Showing posts with label Hljóðfæri. Show all posts
Showing posts with label Hljóðfæri. Show all posts

Tuesday, November 27, 2012

Öðruvísi hljóðfæri - PH flygillinn

Poul Henningsen er best þekktur sem lampahönnuður og fyrir ákveðnar skoðanir á ljósgæðum. En hann fékkst við fleira, skrifaði gagnrýni og bækur og hannaði húsgögn - og lék á píanó. 
Árið 1931, fimm árum eftir að fyrsti PH lampinn kom á markað, hannaði Henningsen flygil sem á sér fáa líka. Stærð hljóðfærisins var miðuð við að það kæmist fyrir í meðalstórri stofu, 180 x 160 sm. Henningsen lagði alltaf ríka áherslu á að góð hönnun ætti að vera öllum aðgengileg og átti flygillinn að undirstrika það. Hönnunin er mjög frábrugðin því hefðbundna formi sem þetta hljóðfæri hefur oftast, enda var það ásetningur Henningsen að breyta ímynd hljóðfærisins og færa það í nútímalegan búning. Fæturnir eru frjálslega formaðir úr póleruðu áli - líkt og í dansi, hliðar úr rauðu leðri, listar úr ryðfríu stáli, lokið úr málmgrind með gegnsærri plötu til að píanóleikarinn geti séð til meðspilarana og harpan er lökkuð með silfurlitu lakki. Sumir flyglarnir voru með sjálfspilandi gangverki.
Að sögn Henningsens átti hljóðfærið ekki að vera húsgagn  heldur áhald í líkingu við síma eða útvarp - áhald til að skapa tónlist frekar en mubla til að prýða stássstofur. Móttökur voru blendnar og sitt sýndist hverjum bæði um hugmyndir Henningsens og um hljóðfærið sjálft. Einhverjir sögðu að Henningsen hefði lagt meira í ytra útlit en hljógæði, sem skipta auðvitað
öllu máli þegar hljóðfæri á í hlut.
Á 30 árum voru smíðaðir um 70 flyglar og víst er að markmið Henningsens um að gera þá að almenningseign mistókst. Í dag eru þeir seldir dýru verði hjá uppboðshúsum, til dæmis seldi Lauritz.com einn fyrir 270 þúsund danskar krónur nýlega. Þetta eru reyndar talin góð kaup því verðmatið var 450 þúsund danskar krónur. Og nú er einnig hægt að kaupa sér splunkunýjan PH flygil eða pianettu hjá Bluthner Í Leipzig. Þar á bæ hefur harpa hljóðfærisins verið endurhönnuð og nú hljómar hún eins og fínustu flyglar fyrirtækisins. Útlitið, segja þeir hjá Bluthner,  er ennþá jafn mikil framtíðarmúsík og það var 1931.

PH flygill - ál, stál, leður, ryðfrítt stál og glært lok
Harpan í nýrri gerðum af PH flyglum er gyllt en annað er að mestu leyti eins og upprunalega hönnunin.


Myndirnar:  Lauritz.com og tuvie.com.



Saturday, March 10, 2012

Fiðrildasinfónía


Paul Villinski hirðir dósir á götum New York-borgar og gerir úr þeim fugla og fiðrildi. Hann segir að eftir umbreytinguna úr dós í fiðrildi flögri þau um vinnustofuna og taki sér svo bólfestu þar sem þeim hentar. Oftar en ekki vill svo til að úr þessu verður einhverskonar myndform. Stundum setjast þau að í einhverju sem hann er að bjástra við og verða þar með hluti þess. 
Hér hafa fiðrildin gert sér leið inn í óvenjulegt ljóst selló og gítar. Villinski gefur ekki upp hvaðan hljóðfærin koma en gítargeggjarar ættu að þekkja Epiphone Dot gítarinn, menn hafa fengið fiðring yfir öðru eins.








Via My Modern Met



Sunday, April 17, 2011

Gítarsmiðir og Picasso í New York

"Guitar Heroes" gítar- og hljóðfærasýning í Mertopolitan safninu
Gítar (ca. 1630 -50) - Matteo Sellas ( Þýskur ca. 1599-1654)
Greni, pergament, "snakewood", fílabein.
Á Mertopolitan safninu í New York stendur yfir sýningin "Guitar Heroes" á gíturum  ítalsk/bandarískara hljóðfærasmiða. Þetta eru gítarsmiðirnir John D’Angelico (1905–1964), James D’Aquisto (1935–1995) og John Monteleone (f. 1947). Allir eiga þeir það sameiginlegt að vera bandaríkjamenn af norður-ítölskum uppruna en þar var lengst af vagga evrópskrar hljóðfærasmíði. Til að setja sýninguna í sögulegt samhengi eru einnig sýnd nokkur ítölsk hljóðfæri, það elsta er fiðla frá 1559 eftir Andrea Amati. Hér eru sýndir nokkrir gamlir gítarar, lútur og svo "archtop" gítarar eftir smiðina þrjá.
Svo skemmtilega vill til að í MoMA er sýning á verkum Pablo Picasso sem tengjast gítörum og því upplagt að hafa nokkur með. Frábær vefsíða er tileinkuð þeirri sýningu, kíkið á hana.


Gítar (1700) - Antonio Stradivari (Ítalskur 1644-1737)
Greni, hlynur, íbenholt.

Gítar (ca 1700) - Smiður óþekktur
Greni, íbenholt, fílabein, skjaldbökuskel.

Mandolín (ca. 1900) - Angelo Mannello (Ítalskur/Bandarískur 1858-1922)
Greni, skjaldbökuskel, fílabein, málmur.
 Fyrsti Gibson L5 gítarinn  - Gítar (1932)  John D'Angelico (1905-1964)
Gítar (1972)  James D'Aquisto (1935-1995) - Gítar (2008)  John Monteleone (f. 1947)
"Archtop" gítar hefur íhvolfan botn og topp með "f" götum eins og á fiðlu. Þessi gítar er líka yngstur kassagítara uppfundinn af Orwille Gibson (1856-1918) um 1890. Gibson gerði einnig mandolín með svipuðu lagi og fékk einkaleyfi á hönnuninni árið 1895. Brátt var eftirspurn svo milkl að Gibson annaði ekki eftirspurn, hann seldi þvi einkaleyfið til fjárfesta sem stofnuðu hina frægu Gibson gítarsmiðju. Þar tók Lloyd Loar við og fyrsti L-5 gítarinn varð til árið 1922.  
_______________________________________________________________________






Pablo Picasso (1881-1973)
Still life with Guitar (1913) - Violin ((ca. 1912)
Pablo Picasso (1881-1973)
Guitar and Sheet Music (1912) - Guitar, Sheet Musuc and Glass (ca. 1912)
Bar Table with Guitar (1913) - Still Life with Guitar (1922)
.
.

Thursday, March 17, 2011

iPad IO Dock fyrir hljóðvinnslu

IO Dock breytir  iPad að hljóðfæri og stúdíó. 

Öll helstu tengi fylgja.
iPad er alltaf að sanna gildi sitt, stöðugar nýjungar og meira afl hafa gert hann að miklu meira en græju til að lesa og vafra á. Alesis , sem framleiðir trommur og allskonar tól til hljóðvinnslu, kynnti nýlega IO Dock sem breytir Ipad í alvöru hljóðgervil og hljóðfæri með nótnaborð og öllu sem þarf til að gera alvöru hljómlist. Það er væntanlega mikið þægilegra að hafa allar stillingar og nótnaborð á skjánum en á venjulegu lyklaborði. Öll helstu forrit sem til þarf eru væntanleg í iPad útgáfu og nokkur eru tilbúin nú þegar, þau eru seld í App Store. IO Dock er með allar helstu gerðir af tengjum fyrir hljóðfæri, monitora og fjarstýringu. Ég á eftir að sakna lýsandi eplisins aftan á skjánum, það er svo flott á sviði en - the show must go on. 
.
.

Sunday, February 27, 2011

The Voca people - Algjör snild!

The Voca people

Vinkona mín á Facebook benti á þetta stórkostlega band en ekki eru allir á Facebook (eða hvað...?) svo ég  set það hér svo allir fái að njóta. Það eru fleiri bönd á YouTube og  hér er vefsíða The Voca People


Thursday, February 10, 2011

Splunkunýir "útjaskaðir" gítarar

Lúnir og snjáðir Fender gítarar - beint úr verksmiðjunni. Gallagher týpan er brúni Stratinn.


Ný-snjáður Tele
Áður fyrr voru rispaðir og slitnir gítarar seldir fyrir slikk. Vel bónaður gítar sem glampaði í sviðsljósinu var málið - eins og Rauður Hank Marvins í The Shadows.  Seinna fóru menn að stúdera aðra gítarleikara, Stevie Ray Vaughan og Rory Gallagher, sem var alveg sama um útlit gítarsins á meðan hann skilaði rétta sándinu. Aðdáendur The Shadows glöddust ef sjón þeirra var svo slæm að þeir þurftu gleraugu - eins og Hank - aðdáendur Steve og Rory glöddust í hvert skipti sem góð rispa bættist á gítarinn. Vel slitinn gítar ber þess merki að á hann hafi verið leikið, hann hafi þvælst um víðan völl og geymi mörg góð jigg. Ætla mætti að til þess að verðskulda þennan sess hefðu gítar og spilari stritað um víða völl en, eins og oft er, það er ekki víst að svo sé. Fender og Gibson hafa í nokkur ár framleitt gítara sem eru rispaðir, ryðgaðir, snjáðir og sprungnir, það er meira að segja hægt að fá nákvæma eftirlíkingu af gítar átrúnaðargoðsins. Módelin eru frá 50' , 60´s tímabilinu og fá fína dóma fyrir hljómgæði, sumir segja að "slitið" opni viðinn, aðrir fussa og sveia. Hvað sem því líður, nú geta allir eignast gítar sem lítur út eins og eigandinn hafi erft hann frá langafa Eric Clapton.
Splunkunýr útjaskaður háls með glæsilegu sliti, ryði og öðrum ósóma. 
Gítar Rory Gallagher er einn sá skrautlegasti. Eins og búast má við ganga sögur um það hvers vegna gítarinn er svona "illa" farinn. Rory átti mörg hljóðfæri en Stratinn var hans uppáhald, nemarnir voru vafðir nokkru sinnum og skipt var um háls því sá gamli var gegnsósa af svita. Einhversstaðar las ég þá tilgátu að Rory hefði verið í svo sérstökum blóðflokki að svitinn hefði hreinlega leyst upp lakkið! Kannske fylgir bytta af réttri tegund með Gallagher Strat.

Saturday, January 22, 2011

Taska fyrir hátalara og útihátíðir

• BoomCase. Uppáhalds taskan, 200 wött og eins margir hátalarar og maður vill •

Ferða magnari þarf auðvitað að vera "ferða"-eitthvað og hví ekki "ferða-tösku"magnari. Herra SIMo græjar það, hægt er að leggja til (uppáhalds) töskuna sína eða fá eina gamla hjá honum. Síðan er ákveðið hvernig græjan á að vera, hve margir hátalarar af hverri gerð, styrkur allt að 200 wött, þráðlaus móttakari o.s.f.v. Hægt er að tengja öll tæki sem hafa útgang fyrir heyrnatól t.d.iPod, iPhone og gítar eða hljóðnema. Rafhlöður endast í allt að 8 klukkustundir. Græjan heitur BoomCase.
• TDK 2 eða 3 6" hátalarar •
 • BoomBOX •

TDK, sem framleiðir hljómtæki, er einnig að koma með álíka græju. Hún getur spilað frá nánast öllu sem hægt er að geyma hljóð á, iPoddum og símum, USB minnislyklum, hægt að tengja gítar og hljóðnema og útvarp er innbyggt. Græjan er 35 wött og gengur fyrir rafhlöðum eða spennubreyti. Hún nefnist BoomBox

Sem sagt, mikið boom-boom og skella sér bara á næstu útihátíð og blasta græjuna. 
• Eða bara í gítarkassan •

Tuesday, January 18, 2011

Bare Knuckle Pickups • Betri vefsíða


Bare Knuckle Pickups sem áður hefur verið skrifað um  hafa nú uppfært vefsíðunna sína. Það er vel, því gamla síðan var orðin lúin. Nýja síðan er einföld en greinagóð, þar eru allar upplýsingar sem þörf er á og ekkert skrum.  Hljóðdæmin á svona síðum eru oft gerð á sitt hvorn magnarann, gítarinn og spilarann að spila sitt hvort lagið. Bare Knuckle hefur bætt úr þessu og það er a.m.k. eitt hljóðdæmi fyrir hverja gerð tekin með sama hljómagangi og sama magnara. Loksins er hægt að leggjast í algjörar pælingar, það er frábært að setja á sig heyrnartólin og hlusta á misjafnar gerðir við sömu aðstæður. Held ég hafi aldrei áður gert mér grein fyrir muninum. Síðast tók það mig næstum tvö ár að ákveða mig, núna gæti ég gert það á nokkrum dögum!

 Bare Knuckle Pickups •
• Bare Knuckle Pickups • Facebook 

Monday, January 10, 2011

Hljóðfærasmíði sem listform

Þegar listamaðurinn Peter Malinoski fann ekki gítar við sitt hæfi ákvað hann að smíða hann sjálfur. Þetta var árið 1986. Verkefnið var heillandi og kallaði á fleiri tilraunir. Nú hefur Peter smíðað óhefðbundnin hljóðfæri í 20 ár. Fyrir hann er hljófærasmíðin bæði listræn tjáning og tækifæri til að smíða hljóðfæri sem hefur aðra eiginleika en fjöldaframleidd hljóðfæri.




• Gítar #62 • Háls: hlynur, búkur: sedrusviður og askur. Viður er olíuborin •
Peter mótar allt, bak og framhlið, hljóðfærið eins og skúlptúr. Hann segir nýtt hljóðfæri taka við þar sem því fyrra lauk, hvert hljóðfæri sé einstakt að útliti og hljómgæðum. Engin tvö séu eins. Háls og brú eru þó oftast í hefðbundnum stærðum. Nemana smíðar hann sjálfur. Í boði eru nokkrar gerðir, piezo nemi fylgir þeim öllum. Hljómdæmi eru á vefsíðunni hans og á Youtube. Hér er ágæt dæmi.


• Bass # 15 • Efni: steypt ál, plötuál og mahoní. Einnar spólu nemi •
Þessi einstaki bassi, Bass #15" er smíðaður úr áli og mahoní. Undirstaðan er úr stáli. Á honum er einnar spólu nemi með einum styrkstilli. Hljómurinn er sagður djúpur, kraftmikill og málmkendur með endalausan ómtíma. Bassinn er ekki til sölu.
PS. Íslensku nöfnin "nemi" og "einnar spólu" eru notuð hér í stað "Pickup" og "single coil". Íslensku nöfnin eru mjög falleg og lýsa nákvæmlega því sem þessi tæki gera. Er ekki rétt að nota móðurmálið og hætta slettum?

Monday, December 20, 2010

VOX • Vasamagnari með stæl


Mini magnarar merktir þekktum framleiðendum eru víða fáanlegir. Flestir eru þeir viðurkenndir, og jafnvel seldir, af framleiðendunum sjálfum, og gæðin því merkilega góð. Vel má leika sér með flesta þeirra til æfinga hvar sem er, í bíl, flugvél eða upp í rúmi og jafnvel í jam með öðrum þó reikna megi með að þeir drukkni í veglegum trommuslætti. 
Þessi VOX vasamagnari er einn sá besti því auk þess að uppfylla draum The Shadows aðdáenda um að eignast loksins VOX magnara!, þá er ótrúlega gaman að fikta við hann. Í honum er meðal annars:
  • E streng Turner
  • allt að 66 effectar og taktar af ýmsu tagi
  • Gain, tón, volume og overdrive stillar
  • 2 VOX hátalarar
  • 2 rásir
  • Hægt er að tengja iPod í aðra rásina og jamma með á hinni.
Var ekki til í Hljóðfærahúsinu, sem selur VOX vörur, síðast þegar athugað var en kostar 60 dollara í USA.
Þeir vandlátari kaupa sér svo bara ósvikinn AC30 á 240-280.000 kall!

Skoðið tenglana fyrir meiri upplýsingar:
Framleiðandinn:VOX
Sjálfur Hank Marvin í forgrunni, með stóru gleraugun sem allir strákar vildu eignast. Það sjá allir menn hve flott þau eru og hann gengur ennþá með þau. Vandaðir hlutir endast best!

Thursday, December 16, 2010

Gítarpickup - með berum hnúum

Á tímum stórfelldra tækniframfara á öllum sviðum mætti búast við spennandi nýjungum í gerð gítarpickupa. Því er ekki alveg svo farið. Aðal viðfangsefni framleiðenda er að búa til pickup sem jafnast á við þau gömlu frá 1960 til 1970, "Vintage" er orð dagsins. Leo Fender sagði að góð pickup væri aðeins hægt að handsmíða og nú hafa komið fram smærri framleiðendur sem handvefja pickup með vír sem líkist þeim gamla, nota í þau gamaldags segul og baða þau í vaxi eins og áður tíðkaðist.


Í Devon á Englandi, handsmíðar Tim MIlls  pickup á verkstæði sínu Bare Knuckle Pickups. Hann var orðin leiður á að leita eftir hinum rétta tón og smíðaði því sín eigin pickup. Það tóks svo vel að hann hóf framleiðslu, í smáum stíl, heima hjá sér. Hróður Tims hefur borist víða og nýtur hann mikillar virðingar í bransanum, enda fá pickupin hans frábærar umsagnir í blöðum og hjá notendum.
Tim leggur ríka áherslu á að vera í góðu sambandi við notendur. svarar sjálfur öllum fyrirspurnum umsvifalaust, gefur góð ráð og aðstoðar við valið. Það þekkir sá er hér ritar.

Í boði eru allar helstu gerðir en sérsmíði og breytingar eru líka í boði. Hljóðdæmin á vefsíðunni virka ekki en á henni er frábært spjallborð sem nördar og áhangendur nota m.a. til að skiptast á hljóðdæmum og er öllum ráðlagt að koma þar við.


Þægilegast er að kaupa sett sem valin eru saman. Algengt verð á single coil Strat setti er 165 pund en 220 pund ef einn humbucker er með. Tele sett eru á 135 pund. Við þetta bætist flutningskostnaður sem er 12 pund til Íslands. Virðisaukaskattur 17.5% (VAT) dregst frá verðinu þannig að  Strat set er rúm 150 pund en hér heima bætist 25% VSK við. Með í kaupunum fylgir svo Framus strengjasett sem bónus.
Það er mjög sjaldgæft að fá enskan virðisaukaskatt frádregin og fær Tim auka lof fyrir það!