Showing posts with label Ljósmyndun. Show all posts
Showing posts with label Ljósmyndun. Show all posts

Sunday, December 11, 2011

" Komdu með mér" ljósmyndir Ellie Davies

Ljósmyndasyrpa Ellie Davies heitir "Come With Me”. Það er réttnefni því myndirnar kalla til áhorfandans, vekja forvitni og löngun til að fylgja slóða gerðum úr allskonar efnum, sum hver sem eru framandi í skógarsverðinum - blár litur, hvítt duft og ull. 
Ljósmyndir Ellie Davies segja gjarnan sögu sem áhorfendur verða sjálfir að botna, hver fyrir sig. Ýmislegt kemur á óvart, hlutir í framandi umhverfi, undarleg birta og óvanalegar aðstæður. 
Á vefsíðu Ellie Davies eru fleiri áhugaverðar myndasyrpur, hún er á Facebook og fróðlegt er að skoða Flikr síðuna hennar, þar sést þróun ljósmynda hennar í nokkur ár.



















Saturday, April 30, 2011

Tim Hetherington - Kreólahús í Freetown, Sierra Leone



Þann 20. apríl síðastliðinn létust Tim Hetherington og Chris Hondros í sprengjuárás í Líbýu. Þeir voru báðir fæddir 1970 - virtir ljósmyndarar - og störfuðu m.a. í Líbýu, Afghanistan og Írak. Nú í ár (2011) hlaut Tim ásamt blaðamanninum Sebastian Junger Óskarsverðlaun fyrir heimildarmyndina Restrepo sem lýsir eins árs dvöl Tims og Sebastians í Afghanistan. 
Árið 2007 sýndi Horniman safnið í London ljósmyndir Tims af húsum Kreola  í Freetown, höfuðborg Sierra Leone. Húsin, sem hafa mikið sögulegt gildi, víkja nú óðum fyrir betri húsakosti. Ljósmyndirnar eru hluti af verkefni sem  British Council kom á fót til að varðveita heimildir um húsin og íbúa þeirra. Þetta vakti áhuga á að varðveita einhver húsana og hafa nú tvö þeirra verið vernduð gerð upp. Hér eru nokkrar myndana.
.

Friday, April 8, 2011

Harpa tónlistarhús frá hafi

Vinstra megin er ljósmynd, hægra megin er tölvugerð mynd

Það styttist óðum í að tónlistarhúsið Harpa opni. "Húsið þitt" og "Ný framtíðarsýn" segir á vef Hörpu. Húsið hannaði teiknistofa Henning Larsens i samstarfi við Batteríið arkitekta. Ólafur Elíasson hannaði glerhjúpinn sem umlykur húsið í samvinnu við arkitekta teiknistofunnar. Eitt af megineinkennum hans er tilvísun í ýmis fyrirbæri úr náttúrunni og einstök birtuskilyrði landsins. Sagt er að hjúpurinn verði einstaklega áhrifamikill sjávarmegin við húsið. Tölvugerða myndin hér að ofan, gerð af arkitektunum, sýnir húsið frá þessu sjónarhorni. Það er alltaf spennandi að sjá hve rétta mynd af byggingum tölvumyndir gefa, alltaf er hætta á að eitthvað fari úrskeiðis og útkoman verði önnur en myndin sýnir. Ég tók því nokkrar myndir til að kanna hve raunhæf tölvumyndin er. Vinstra megin er ljósmynd tekin á rigningardegi, hægra megin er svo tölvugerða myndin og það verður að segjast að útkoman er ótrúlega nákvæm. Veðrið hefur reyndar verið skárra daginn sem tölvumyndin var gerð en þá ber líka að hafa í huga að ekki er búið að "kveikja" á húsinu þegar ljósmyndin var tekin, það mun væntanlega breytast mikið þegar ljósin inni verða tendruð. Að neðan er svo mynd af húsinu, höfninni og Reykjavík af hafi, það er hægt að skoða hana stærri hér. 

Reykjavík, Harpa og höfnin af hafi.
.
Hér er önnur samskonar pæling

.
.

Friday, March 18, 2011

Blek- og hljóðmyndir Linden Gledhill


Ótrúlega skarpar myndir gera blekdropa að listaverki.
Ef ég hefði ekki vitað betur hefði ég giskað á að efnið í þessum fallegu hlutum væri vax, plast eða eitthvað viðlíka - en það er öðru nær - efnið er nefnilega blek. Myndirnar eru teknar fyrir Canon í  auglýsingar fyrir Pixma prentara. Við gerð þeirra var notast við lítinn hátalara sem var pakkað inn í þunna himnu. Blekdropum var komið fyrir ofan á hátalaranum og þegar kveikt var á honum kom hreyfing á þá. Með því að breyta tíðninni var svo hægt stjórna hvernig blekið hegðaði sér. Linden Gledhill tók ljósmyndirnar en einnig var gert myndband með vél sem snérist í hringi hátalaran. Dentsu London auglýsingastofan sá um framkvæmdina og á vef þeirra er hægt að skoða Canon auglýsinguna. Myndbandið er flott. 


Blekdropar settir á hátalara  •  Myndavélin og aðstaðan.
Linden Gledhill er lífefnafræðingur og ljósmyndari. Hann tekur macro myndir með "StopShot" tækni sem gerir honum kleift að taka á miklum hraða og litlu ljósopi til að myndin verði skörp. Myndavélin er 10 megpix Nikon D200.
Á Flickr síðunni hans eru ótrúlega góðar macro myndir sem sýna jafnvel hluta af væng fiðrildis. Áhugafólk um ljósmyndun ætti að kíkja á síðurnar hans sem eru hér:   Skordýra- og plöntumyndir   •   Fleiri myndir af vökva og bleki. Einnig segir hann frá Canon verkefninu á þessari síðu. Skemmtileg grein sem sýnir hvernig myndir á Flickr geta komið fólki á framfæri.

Frumheimild og efstu myndirnar: designboom.com  - annað kemur víðsvegar að.
.
.

Monday, February 21, 2011

Óskilgetnir stólar í Kína

Sæti : steinar, stór steinhella, tágamotta, bakið er hlaðinn veggur.
Í umhverfinu eru margir hlutir sem við tökum ekki eftir  þrátt fyrir að þeir séu beint fyrir framan augu okkar. Michael Wolf  ljósmyndar þessa hluti og sýnir okkur að margt sem á vegi okkar verður er merkilegra en virðist við fyrstu sýn - ef við sjáum það. Ljósmyndirnar sem hér eru sýndar kallar hann „the bastard chairs of China", þær sýna að stóll getur verið „sæti" þó lífið hafi leikið hann grátt. Það má einnig sjá að „sæti er sæti er sæti" úr hverju sem það er gert. Mannlegi þátturinn er líka svo sýnilegur, nýtni, hógværð, hugkvæmni og nægjusemi. Á Vesturlöndum höfum við verið að fást við svona hluti, blogg og blöð eru full af hlutum sem kallast „re-make"og sumum hönnuðum hefur tekist að koma sér rækilega á blað fyrir vikið. Nú eru þessar myndir líka komnar á netið en því miður held ég að listamennirnir í Kína komi ekki til með að njóta þess eins og skyldi. 


Smellið á myndina til að sjá stærri myndir

Monday, January 24, 2011

Skúrahverfi í Ríó máluð • Favela Painting

• Drengur með flugdreka, helsta áhugamál barnanna í hverfinu •

• Frumhugmynd hönnuðanna. Mynstur eins og geislar  •
Árið 2007 var máluð mynd af dreng með flugdreka, á 150 fermetra vegg í Vila Cruzeiro, stærsta fátækrahverfi Brasiíu, í miðri í Rió. Verkið, sem var unnið af íbúum hverfisins undir stjórn Hollendingana Jeroen Koolhas og Dre Urhahn, hlaut heimsathygli og er nú stolt hverfisins. Þeir Jeroen og Dre hyggjast nú mála húsin í hverfinu í mynstrum sem þeir hafa hannað. Verkið er hafið og eins og það fyrra er það unnið af íbúunum sem fá fræðslu, verkþjálfun og laun fyrir vinnuna. 
Eins og búast má við eru menn eru ekki á eitt sáttir um ágæti þessa verkefnis, segja þá sem mest fá út úr verkefninu vera hönnuðina, þeir verði frægir en fólkið í fátækrahverfinu gleymist. Verkefnið, sem er nefnt Flavela Painting, nýtur samt mikils stuðnings og hönnuðirnir eru sannfærðir að það verði öllum til góðs. Það er fjármagnað með frjálsum framlögum og stutt af fyrirtækjum t.d. í málningariðnaði. 

• Fátækrahverfið (skúrahverfið "Flavela") er í hlíðum Ríó •

Wednesday, January 19, 2011

Bleikar myndir í sumarlitunum

        
• Fyrirsæturnar eru næstum því óraunverulegar. Flottur bleikur bakgrunnur •

• Bleikur kinnalitur •        

Ég stenst ekki mátið að birta þessar myndir í framhaldi af pistlinum um litaspá 2011. Þær tók enski ljósmyndarinn Miles Aldridge. Miles, fæddur 1964, sem hefur m.a. getið sér gott orð fyrir myndir í Vogue. Hann starfar sjálfstætt, heldur sýningar og tekur tískumyndir. Þessar myndir eru teknar fyrir Vogue 2007-2009. Í öllum myndunum er eitthvað bleikt, hvort það er hinn eini sanni 2011 litur fullyrði ég ekkert  um.

• Myndir Mile's Aldridge eru einsaklega fallegar • Ljósmyndir/Photos: Miles Aldridge •

Fleiri myndir vefsíðu Miles Aldridge 
.
.

Wednesday, December 22, 2010

Þrívíddar teikningar


• Ljósmynd eða teikning... ? 

Gríðarlegar framfarir eru í þrívíddar-teikningum. Það auðveldar alla vinnu við hönnun og ákvarðanir að geta skoðað byggingu, næstum því eins og að vera á staðnum, áður en hún er byggð. Hjá framleiðendum forrita ríkir mikil samkeppni, stöðugt bætast við ný forrit og uppfærslur með nýrri tækni. Framleiðendur leggja einnig mikla áherslu á að gera viðmótið sem einfaldast því oft eru þessi forrit mjög flókin. Það er þó listamaðurinn sjálfur sem mestu máli skiptir, forritið er aðeins áhald til að vinna verkið sem hann sér fyrir sér.

Til gamans eru hér tvær myndir af Box Office; önnur er ljósmynd en hin er teikning, þær eru mjög líkar. Læt ykkur eftir að segja til um hvor er hvað, skoðið fólk, himin og hvort eitthvað vantar í umhverfið.

Teikningarnar eru gerðar af  Tim Nelson og á vefsíðu hans má sjá fleiri teikningar.
.
.