Showing posts with label Veröldin. Show all posts
Showing posts with label Veröldin. Show all posts

Sunday, August 11, 2013

Sirkus Íslands safnar fyrir tjaldi!



Þeir sem voru svo heppnir að sjá sýningu Sirkus Íslands á nýafstaðinni sirkushátíð eru sammála um að það hafi verið einstök upplifun. Sumir halda því jafnvel fram að sýning þetta hafi verið besta sýningin. Vafalaust kemur þetta mörgum á óvart því ekki hefur farið mikið fyrir sirkusnum en tilfellið er að hér er á ferð alvöru sirkus, sem tekur hlutverk sitt alvarlega með ströngum æfingum og mikilli hugkvæmni.

En það vantar sirkustjald! Slíkt tjald er nauðsynlegt svo mögulegt sé að setja upp alvöru sýningar.  Það þarf að koma áhorfendum fyrir og svona sýningar þarfnast mikillar lofthæðar svo hægt sé að sýna alvöru loftfimleika.

Sirkus Íslands safnar nú fyrir alvöru sirkustjaldi sem mun kosta um 40 þúsund evrur. Þeir sem leggja söfnuninni lið fá í staðinn miða á sýningar hjá Sirkusi Íslands árið 2014 í nýja tjaldinu.

Þessi orð eru skrifuð til að hvetja alla til að leggja söfnuninni lið því tilefnið er ærið - alvöru íslenskur sirkus! Kíkið á þessa síðu - þar kemur allt fram sem máli skiptir.

Uppfærsla: Söfnuninni lokið. Henni var afar vel tekið og söfnuðust ríflega 42.000. Við megum því búast við raunverulegum íslenskum sirkus sýningum á næstunni. Frábært!

Thursday, June 20, 2013

Tætingslegt bárujárnshús í Ástralíu.
















Undanfarið hefur mikið borið á húsgögnum og innréttingum úr endurnýttu timbri, helst illa förnu og hrörlegu (sjá dæmi). Þessi tíska er svo vinsæl að nú er farið að framleiða "gamalt timbur" til þessa brúks - svona rétt eins og splunkunýjar gauðrifnar gallabuxur. Það var því bara tímaspursmál hvenær þessi stíll færði sig út fyrir húsvegginn og settist að utan á húsunum.
Þetta hús í Ástralíu er gert úr gömlu skúrhræi sem var rifið og endurbyggt en
klætt götumegin með sama ryðgaða og tætingslega bárujárninu. Að öðru leyti er allt burðarvirkið nýtt, gluggar úr Corten stáli og bakhlið úr hvítum plötum, og ekki bera innviðir hússins keim af tætingslegri ytri ásýnd þess. Hönnuður hússins er Raffaello Rosselli og myndirnar eru frá designboom.
Óhjákvæmilega veltir maður fyrir sér hvernig svona byggingu yrði tekið á Íslandi þar sem bárujárnshús eru þjóðleg byggingarhefð og mikið lagt í að gera þau snyrtileg. Fátt yljar manni eins um hjartarætur og fallega uppgert bárujárnshús. 
En svo er fegurðarskyn fólks auðvitað misjafnt - mér þykir til dæmis hugmyndin um  ryðgað Corten stál á væntanlegu fangelsi á Hólmsheiði hvorki falleg né mannvæn en arkitektarnir eru á annarri skoðun.
Bakhliðin er úr hvítmáluðum sementsplötum.
Gluggar úr Corten stáli - annað er bárujárn.
Skúrinn fyrir og eftir endurbyggingu.

Blikklædd útihurð en að innan er húsið ósköp venjulegt - hvítmálaðir veggir og krossviður.
Væntanlegt ryðgað fangelsi á Hólmsheiði.  Fallegt og mannvænt?
(Mynd úr umsögn dómnefndar)



Hressilegt hostel.

 Ferðamenn sækjast í gjarnan eftir ódýrri gistingu og eru margir tilbúnir til að deila svefnskála með öðrum á hosteli. Í eina tíð var úr fáu að velja í þessum efnum og látlaus farfuglaheimili helsti kosturinn, en nú hefur þeim sem bjóða gistingu af þessu tagi fjölgað og nýju hostelin keppast við að gera dvölina að eftirminnilegri upplifun með hressilegu umhverfi og líflegri þjónustu.
Myndirnar eru af nýju hosteli í Króatíu. Hér er á líflegan hátt blandað saman nútíma hönnun og húsgögnum frá 1950+ . Rýmin einskonar samkomustaður þar sem fólk getur sest niður, farið á netið eða dregið sig í hlé í lokrekkjunni sinni eftir dagsstund við Miðjarðarhafið.  
Hönnuður er Lana Vitas Gruic sem hefur aldeilis hlotið mikla kynningu því myndir af þessari hönnun hennar hafa farið eins og eldur í sinu á netinu. Þessar myndir eru frá designboom.

Húsgögn frá 1950+ í bland við nútimalegar innréttingar.
Rúmin eru í litríkum einingum sem sem mynda einskonar bása út frá veggjunum.

Í rýmunum er aðstaða til að gera flest það sem ferðalangar þarfnast.

Óneitanlega eru hvítu herbergin ekki eins hressileg - en það er þó val.



Wednesday, October 17, 2012

Morgunferð í Leifsstöð

Regnboginn eftir Rúrí 



Aksturinn í Lefsstöð er orðinn flestum svo tamur að leiðina má næstum aka með lokuð augu. Oft er fólk snemma á ferð - var að pakka í ferðatöskur langt fram eftir nóttu -svo það er um annað að hugsa en umhverfið og á stundum nóg með að halda sér vakandi. 
En ef vel er að gáð er margt áhugavert að sjá á þessari leið. Sé maður að aka einhverjum í Leifsstöð, er því upplagt að gefa sér tíma til að skoða umhverfið og fara e.t.v. Vatnsleysuströnd til baka.
Hér eru nokkur mannvirki sem á vegi manns verða en auðvitað er það landið sjálft sem mest heillar.








Regnboginn eftir Rúrí er afar fallegur og margbreytilegur þar sem hann rís úr jörðu og skiptir stöðugt um liti og ásýnd eftir veðri og dagtíma


Við Leifsstöð - ekki eru allir á eitt sáttir um ágæti rauða hússins
Það er snyrtilegt við Leifsstöð. Húsið sjálft stendur vel og þjónustubyggingar eru lágreistar - nema rauða byggingin sem er eitt af fyrstu kynnum útlendinga af íslenskum arkitektúr og sitt sýnist hverjum um þá kynningu.


Litríkit hutaveitutankar og dælustöð

Ormar Guðmundsson arkitekt hannaði vatnstankana sem eitt sinn voru umdeildir vegna litadýrðar. Í dag sóma þeir sér vel með öðrum byggingum á svæðinu og allir eru sáttir við þá. Ormar hannaði einnig orkuverið í Svartsengi sem sést til á leiðinni

Mannvirki innan girðingar









Inni á flugvallarsvæðinu eru ýmis mannvirki sem maður veitir sjaldan eftirtekt. Þessi tvö eru t.d. athyglisverð, jafnvel þó ekki væri nema vegna þess hvernig birtan leikur um þau.

Þotuhreiður
Þotuhreiður Magnúsar Tómassonar í allri sinni stærð er ótrúlega fínlegt og konseptið skemmtilegt. Skugginn færist til eftir gangi sólar eins og á plánetu.

Bjart glerhús við brottfararstigan
Upphaflega var Leifsstöð afar drungaleg að innan en síðari tíma viðbætur hafa bætt úr því. Glervirkið við brottfararstigan gerir mikið fyrir húsið og þaðan sést í Þotuhreiðrið í návígi og Regnbogann fjær. Grindin í glerhúsinu er líka fín.
Strætóskýli Reykjanesbæjar




Í Reykjanesbæ má sjá enn eina eftirhermu af  rauðu skýlunum í Reykjavík, sem Birna Björnsdóttir innanhússarkitekt og Gunnar Torfason verkfræðingur  hlutu verðlaun fyrir árið 1980. 
Fáir hlutir hafa þurft að þola jafn margar lélegar eftirlíkingar og þessi skýli, sem voru mjög fín og gætu verið Reykjavíkurborg til sóma ef upprunalegu hönnuninni hefði verið fylgt. Í stað þess hafa einhverjir gert ótrúlegar skrumskælingar af þeim um allt land, samanber skýlin í Reykjanesbæ.
Sannkölluð sumarhöll við Vatnsleysuströnd
Við Vatnsleysuströnd stendur þetta sérstaka hús sem ég hef ekki meiri upplýsingar um í bili. Bæti úr því seinna.




Friday, August 31, 2012

Borð gerir víðreist.


Stundum er eins og öllum heimsins hönnuðum og framleiðendum hafi dottið það sama í hug - á sama tíma. Hugmyndin ferðast svo víða að það er engin leið að rekja hana til einhvers tiltekins hönnuðar, hún er einfaldlega allsstaðar - í öllum heimshornum. Borðin hér að neðan eru einmitt þannig. Borð af þessu tagi eru oftast talin eiga upphaf sitt að rekja til Bauhaus skólans í Þýskalandi. Um það má svo deila.
Íslenskt og traustbyggt - 1950-1962.
Breuer 1927
Þessi borð standa í Iðnaðarsafninu á Akureyri. Þau voru smíðuð hjá Málmhúðun KEA, sem framleiddi stálhúsgögn af ýmsu tagi, einhvern tíman á milli 1950-1962. Þetta er minnsta borðið af þeim sem sýnd eru hér en jafnframt það efnismesta, borðplata og skúffuskápur eru a.m.k. 3 sm að þykkt og rörin eru sver. Íslendingar vilja hafa hlutina trausta. Hönnuður er ekki tilgreindur. Minna borðið líkist húsgagni sem Marcel Breuer hannaði 1927, það átti að þjóna sem kollur eða borð, eftir aðstæðum að hverju sinni.
Tékkneskt - gráft, ryðgað og málað.
Hér er borð sem er lengra að komið. Það er smíðað í Tékkóslóvakíu um 1930 og virðist frekar óvandað t.d. sjást samskeyti röranna vel undir skúffunum.  Einhver hefur hresst upp á það með málningu í ferskum lit og e.t.v. sett nýjar, svolítið  eldhúslegar,  höldur á skúffurnar.
Myndir: zeitlos-berlin.de 
Og annað frá Tékkóslóvakíu dagssett 1935. Á efra borðinu er platan á milli röranna en hér er hún ofan á þeim, annars eru hlutföllin lík. Framleiðandinn var Kovona sem ennþá í fullu fjöri og framleiðir stálhúsgögn fyrir Ikea.
Frá Þýskalandi kemur þetta vandaða afbrygði árið 1930, reyndar er búið að gera þetta eintak upp. Tappar undir rörinu til að lyfta því af gólfinu, hvergi samsetningu að sjá, harðviður í skúfunum og borðplatan er úr gleri. Þjóðverjinn klikkar ekki á gæðunum.
S 285 hannað af Marcel Breuer - Myndir: thonet.de
S 285 boðið er  hannað af Marcel Breuer 1935 og er í dag framleitt í nokkrum gerðum hjá Thonet, einum vandaðasta húsgagnafraleiðanda heims. Rörið er grennra, engin samskeyti sýnileg, viðurinn er hvítur eða svartur, krómið er silkistétt og rörin umlykja borðplötuna á alla kanta. 
S 285 minimalismi.
S 285 boðið er einnig til í þessari útgáfu sem hlýtur að flokkast til minimalisma. Með hæfilegu ímyndunarafli má sjá ýmislegt annað en borð úr þessu - gamlan jeppa, nuddbekk,  þurkkgrind. 


Og að lokum splunkunýtt borð og stóll frá Muji sem gefur helst ekki upp hönnuð og framleiðanda þess varnings sem fyrirtækið selur. En með aðstoð Google og hæfilegri forvitni kemur í ljós að hönnuðurinn er Konstantin Grcic og framleiðandinn er Thonet sem svo rækilega var hælt hér að ofan. Hönnuðurinn Grcic gengst fúslega við að uppruni hönnunarinnar sé frá Bauhaus. 



Sunday, June 17, 2012

Listasmiðja í Mílanó - Kossaflens


Kossaflens "Filematologia" í Fabbrica del Vapore, Apríl 2012
Karl og kona sitja á Panton stólum og eru að gera hvað? Verkið nefnist "Filematologia" en það munu vera vísindi sem fjalla um  kossa frá sjónarmiði líffræðinnar. Hér er stuttur texti sem skýrir innihald verksins. Þeir sem vilja sökkva sér í líffræði kossa geta skoðað krækjurnar hér að neðan :-)
Verkið var á samsýningu ungra hönnuða í Fabbrica del Vapore, gamalli verksmiðju sem  framleiddi sporvagna,  í Mílanó. Húsakosti verksmiðjunnar hefur nú verið breytt í listasmiðju fyrir unga listamenn - listasetur æskunnar - með góðri vinnuaðstöðu og  sýningarsvæði. Reglulaega er boðið til viðburða sem sýna þann gríðarlega sköpunarkraft sem leysist úr læðingi þegar ungu fólki er sköpuð viðunandi aðstaða til að vinna að hugðarefnum sínum.
Nokkur áhugaverð verkefni frá   verða sýndar hér á síðunni á næstunni. Á þessu myndbandi sést sýningarsvæðið og Alessandro Mendini segir frá verkefninu, mjög áhugavert jafnvel þó maður skilji ekki Ítölsku.
Hér er annað verkefni frá Fabbrica del Vapore.

Hann og hún sitja á "Hennar stól og Hans stól" og gera sig klár í kossinn.

Romeo of Júlía - Rómantískasti koss allra tíma?
Verk: Enski málarinn Frank Bernard Dikcksee
Blákaldar staðreyndir um kossa:

Pilemathology Made Easy 



Tuesday, March 27, 2012

Skondnar merkingar

Umhverfismerkingar eru mikil list. Fæstir leiða hugan að því hve þróað þetta táknmál er, vanhagi þá um eitthvað er næsta víst að einhversstaðar sé merki til leiðbeiningar. Stundum eru þessar leiðbeiningar svolítið skondnar, til gamans eru hér nokkur dæmi.

Hvað skyldi hún tákna þessi merking í Hörpu? Gæti það t.d. verið "Nei, það ekki hér, snúðu við"?

Skátarnir við Úlfljótsvatn hafa leyst þetta á einfaldan hátt, eins og þeim einum er lagið.

Mundir þú kaupa bíl hjá þessu umboði við Elliðaárvog?
Reynsluaksturinn lofar ekki góðu.

Munið að slíðra vopnin á meðan dælt er hjá Atlantsolíu!

Á hóteli nokkru er neyðardyrum lokað með borði og miði límdur á hurðina þessu til staðfestingar. Skyldi samt einhverjum detta í hug að nota þessa hurð, t.d. ef hótelið stæði í ljósum logum, tekur ekki betra við því fyrir utan eru rúmir 40 sm niður á jörð og engar tröppur. 
Ég tók mér bessaleyfi og lagfærði texta miðans.



Saturday, September 3, 2011

Sýningin "i Vesterveg" í Húsavík 2011


i Vesterveg  gömlu sldarverksmiðjunni Húsavík

Það var fallegt í Húsavík á norrænu strandmenningarhátíðinni „Sail Husavik 2011“.  Víð höfnina svifu litrík fley seglum þöndum og á kajanum voru sýningar, markaðir og dans. Og það var meira í vændum. Forsætisráðherra opnaði Garðarshólm, fræða- og menningarsetur sem mun rísa í gömlu síldarverksmiðjunni á hafnarbakka Húsavíkur. Þema Garðarshólma verður samlíf manns og náttúru; hvernig maðurinn mótar náttúruna og náttúran manninn.  
Þarna var einnig sýningin "i Vesterveg". Sýningin er afrakstur samstarfs listamanna frá Íslandi, Færeyjum, Hjaltlandseyjum og Noregi. Íslenska myndlistakonan Málfríður Aðalsteinsdóttir er stjórnandi og upphafsmaður að verkefninu. Aðrir listamenn sem standa að sýningunni eru Elsie-Ann Hochlin og Johannes Vemren Rygh frá Noregi, Guðjón Ketilsson og Kristín Reynisdóttir frá Íslandi, Jogvan Sverrason Biskopstø frá Færeyjum og Barbara Ridland og Roxane Permar frá Hjaltlandseyjum.   
Sýningin hefur þegar verið sett upp í Noregi, Færeyjum, Danmörku, á Hjaltlandseyjum,  í Norræna Húsinu á Íslandi og nú í gömlu síldarverksmiðjunni í Húsavík. Gróft umhverfi verksmiðjunnar hentar listaverkunum einkar vel og lýsingin meistaraverk - ótrúlega flott. 
Myndirnar gefa hugmynd um stemminguna sem ríkti í síldarverksmiðjunni á Húsavík þessa daga.


Hér er hægt að skoða myndirnar í stærri glugga og betri upplausn og lesa meira um sýninguna. 
Þetta er líka betri leið til ef Safari vafri er notaður.





Thursday, August 25, 2011

Steve Jobs - "How to live before you die"


Frétt dagsins: Steve Jobs hefur ákveðið að draga sig í hlé frá starfi sínu fyrir Apple. 
Árið 2005 ávarpaði hann stúdenta Stanford Háskóla við skólaslit. Titillinn er áhrifamikill "How to live before you die" og ávarpið stendur fyllilega undir honum. Fróðlegt er að heyra hvernig Jobs þakkar velgengni Macintosh m.a. því að hafa hætt í skóla og hafa lært skrautskrift. Boðskapurinn er: "Fylgdu draumum þínum".
Hér er ávarpið í tilefni dagsins, Njótið.




Saturday, June 4, 2011

"The FunTheory" - Hafa skal það sem skemmtilegra reynist

Hámarkshraði við skóla sem ég ek daglega hjá er 30 km - flestir aka hraðar þrátt fyrir að ljósaskilti upplýsi hraðan sem ekið er á og allskonar aðgerðir hafi verið gerðar til að gera akstur götunnar sem óþægilegastan - ekkert dugar til. Hvað er til ráða? Mér datt í hug skilti eins og "Like" takkann á Facebook - þumall upp fyrir löglegan hraða en niður fyrir ólöglegan. Svo rakst ég á síðuna "www.thefuntheory.com" sem Volkswagen hefur sett upp og heillaðist af boðskap hennar. Þeir telja að með því að gera "réttu" leiðna skemmtilega sé hægt að breyta hegðun fólks. Til að kanna viðbrögð við þessari teoríu var efnt til hugmyndasamkeppni. Tillögurnar eru frábærar og það er vel þess virði að eiga skemmtilega stund við að skoða allar 720 tillögurnar. Ég er kominn á 423 og hlakka til að halda áfram.
Hér að neðan eru þrjár verðlaunatillögur. Því miður fann ég ekki nafn allra höfunda og rétt er að geta þess að sænska fyrirtækið DDB sá um að útfæra nokkrar tillögur  ásamt Volkswagen.

Stundum gengur illa að skoða myndbönd hér á Blogger - of mikil umferð - 
því er best að smella á YouTube merkið og skoða myndirnar þar.


Lottó með aðstoð hraðamyndavéla.
Í vinningstillögu sinni veltir Kevin Richardson fyrir sér hvernig hvetja megi fólk til löglegs aksturs. Hugmyndin er bráðsnjöll og skemmtileg. Hraðamyndavél fylgist með ökumönnum - sektað er fyrir hraðakstur  og sektin fer í pott eins og hjá Lottó. Þeir sem aka á réttum hraða verða sjálfkrafa þátttakendur í lottóinu og gætu fengið óvæntan vinning sendan heim. Þessi hugmynd hefur verið gerð að raunveruleika í Stokkhólmi.


Heimsins dýpsta sorpílát
Sumir eiga í mestu vandræðum með þá einföldu og sjálfsögðu athöfn að henda rusli í sorpílát. Fólk hendir sorpi hvar sem er á ótrúlegustu stöðum. Er hægt að örva fólk til að nota sorpílát með því að gera athöfnina skemmtilega? Kíkið á þetta.


Píanó stigi
Það mun vera hollara að ganga stigann en að taka lyftu eða rennistiga. Fæstir taka mark á þessari ráðleggingu. Hvað ef það væri skemmtilegra að ganga stigann?



Leikur á rauðu ljósi
Það er hundleiðinlegt að bíða á rauðu ljósi. Magrir leggja sig og aðra í hættu þegar þeir hlaupa yfir á rauðu ljósi. Guy Dayan fékk vin sinn til að leika hljómlist fyrir á meðan rautt ljós var á. Hljómlistinina útsettu þeir sérstaklega úr lögum sem innihalda "stop" og "stand".

Myndböndin eru af vefsíðu keppninnar: www.thefuntheory.com
.
.

Wednesday, June 1, 2011

"Empty Chair" táknænn stóll fyrir mannréttindi



"Empty Chair"

Um þessar mundir er haldið upp á 50 ára afmæli Amnesty International samtakanna. Í því tilefni buðu samtökin hönnuðinum Maarten Baas (1978) að hanna hlut sem notaður verður sem tákn í baráttu samtakanna gegn þvingun listamanna. 
Í fyrra var Liu Xiaobo veitt friðarverðlaun Nobels vegna baráttu hans fyrir mannréttindum. Xiaobo situr í fangelsi í Kína vegna skoðana sinna. Hann var því ekki viðstaddur athöfnina í Osló - stóll hans var því auður eins og sagt var frá hér á síðunni.
Maarten hannaði stól sem hann nefnir "Empty Chair" til heiðurs Xiaobo. Bak stólsins er fimm metra hátt, það er kræklótt og teygir sig til himins á táknrænan hátt. Stóllinn var afhjúpaður á ráðstefnu Amnesty International um síðustu helgi (25.5.2011).  Samtökin munu gefa út barmmerki með eftirmynd af stólnum sem verður, eins og áður segir, tákn í baráttuherferð gegn þvingun listamanna.
"Empty Chair" til heiðurs Liu Xiaobo teygir kræklótt bak til himna

Efst: "Smoke" húsgögn
Neðst: "Clay" húsgögn


Maarten Baas (1978) hefur vakið mikla athygli fyrir hönnun og uppátæki sín. Árið sem hann lauk námi í Eindhoven hóf Moooi sölu á "Fire" húsgögnum hans. Þau vöktu mikla athygli og árið eftir var hann kominn með einkasýningu Í New York og "Smoke" komin á fjölmörg listasöfn. "Smoke" eru allskonar húsgögn, oft eftilíkingar  þekktra húsgagna, sem eru sviðin á eldi og "rústirnar" síðan húðaðar með epoxy lakki. "Clay" húsgögn eru gerð úr leir.

Húsgögn Maartens eru handgerð og það er erfitt að skilgreina hvar þau eru staðsett á kvarðanum hönnun / list og afar erfitt að lýsa þeim í orðum. Þess vegna er best að skoða vefsíðuna hans, þar kennir ýmissa grasa.

via: De de ce og Amnesty

Sunday, May 15, 2011

Hattar Hennar Hátignar

Elísabet II í gulu við hið konunglega brúðkaup. Silkiblóm á hattinum.
Þar sem Elísabet II Englandsdrottning  er - þar er fallegur hattur. Svona er þetta allanvegan í mínum huga og trúlega verður fleirum hugsað til hatta og Elísabetar II í sömu andrá. Þannig hefur þetta verið alla tíð. Drottningin er óvanalega djörf í litavali. Þegar ég hugsa til þjóðhöfðingja vestrænna landa sé ég fyrir mér hvítt, svart og blátt - birtu, myrkur, himin og haf. Elísabet II klæðist hinsvegar yfirleitt einhverjum af grunnlitunum - skærrautt, himinblátt, páskagult og jafnvel fjólublátt -  og gengur með flotta hatta. Auðvitað eru skiptar meiningar um smekkvísi hennar hátignar, sumir segja hana fremur lummó en aðrir benda á að hún leggi sig fram um að klæðast í stíl millistéttarinnar. Ég safnaði 38 myndum af henni við ýmiss tækifæri með 36 hatta og setti þær á Facebook síðuna svona rétt til að sjá úrvalið og gera upp hug minn. Myndirnar eru hér.
Myndirnar sem hér fylgja eru frá brúðkaupinu 29. apríl síðastliðinn. Drottningin klæddist skærgulu og gulum barðastórum hatti með samlitri skreytingu úr silki. Hanskarnir eru hvítir og skórnir samlitir veskinu.
Elísabet fæddist 21. apríl 1926. Við tign Englandsdrottningar tók hún 2. júní 1953 og er þjóðhöfðingi 125 miljón manna.

Elísabet II og Filippus prins skunda til brúðkaups.
 Flottir litir þarna saman komnir.
Drottning í gulu og Prins í svörtu.

Fleiri flottir hattar eru hér!
Myndirnar eru frá Let's Colour Project
.
.