Showing posts with label Vinnustaðir. Show all posts
Showing posts with label Vinnustaðir. Show all posts

Monday, August 6, 2012

Google vinnustaður í Rússlandi

Afgreiðslan setur tóninn fyrir það sem innan hennar tekur við
Vinnustaðir Google bera einkenni landsins sem þeir eru í. Í Sviss eru lyftuklefar úr skíðalyftum notaðir sem vinnustöðvar , í Svíþjóð ríkir birta og litagleði og í London nútímaleg ensk hönnun. Fyrir ókunnuga eiga þó vinnustaðir Google eitt sameiginlegt : þar virðist ríkja mikil óreiða. Öllu ægir saman - húsgögnin eru ósamstæð, rýmin eru óvenjuleg, allt er frekar hrátt og sums staðar skrifar starfsfólkið jafnvel skilaboð á veggina. 
Þrátt fyrir þetta er eitthvað aðlaðandi við vinnustaði Google, enda er sannleikurinn er sá að nákvæmlega svona vill starfsfólkið hafa þá, enda tekur það ríkan þátt í hönnuninni. Þetta er sem sagt skipulögð óreiða.
Á myndunum ber að líta nýlegan Google  vinnustað í Moskvu, Hér eru svo nokkrir tenglar fyrir þá sem vilja ferðast: Stokkhólmur, Mílanó, Madríd og Zurich og svo pistill hér á H+H um London
Hönnunarstofan Camenzind Evolution er ábyrg fyrir hönnum flestra þessara vinnustaða. 

Google gefur starfsfólki lausan tauminn, hér má þurrka þvottinn sinn eða leika borðtennis í frjálslegu umhverfinu
Frjáls eins og fuglinn...
Frumlegar merkingar og stór opin rými
Babúskur baka rússneskar pönnukökur

Fundarstaðir eru afar óformlegir og af ýmsum gerðum.

 Flestar myndirnar eru héðan.



Saturday, February 18, 2012

Wright uppboðshús - Vinnuborð


GEORGE NELSON & ASSOCIATES 1948
Vefur WRIGHT uppboðshaldarans er hafsjór af fróðleik og mikið augnayndi. Þangað getur verið vafasamt að vafra nema maður hafi nægan tíma - hef oft brennt mig á því. Á vefnum eru upplýsingar og niðurstöður uppboða frá aldamótum, allt flokkað og með myndum. Væntanleg uppboð má nálgast hér og eldi uppboð eru hér.
Myndirnar eru af vinnuborðum frá 1950 eða þar um bil. Setti draumaborðið mitt efst - ég veit - tóm eigingirni, það er reyndar ódýrasta borðið á $ 5.313, greiðist við hamarshögg. Smellur á textan undir myndunum opnar upplýsingar hjá Wright.

GIO PONTI 1955

JEAN PROUVÉ 1947


Sunday, October 9, 2011

Stólafjör - Börnin í Valhúsaskóla hressa upp á umhverfið

Börnin í 7. bekk Valhúsaskóla unnu skemmtilegt og fræðandi verkefni í fyrra. Eftir margra ára notkun voru stólarnir í mötuneytinu orðnir snjáðir, illa farnir og langt frá því að vera augnayndi. Upp kom sú hugmynd að nemendurnir gætu sjálfir lappað upp á þá.  Móa og Ásta, kennarar í myndmennt og textíl, fræddu börnin um  endurnýtingu, sýndu þeim listaverk, nytjahluti og annað sem tengja mátti verkefninu. Í hópvinnu skiptust börnin á hugmyndum, ákváðu þema og hófu framkvæmdir. Efniviður kom úr safnveitu skólans en í hana fara endurnýtanlegir hlutir sem til falla - taubútar, plastdósir, pappír, bönd o.fl. frá allri starfsemi skólans m.a. skrifstofu og mötuneyti. Árangurinn er glæsilegur - 15 flottir stólar, hver með sitt nafn,  sem geta hresst upp á mötuneytið svo um munar. 
Mikilvægast er þó að hér tóku börnin þátt í að móta umhverfi sitt, fræðast um ýmislegt sem máli skiptir við mótun þess og þau gripu til aðgerða - og tókst frábærlega til. Enginn er of ungur eða gamall til að taka virkan þátt í að móta umhverfi sitt. Til marks um það má benda á smíðavelli barnanna sem hressa upp á umhverfi okkar á sumrin - stórkostleg og óheft byggingarlist -  öllum til gleði, ungum sem öldnum.
Á menningarhátíð Seltjarnarness 2011 var sett upp sýning á stólunum -"Stólafjör" - í Bókasafni Seltjarnarness og vöktu þeir mikla lukku. 



Kærar þakkir til Ástu og Móu fyrir myndirnar. Hönnun & hlutir ber ábyrgð á skuggunum skrítnu sem fylgja stólunum;-)

Thursday, September 15, 2011

Litríkur vinnustaður Skype í Stokkhólmi

Hjá Skype starfa rúmlega 500 manns.  Þegar litið er til  til þess að skráðir notendur Skype eru 929 milljónir í september 2011 virðist það alls ekki vera margt starfsfólk. 

Í Stokkhólmi starfa 100 manns á splunkunýjum vinnustað. Reyndar er byggingin "Münchenbryggeriet", eitt sinn stærsta brugghús Svíþjóðar,  reist 1846 en innviðirnir hafa nú verið aðlagaðir að hljóð- og  myndþróunardeild Skype. 

Hér eru nokkrar til að sýna litadýrðina. 
En það virðist engin vera mættur í vinnuna ennþá.



PG Arkitektur hannaði nýja vinnustaðinn.  Hann á að endurspegla þá hugmyndafræði að Skype sé nytsamleg en jafnframt skemmtileg tækni sem tengi heiminn saman. 


Hér má sjá skæra liti, tilvísanir í tölvutækni, starfsstöðvar af öllu tagi og skýið í Skype vörumerkinu notað á margvíslegan hátt m.a. í lampa, húsgögn og á skilveggi. 


Á flestum gólfum eru litríkar  teppaflísar lagðar í mynstur. 

Á vefsíðu PK Arkitektur eru fleiri myndir frá Skype í Stokkhólmi og öðrum verkefnum vinnustofunnar.


Monday, March 14, 2011

Náttúrufræðistofnun - nýtt hús og gersemar

Hús Náttúrufræðistofnunar í Urriðaholti • Hönnun: Arkís
Náttúrufræðistofnun sýndi landsmönnum nýja húsið sitt í Urriðaholti á laugardaginn (5/3/2011). Þangað komu næstum 4000 manns þrátt fyrir grenjandi rigningu og slagveður sem gerði menn næstum gegndrepa á leið milli bíls og húss. Óveðrið hafði þó þann kost að tækifæri gafst til að meta áhrif glerhjúpsins sem er utan á byggingunni og ekki var annað að sjá en að hann virkaði vel a.m.k. stóðu flestir gluggar opnir og létu sér lítið finnast um slagveðrið fyrir utan. Ég ímynda mér að á sólskinsdegi varpi  mynstrið á glerinu margbreytilegum skuggum inn í húsið. Gaman væri að koma aftur við slíkar aðstæður.
Að innan er umhverfið látlaust og bjart, litir eru ljósir og óvæntur litur við stigana virkar fínt. Húsið er skorið í sundur af tveimur gjám þannig að úr verða þrjár einingar og stigahúsin mynda brú á milli þeirra.  Þetta gengur vel upp og það er skemmtilegt að ganga bygginguna á enda og upplifa húsin þrjú sem eru hvert með sínu lagi. Þetta verður góður vinnustaður. 
Mikið var gleðilegt að sjá húsgögnin sem Náttúrufræðistofnun hefur flutt með sér í húsið. Þar eru margar gersemar og skilst mér að meira sé að finna í geymslum þrátt fyrir að töluvert hafi farið á Hönnunarsafnið.  Starfsmenn vissu heilmikið um húsgögnin og um þau spunnust skemmtilegar umræður m.a. vangaveltur um hvort þessi húsgögn hefðu varðveist ef stofnunin hefði haft efni á að kaupa nýtt á undanförnum árum. Það þarf reyndar að íhuga vel hvernig svona hlutum er stillt upp til að þeir njóti sín en mér sýnist þau vera að vinna í því t.d. eru nokkrar skrifstofur að taka á sig nútímalega 60's mynd. Náttúrufræðistofnun á lof skilið fyrir að varðveita húsgögnin og bjóða Hönnunarsafninu þau sem ekki eru notuð. Til hamingju með nýju heimkynnin.
Ég læt nokkrar myndir, sem ég tók í gegn um glugga því skrifstofurnar voru læstar, fylgja með ásamt vangaveltum um uppruna þess sem þær sýna.

Mynd 1. Innanstokksmunir og gersemar.
Efst: Skrifborð (1950-1960) framleiðandi: Gamla Kompanýið eða Kristján Siggeirsson. Ofan á borðinu eru kassar með flugum sem vildu endilega vera með á myndinni.
Miðja: 1. Hurð og gluggi að skrifstofum. 2. Tekk skrifborð og stóll (mynd 4). 3. Gamlar skúffur, liturinn bendir til að þær séu eftir Guðmund Kr. Kristinsson. 4. E60 stóll (framleiddur frá 1960 og ennþá vinsælasti stóll fyrirtækisins) frá Sóló Húsgögn. 
Neðst: 1. Stóll (mynd 2). 2. Innrétting (1963-1965), tekk, málaðar hliðar og stálprófill, hönnun: Guðmundur Kr. Kristinsson.  3. Stóll  (mynd 4).

Mynd 2. Skrifstofa (sama rými og á mynd 3).
Þetta er fínn stóll, flatstál, hvítar plastreimar, seta og bak með Salon áklæði frá Ullarverksmiðjunni Álafoss. Ég hafði samband við Hönnunarsafn Íslands til að grennslast fyrir um hönnuðinn. Harpa Þórsdóttir svaraði mér og segir stólinn án efa vera eftir bræðurna Jón (1916-2003) og Guðmund Benediktssyni (1920-2000), þeir hafi oft notað stál og plastreimar eins og í þessum stól, safnið á einnig útistóla eftir þá.



Mynd 3. Skrifstofa (sama rými og á mynd 2).
Staflanlegur stóll (1955+): 14 mm rör, tekk bak, seta með Salon áklæði frá Ullarverksmiðjunni Álafoss, hönnuður Jón Benediktsson (1916-2003), sennilega framleiddur hjá Stálhúsgögn. Skrifborð: tekk og stálprófill, málaðar hliðar á skúffum, Guðmundur Kr. Kristinsson. Skáparnir eru, eins og önnur nýrri húsgögn, Seria skrifstofuhúsgögn frá Á. Guðmundsson.

Mynd 4. Vinnurými / skrifstofa.
Stólar (1950-1960) sennilega frá sama stað og skrifborðið á mynd 1. Skrifborð: Undirstaða úr stálprófil, sýnilegur viður tekk, borðplata fest með messing hettuskrúfum, upphaflega framleitt hjá Helga Einarssyni en síðar hjá Á. Guðmundsson. Hliðarborð: Tekk og 15 mm stálteinn, Guðmundur Kr. Kristinsson. (1925-2001). Til hægri glittir í samskonar innréttingu og á mynd 1, eftir Guðmund.


Mynd 3. Skrifstofa.
Um stólinn veit ég lítið annað það að hann er ákaflega fallegur, stílinn mætti kenna við danska hönnuði. Ólíklegt er að hann sé smíðaður hér á landi. Borðið er samstætt við skrifborðið á mynd 1.

Mynd 4. Skrifstofa.
Þessi stóll er ekki mjög gamall en hann sómir sér vel með Seria skrifborðinu þó hann sé ekki alveg samkvæmt nýjustu tísku. 
Mynd 5. Skrifstofa.
Stóll (um 1970) úr krossviði, hönnuður Þorkell Guðmundsson, framleiðandi Á. Guðmundsson. Seria 2 skrifborð frá sama framleiðanda.


Sunday, February 13, 2011

Coca Cola - kennslurými í Mexikó

Litríkar kennslustofur Coke í Mexico. - Stærri myndir hér -
Coca Cola er að setja upp litla kennslustaði víða um heim. Sá fyrsti, sem hér er sýndur,  er í Mexico og hlaut viðurkenningu Interior Design Magazine árið 2009. Litrík umhverfi eru í miklu uppáhaldi hér á síðunni en þetta rými er einnig áhugavert vegna  þeirrar hugmyndafræði sem sem notuð er til að skipta því í svæði. Eins og  teikningin sýnir liðast veggir frjálslega umhverfis óreglulegan sexhyrning sem myndar einskonar torg í miðju rýminu. Að torginu liggja svo rými af ýmsu tagi, sem skipt er á sjónrænan hátt með litum.  Takið eftir hvernig græna línan á loftinu og gólfinu skiptir um hlutverk eftir því hvort stólunum er raðað yfir hana eða sitt hvoru megin við hana.

Hönnuðir :ROW Studio á Facebook
Skipulagið • Veggir "flæða" um rýmið • Engin 90° horn • Sexhyrningur og litir skipta því í svæði.


Monday, February 7, 2011

Vinnustaður verðbréfasala.

Í framhaldi af umfjöllun um litríka vinnustaði hjá Google og Facebook er hér sýndur annarskonar vinnustaður með önnur viðmið og aðrar þarfir starfsmanna. 
Hvítt, grátt og svart ræður ríkjum hjá verðbréfasölunum sem horf á list og hvíla sig vel 
Svart er litur undirgefni,  prestar klæðast svörtu - svart er einnig litur valds, lögreglan klæðist svörtu, og Dracula - svart er tímalaust, það fer aldrei úr tísku.
Hvítt er litur sakleysis, börn eru skírð í hvítu, unglingar fermast í hvítu, brúður klæðist hvítu - hvítt endurvarpar birtu en óhreinindi sjást vel - hvítt er litur dauðhreinsunar, sjúkrahús nota hvítt - hvítt er litur fjármálastarfsemi, innveggir Kaupþings eru (voru) hvítir.
Myndirnar eru af innviðum fjármálafyrirtækis í San Franscisco. Arkitektarnir Rottet Studio segja markmiðið hafa verið að skapa afslappandi umhverfi, sem væri eins og heimili en ekki skrifstofa, fyrir verðbréfasalana 14 sem þarna starfa. Rýmið var því hugsað sem "white box" þar sem efni, áferð og litur á að mynda hlutlausan bakgrunn á móti stöðugu áreiti tölvuskerma. Skrifstofurnar sex þjóna einnig sem lítil listasöfn  - vinnurýmið er, hinsvegar,  stórt listasafn. Hægindastólar með kollum í stíl gera svo verðbréfasölunum kleyft að hörfa til "heimkynna" sinna og hvílast (retreat into their “home” and relax").  
Því miður er enginn verðbréfasalana á myndinni - kannske eru þeir að hvíla sig  - svo ekki sést hvernig þeir klæðast en einhvern veginn sé ég þá ekki fyrir mér í brúnum skóm,  grænum flauelsbuxum og köflóttri flónelskyrtu.

Wednesday, February 2, 2011

Innanhúss hjá Facebook í USA

• Facebook er 1200 manna vinnustaður í 14.000 fermetra húsnæði •

Facebook flutti í nýtt 14.000 m2 húsnæði árið 2009. Innviði hússins hannaði arkitektastofan Studio o+a í nánu samstarfi við starfsmenn Facebook.  Kannað var hvaða væntingar og óskir starfsmenn hefðu til umhverfis og vinnuaðstöðu og þeir síðan hafðir með í ráðum á meðan framkvæmdin þróaðist. Húsnæðinu er skipt í deildir sem hver og ein hefur sérstakt yfirbragð, stór sameiginleg rými eru svo víðsvegar um húsið þar sem hægt er að vinna, matast eða spjalla. Starfsmenn eru hvattir til að taka virkan þátt í að gera vinnustaðinn persónulegan, m.a. með því að teikna og skrifa á veggi og færa til húsgögn eins og þeim hentar.  Samsetta myndin hér að ofan sýnir sameiginleg rými sem virðast ansi formleg, myndirnar sem eru hér eru öllu hressilegri og sýna andrúmsloftið á þessum 1200 manna vinnustað.  


Tuesday, February 1, 2011

Innanhúss hjá Banhof sem hýsir Wikileaks

• Höfuðstöðvar Banhof í Svíðjóð eru í neðanjarðarbyrgi frá tímum kalda stríðsins • Særri myndir hér  •

Í æsifréttum á vefnum er því haldið fram að höfuðstöðvar Wikileaks séu 30 metra undir yfirborði jarðar í sænsku neðanjarðrbyrgi frá dögum kalda stríðins. Fréttunum fylgja svo myndir þar sem höfuðstöðvum Wikileaks er líkt við James Bond. Þetta er ekki alveg rétt - einungis vefsíða og gögn Wikileakes eru geymd á þessum stað. Þarna eru, hinsvegar, höfuðstöðvar  Banhof, stærsta netfyrirtækis Svíþjóðar. Banhof tók við byrginu, sem var í mikilli niðurníðslu, árið 2006 og flutti inn árið 2008. Byrgið er nefnt Pionen, það er 1200 m2 að stærð, stendur á Vita Bergen í Stokkhólmi og er sprengt í granít berg.  
Það var Albert France-Landrid teiknistofan sem hannaði breytingarnar með það að markmiði að gera öruggan stað fyrir tölvubúnað og spennandi vinnustað fyrir starfsfólkið. Kannske minnir umhverfið á 007 en það minnir mig líka á stöðvarhús Laxárvirjkunnar sem ég ráðlegg öllum að skoða, það er glæsilegt.
Hér er hægt að fara í 3víddar ferðalag um svæðið


Monday, January 31, 2011

Innanhúss hjá Google í London

• Hjá Google í London, eins og sólbað í Brighton • Hér eru stærri myndir 

Það er víst sérstaklega frjálslegur vinnuandi hjá Google, vel hugsað um mannskapinn og allt gert til þess að fólki líði vel, góður ókeypis matur, nudd og líkamsrækt, frjáls vinnutími og skapandi umhverfi. Til að gefa umhverfinu sérstaka merkingu hefur Google þann sið að innrétta hvern stað með yfirbragði tengdu landinu sem það er í.  Nýlega tók Google í London nýtt húsnæði í notkun og við hönnun þess var vitnað í ströndina í Brighton. Strandhús og stórir skærlitir teningar hýsa fundaraðstöðu af ýmsu tagi og vinnuaðstöðu er m.a. hægt að búa sér í ekta klessubíl eða rauðum símaklefa. Það þarf ekki að segja meira um þetta, myndirnar tala sínu máli. Hér að ofan hef ég klippt saman myndir sem er hægt að skoða hverja fyrir sig hér. 


Friday, January 14, 2011

Litríkur listaháskóli

Loksins, loksins eitthvað í lit! Og það er ekki af verri endanum. Myndirnar eru af innviðum Listaháskóla í Bankok (Bankok Creative Center). Hér sjáum við þann hluta byggarinnar sem hýsir bókasafn, vinnustofur og sýningasvæði. Takið sérstaklega eftir marglitu veggjunum, þeir skipta um lit.  Hönnuðir eru Studio Supermachine, stofnað 2009 af thailenska arkitektinum Pitupong chaowakul. Stofan fæst við hönnun á öllum sviðum, þar hefur verið hannað allt frá flöskuopnara til verslunarmiðstöðva og stærri verkefna. Ekki fleiri orð um þetta, skoðið endilega myndbandið, það útskýrir vegginn.

 • Bankok Creative Center • Hönnun/Design: Studio Supermachine  •








• Myndbandið hér að neðan útskýrir hvernig litaveggurinn virkar •