Showing posts with label Ljós. Show all posts
Showing posts with label Ljós. Show all posts

Friday, February 3, 2012

Kertastjakar úr steypujárni




Kertastjakarnir "Heima" eru úr steypujárni sem verður að teljast frekar óvenjulegt efni í kertastjaka nú til dags. Þeir eru þungir, kaldir og grófir og eiga að minna á gamalt norrænt handverk. Stjakarnir hafa hlotið nokkrar viðurkenningar m.a. IF verðlaun árið 2010.
Hönnuður "Heima" kertastjakana er Francis Cayouette.











Thursday, January 26, 2012

Lampi og naumhyggja

Lampinn "Pulley" - minimalismi í sinni skýrustu mynd
Lampinn "Pulley" er hannaður af Monocomplex í Seoul. Formið er sótt í byggingarkrana en frá sjónarmiði verkfræðinnar er reginmunur á þessum tveimur hlutum, lampinn er er einskonar trissa sem hangir saman á snúrunni einni - slitni hún hrynur lampinn - byggingarkraninn mun hinsvegar standa keikur þó vírinn slitni. Frábært dæmi um minimalisma þar sem engu er of aukið og ekkert getur án hins verið.
Snúran leikur í fallegum trissum úr messing og stáli
Snúran heldur lampanum saman

Ljósastæðið er hlassið kraninn ber


Monday, January 16, 2012

Baltensweiler lampar

Baltensweiler 600 

Rico og Rosmarie Baltensweiler stofnuðu Baltensweiler Lighting í sviss árið 1951. Rosmarie nam hönnun hjá Max Bill, einum þekktasta hönnuði Bauhaus tímabilsins, Rico var verkfræðingur. Hönnun og tæknileg lausn lampana ber þessa samstarfs fagur- og verkfræði greinileg merki.
Lampana framleiddu þau á vinnustofu sinni í Luzern þar til Knoll tryggði sér framleiðsluréttinn árið 1956. Það sama ár notaði Le Corbusier "600" lampann á sýningu og þar með var leiðin að alþjóðlegri viðurkenningu lögð.
Baltensweiler 60 lampi til vinstri - Skermur og undirstaða 600 lampa til hægri

Baltensweiler Minilux - hann getur einnig staðið eins og hér er sýnt

Baltensweiler 300 lampinn er einnig mjög glæsilegur, mynd hér. Það er athyglisvert að bera hann saman við Flower pot lampan eftir Verner Panton - til gamans.

Myndir: af vef Baltensweiler Lighting, Marc Oliver, Flicr





Monday, June 13, 2011

"Hlutirnir okkar" - sýning í Hönnunarsafni Íslands



Það ættu allir að gera sér ferð í Hönnunarsafnið og skoða sýninguna "Hlutirnir okkar". Þar er að finna áhugaverða muni -  íslenska og erlenda - nýja og gamla - handverk og hönnun er í fyrirrúmi og sagan svífur í loftinu. Hér á síðunni verður væntanlega fjallað um sýninguna en hið fornkveðna "Sjón er sögu ríkari" er í fullu gildi. Opið 12-17 nema mánudaga - ókeypis á miðvikudögum.
.
.

Saturday, March 26, 2011

Hekla - Jón Ólafsson og Pétur B. Lúthersson

Hekla - massíft skuggaspil í dagsljósi, logandi hnöttur á kvöldin


Húsgagnaarkitektarnir Jón Ólafsson og Pétur B. Lúthersson hönnuðu lampann "Hekla" árið 1962, þá voru  þeir við nám við listiðnaðarskólann í Kaupmannahöfn. Lampinn bar sigur úr býtum í samkeppni á vegum lampaverslunarinnar Fog og Mörup og  var framleiddur í 15 ár. Lampinn er 50 sm í þvermál, smíðaður úr áli og tekur allt að 150 kerta peru. Hann lýsir mjög vel og eiginleiki hans til að skipta um form er einstakur -  í dagsbirtu virkar hann eins og massíf hálfkúla með mikið skuggaspil en þegar kveikt er á honum virkar hann léttur og svífandi leikur með kúlu og pýramída.. Sjaldgæft að sjá Heklu lampa til sölu en það kemur þó fyrir, verð á síðum sem gefa það í dollurum er gjarnan 1.200 - 1.500 dollarar og þá á eftir að greiða flutning og virðisaukaskatt. Stundum kemur Hekla í dönsk uppboðshús og fer þá verðið eftir aðstæðum og ástandi lampans. Framleiðsla mun hafa hafist 1964 og framleiddir voru um 15.000 lampar.

Hér til hliðar er merki Fog og Mörup, dæmigerð 50s hönnun, neðri myndin sýnir forsíðu vörulista  Fog og Mörup ca.1963.
Takið eftir myndinni í miðjunni þar sem Hekla er notuð sem borðlampi - hún sómir sér líka vel þannig
Ljósu myndirnar hér að ofan sá ég hjá City Furniture í Belgíu, sem hafði einn lampa til sölu, og bætti þeim við á síðuna í október 2012. Í miðjunni er mynd sem mér var send, hún sýnir óvanalega notkun Heklu sem borðlampa - hún er líka falleg þannig.


Hinn eina sanna Hekla - nafna lampans góða.

Auglýsing frá Fog & Mörup.

Wednesday, January 19, 2011

Lampar Serge Mouille

• Lömpum Serge Mouille er líkt við flugur og fljúgandi furðuhluti •

Ekki gera ekki allir sér grein fyrir hvenær þeir hafa í höndunum verðmæta hluti og því er hætt við að þeir fari forgörðum. Verðmæti hönnunar er að vísu afstætt, matið getur helgast af fegurð, sögulegu og tilfinningalegu gildi eða söluverðmæti, svo nokkuð sé nefnt. Hvað bíður nýrrar hönnunar vitum við ekki en það gæti verið eitthvað í líkingu við sögu lampana sem hér eru sýndir.

• Smíðaði lampana sjálfur •

Serge Mouille (1922-1988) lærði silfursmíði í París. Árið 1945 opnaði hann vinnustofu þar sem hann hannaði ýmislegt fyrir einstaklinga. Hann heillaðist af hönnun lampa og frá 1953 helgaði hann sig því verkefni. Mouille smíðaði sjáfur lapana sem voru afar nettir og líkt hefur verið við flugur og fljúgandi furðuhluti. Ekki er ljóst hve marga lampa hann smíðaði en þeir eru nú mjög eftirsótti og seljast á mörg þúsund dollara, verð þriggja arma lampa er a.m.k. 12.000 dollarar.
Það er kannske rétt að kíkja í geymsluna.

• Einkenni lampana eru fínlegur standurinn og grannur leggur að svífandi lampahlíf •


Thursday, January 6, 2011

Fínlegir blásnir glerlampar

Þýska listakonan Hanna Krüger býr til hugvitsamlega hannaða hluti úr gleri og postulíni.  Við glergerðina beitir hún ýmsum aðferðum en lamparnir sem hér eru sýndir eru úr blásnu gleri.
•VAISS.EAU • Kúptur botn, hliðar sem enda í stút og snúran geymd ofan í, hvaðan kemur formið? •
• Mattur eða glær •



VAISS.EAU lampinn eru úr tvöföldu blásnu gleri. Neðsti hlutinn er mattur og kúptur til að endurvarpa ljósinu niður. Ytri hjúpurinn geymir snúruna sem er umfram hæðina sem ljósið hangir í. Ljósið er hangir í stálvír. 
Það sést vel hvaðan formið kemur; kúptur botn, hliðar sem teygja sig upp og enda í stút og svo eitthvað til að geyma innan í. Það hlýtur að vera flaska.




Grunneiningin í ADD-ON lömpunum hér að neðan er sú sama, tréfætur, perustykki og snúra, allt sett saman á einfaldan hátt. Glerið er handgert og því verður hver lampi einstakur. 

• Grunneining ADD-ON er alltaf eins en samt er hver lampi einstakur •

Thursday, December 16, 2010

Lampi úr "drasli"



Mikil vakning er í umhverfisvænni hönnun, "Green Design". Hvar sem litið er má sjá hönnuði velta fyrir sér skynsamlegri nýtingu efna og hvað hægt er að skapa úr því sem annars er hent. 
Hér er fínn lampi úr flöskum, takið einnig eftir að standurinn er gerður úr efnum sem seld eru í metratali í Byko.
Nafnið "ljót andarunginn" sem hönnuðurinn gefur lampanum er eiginlega öfugheiti því það er svo sannarlega ekkert ljótt við hann. 


Varúð!  Ef einhver hyggst gera sinn eigin lampa úr flöskum er bent á að ekki má nota venjulega gló- eða halogenperu í hann. Þær eru of heitar og munu kveikja í lampanum eftir stutta stund. Það á, hinsvegar, að vera nokkuð öruggt að nota nýju sparperurnar. En fylgist þó vandlega með og passið að það sé loftrúm milli skerms og peru.