa hillur, sandblásið gler, bólstraður skenkur með harðplasti og málm lista. Flottir lampar.
Hæð í tví- eða þríbýlishúsi í Safamýri í Reykjavík 1962 .
Ofn í vinnuhæð, litir á skápum, tekktímabilioð hafið.

Einbýlishús við Brúarflöt í Garðabæ 1970

Hæð í tvíbýlishúsi við Vogaland í Reykjavík 1972
Þorkell Guðmundsson: Stuðla skilrúm, raðsófi og (sennilega) borðsofuhúsgögn. Gunnar Magnússon: Apollo húsgögn. Jón Ólafsson og Pétur B. Lúthersson: Hekla lampi.




Wednesday, April 11, 2012

Heima hjá Børge Mogensen

Vinnustofa meistarans - teikning af stól sem ekki er í framleiðslu.
Nýlega var hús danska húsganaarkiteksins Börge Mogensen (1914-1972) selt Ole Paustian, stofnanda verslunarinnar Paustian í Kaupmannahöfn. Salan er umdeild því margir Danir eru þeirrar skoðunar að húsið eigi að vera í almannaeign, það hafi sögulegt gildi sem heimili og vinnustofa eins virtasta húsgagnaarkitekts landsins og í því sé að finna frumsmíðar margra húsgagna, sem seld voru með húsinu. Einnig er gagnrýnt að ekki sé hægt að friða húsið samkvæmt dönskum lögum. Eigandinn getur því farið með hús og innbú eins og honum sýnist. 
Börge Mogensen
Húsið var bygg eftir teikningum Börge árið 1958 , það er 230 m2 að stærð - íbúðin 126 m2 og vinnustofan 104 m2 - á 1300 m2 lóð. 
Það er forvitnilegt að skyggnast inn á heimili Börge Mogensen í Gentofte. Húsgögnin eru flest gamlir kunningjar sem flestir þekkja einhvers staðar frá. Hönnun Börge Mogensen er svo samofin menningu og umhverfi Norðurlandabúa að það er eins og maður hafi komið inn í þetta hús áður og allt smelli átakalaust saman. 
En hönnun var ekki átakalaus fyrir Börge Mogensen - þvert á móti. Um það má fræðast í bók Thomas Mogensen sonar hans "Et fuld möbleret liv" þar sem hann segir frá eldhuganum, list hans og sigrum, vandamálum, og fjölskyldunni. Þeir sem hafa lesið bókina munu vafalaust skoða sig um í þessu húsi og velta fyrir sér fleiru en hönnun. 
Vonandi eru upplýsingarnar um húsgögnin réttar, þær eru a.m.k. gerðar eftir bestu getu og verða lagfærðar ef ábendingar berast.


Thomas Mogensen talar um föður sinn.
Skoða í betri gæðum hér.


Meira hér
---------------------

Thursday, September 15, 2011

Litríkur vinnustaður Skype í Stokkhólmi

Hjá Skype starfa rúmlega 500 manns.  Þegar litið er til  til þess að skráðir notendur Skype eru 929 milljónir í september 2011 virðist það alls ekki vera margt starfsfólk. 

Í Stokkhólmi starfa 100 manns á splunkunýjum vinnustað. Reyndar er byggingin "Münchenbryggeriet", eitt sinn stærsta brugghús Svíþjóðar,  reist 1846 en innviðirnir hafa nú verið aðlagaðir að hljóð- og  myndþróunardeild Skype. 

Hér eru nokkrar til að sýna litadýrðina. 
En það virðist engin vera mættur í vinnuna ennþá.



PG Arkitektur hannaði nýja vinnustaðinn.  Hann á að endurspegla þá hugmyndafræði að Skype sé nytsamleg en jafnframt skemmtileg tækni sem tengi heiminn saman. 


Hér má sjá skæra liti, tilvísanir í tölvutækni, starfsstöðvar af öllu tagi og skýið í Skype vörumerkinu notað á margvíslegan hátt m.a. í lampa, húsgögn og á skilveggi. 


Á flestum gólfum eru litríkar  teppaflísar lagðar í mynstur. 

Á vefsíðu PK Arkitektur eru fleiri myndir frá Skype í Stokkhólmi og öðrum verkefnum vinnustofunnar.


Monday, May 16, 2011

Baðherbergi - Tölvugrafik úr mósaík flísum


Rýmið er ekki stórt.


Grunnflötur þessa bað- og búningsherbergis er ekki stór en arkitektarnir "dma" hafa farið um það skapandi höndum og gert úr því mjög áhugavert rými. Mosaik flísum er raðað eins og svart/hvítri tölvugrafík. Annað er gult, jafnvel salernispappírinn, og málverk hangir á vatnsbláum vegg í búningsherberginu.

.
.