Showing posts with label Stólar. Show all posts
Showing posts with label Stólar. Show all posts

Thursday, January 9, 2014

Upphaf stóla úr rörum




Marcel Breuer (1902-1981)  var 23 ára gamall þegar hann eignaðist og lærði á reiðhjól. Kynni hans af reiðhjólinu urðu til þess að hann fór að skoða efni og burðarþol þess nánar. Stýrið varð honum sérstakt umhugsunarefni og hann velti fyrir sér hvort hægt væri að smíða húsgagn með sömu aðferð - beygja það í einu lagi - helst án samsetningar og krómhúða það síðan. Þannig mætti hanna húsgagn sem væri í senn létt, sterkt og gegnsætt.
Hann gerði tilraunir með aðferðina og Wassily stóllinn fæddist. árið 1925, nefndur eftir einum af kennurum hans við Bauhaus skólann. Breuer þróaði aðferðina enn frekar og innan skamms gengu aðrir hönnuðir í spor hans og hönnuðu húsgögn úr beygðum rörum. Í dag, 90 árum síðar, er þetta sú aðferð sem mest er notuð við húsgagnaframleiðslu.
Wassily stóllinn (1925) var lengst af aðeins til í svörtu leðri. Aðferðum við að lita leður hefur fleygt fram og nú fæst hann í ótal litum 


Cesca (1928) stóll með og án arma er einungis framleiddur ljós og svartur.
Þeir sem óska sér Cesca stóls í lit eiga kost á bólstrun í hvaða lit sem er.


Smíðteikning af Cesca stól. Hann er örlítið breyttur í dag m.a. er hlutinn sem liggur við gólf ekki beygður uppi í miðjunni, í stað þess eru plast tappar undir honum. Mikið er um eftirlíkingar af Cesca með misjöfnum radius á beygjum rörsins.



Tuesday, November 26, 2013

Kampavínsstólar

Vinningshafinn Rockin`Chaise
Design Within Reach (DWR) er verslun sem selur klassíska hönnun á vefnum og í verslunum sínum, aðallega í Bandaríkjunum. Þar má finna mörg vel þekkt húsgögn, nýja og eldri hönnun, sem framleidd eru í dag. Á vefsíðu DWR er einnig margskonar fróðleikur um hönnun og hönnuði sem gaman er að skoða og bloggið þeirra er einnig áhugavert.
Öðru hvoru stendur DWR fyrir skemmtilegum uppákomum t.d. var efnt til óvenjulegrar  keppni um stólahönnun árið 2011 þar sem einungis mátti nota tappa, innsigli og merkimiða af kampavínsflösku til að hanna smástól. Fjöldi tillagna barst og hér eru birtar myndir af nokkrum þeirra. Tillögur sem komust í undanúrslit má svo sjá hér og vinningshafa hér.
Það þarf sem sé ekkert nema kampavínsflösku til að gera sér svona stól og það er jafn góð afsökun og hvað annað til að fá sér kampavín!


champagne chair

Án titils

Good girl, Club Chair!

Á titils

Champagne Twist - Royal French

Á titils
Án titils

Án titils



Thursday, August 22, 2013

Robin Day - Stóll 658


Stóll módel 658 var hannaður af Robin Day (1915-2010) fyrir Royal Festival Hall í London árið 1951. Bakið gerir stólinn sérstaklega athyglisverðan, bæði formgjöf og framleiðsluaðferð voru nýstárlegar á þessum tíma. Festingarnar á bakinu reyndust ekki vel svo stólnum var breytt þannig að bak og seta voru fest saman án rörana. Hlaut hann þá númerið 700 og var framleiddur þannig í nokkur ár. Í dag er hann mjög eftirsóttur og selst háu verði í uppboðshúsum. 
Það er löngu orðið tímabært að fjalla um hjónin Lucienne og Robin Day hér á síðunni og verður það mitt fyrsta verk eftir sumarfrí.


Stóll 658. Ekki er laust við að manni finnist stóllinn vera að hefja sig til flugs, það má líka ímynda sér að hann breiði út armana til að taka á móti notandanum.

Bakið er óvanalegt. Á þessum tíma voru hönnuðir að uppgötva þá möguleika sem fólust í formbeygðum við. 

Bakið er fest með þremur rörum. Þetta reyndist ekki nægjanlega traust festing, rörin vildu brotna eða beygjast. Stólnum var því breytt.
Hér er svo Model 700. Þegar vel er skoðað á hann fátt sameiginlegt með 658 nema armana og grunnform baksins því setunni hefur einnig verið breytt, hún er öðruvísi í laginu, það vantar hallan að framan, og stóllinn er bæði grynnri og mjórri en forveri hans númer 658. Það er alltaf spurning hvenær um er að ræða nýtt eða endurbætt húsgagn, enda fékk hann nýtt númer. Þeir eru báðir fínir, hvor á sinn hátt.

Heimsins mest selda stóll o.f.l. eftir Robin Day má sjá hér
myndir: modernroom og google


Sunday, June 9, 2013

"Bowl Chair" endurborinn.



Ítalsk-brasilíski arkitektinn Lina Bo Bardi hannaði "Skálar stólinn" (Bowl Chair) árið 1951 fyrir húsið sitt í Brasilíu. Á teikningu virðist stóllinn einfaldur - aðeins fimm línur -  sætisskálin er hálfhringur , undirstaðan lárétt lína og tvær skásettar fyrir fæturna. Sagt hefur verið að skálin sé í raun innblásin af kókoshnetu. Í einfaldleika sínum er þetta samt margbrotinn stóll og krefst smíði hans mikillar vinnu,  til dæmis var skálin smíðuð úr málmi sem var mótaður með því að hita hann og berja til - eins og í eldsmiðju.

Lina skildi ekki eftir sig nákvæmar teikningar  eða mál af  stólnum og þegar húsgagnaframleiðandinn Arper fékk leyfi til að smíða 500 eintök af honum í tilefni sýningar á verkum Linu var honum vandi á höndum. Spurningin var þessi: Hvernig er hægt að smíða hluti með nútíma tækni en vera samt trúr frumútgáfunni og hönnuðinum. Niðurstaða Arper var að ef formið og notagildið er það sama og í frumútgáfunni sé í lagi að aðlaga smíðina að nýrri tækni og byggir Arper niðurstöðu sína m.a. á tilvitnun í Linu: „Að staðla er að útvíkka möguleika - að gefa fjöldanum kost á því sem ella væri eingöngu fáeinum aðgengilegt". 

Málmlskelin hefur því vikið fyrir skel úr plasti og svampi og nútíma aðferðir eru notaðar til að sníða og sauma áklæðið, þó alltaf fylgi því töluverð handavinna. Eftir þetta er áferð stólsins fínlegri, áklæðið situr betur og samsetningar eru gallalausar. 

Vafalaust sýnist hreintrúarfólki sitt hvað um þessa niðurstöðu en víst er að stóllinn er afar fallegur og notagildi hans hefur ekkert breyst, ennþá er skelin laus ofan á undirstöðunni og því hægt að hreiðra um sig í henni á margvíslegan hátt, hallandi,  lárétt eða eins og hverjum hentar. Og svo er hann einstakt augnayndi.

Lina Bo Bardi var fjölhæfur listamaður sem fékkst meðal annars við arkitektúr, húsgögn, leikhús, myndskreytingar og sýningarstjórn. Hún var ein þeirra kvenna sem vann í skugga karlana, sem drottnuðu yfir öllu sem hönnun snerti og eignuðu sér meira að segja verk kvennanna sem unnu með þeim, en hún lét eftir sig glæsileg verk eftir farsælan feril. Sýningin á verkum hennar er skref í þá átt að rétta hlut kvenna sem fengust við hönnun á þessum tíma.
Skálarstóllinn "Bowl Chair" ótrúlega einföld en rökrétt form.
Skálin situr laus ofan á undirstöðunni og henni má snúa á alla vegu -  og hún staflast.
Teikning Lina Bo Bardi. Fimm línur duga til að teikna hliðarmynd af stólnum en það má sjá að ýmislegt hefur verið hugsað á annan hátt en á endurgerðinni t.d. frágangurinn að ofan
Fallegur hvar sem á hann er litið


Tuesday, June 4, 2013

Nanna Ditzel - kona í starfi karla.

Barnastóllinn - uppáhalds stóllinn minn - var hannaður 1955 og upphaflega framleiddur úr Oregon furu en síðar úr beyki. Hann er því miður ekki framleiddur í dag en fæst á uppboðsmörkuðum fyrir 600-700 evrur.




Nanna Ditzel (1923-2005) var ein örfárra kvenna sem starfaði við húsgagnahönnun í Danmörku um miðja tuttugustu öldina en á þessum árum voru það aðallega karlar sem unnu það starf. Nú er öldin önnur og fleiri konur en karlar útskrifast á sviðum tengdum húsgagnahönnun. Til marks um þetta er Félag húsgagna- og innanhússarkitekta þar sem konur eru í miklum meirihluta og fjölgar stöðugt. Enn óvenjulegra á þessum árum var að Nanna lærði húsgagnasmíði áður en hún hóf nám í húsgagnahönnun við Listiðnaðarskólann í Kaupmannahöfn, þaðan sem hún útskrifaðist árið 1946  - aðeins 23 ára gömul.
Hún stofnsetti þegar í stað teiknistofu með eiginmanni sínum Jörgen Ditzel. Hann lést, aðeins 40 ára að aldri árið 1961 og næstu árin starfrækti Nanna teiknistofuna ein, ásamt því að ala upp þrjú börn, til ársins 1968 en þá flutti hún til London og giftist á ný. í London stofnuðu þau hjónin listmuna- og húsganaverslunina Interspace í Hampstead - verslun sem er hönnuðum í Bretlandi af góðu kunn - og Nanna sinnti áfram hönnunarstafinu. Dvölin í London varð 15 ár en hún flutti aftur heim til Danmerkur þegar eiginmaður hennar lést árið 1985. Þar starfaði hún til dauðadags árið 2005 - þá 82 ára. 
Nanna Ditzel var öflugur hönnuður, tilbúin til að takast á við ögrandi verkefni og kanna nýjar leiðir í efnisnotkun og tækni. Trefjaplast, keramik, vefnaður, gúmmí, silfur og gull - allt lék þetta í höndum hennar og verkefnalistinn var langur. Til dæmis má nefna að hún hannaði 150 hluti fyrir Georg Jensen samtímis því að sinna húsgagnahönnun ötullega.  Mörg verk hennar eru í framleiðslu og fyrir löngu orðin klassísk  t.d. hefur Hallingdal áklæðið, eitt vinsælasta áklæði í Evrópu, verið framleitt í 58 litum frá árinu 1964.
Stíll Nönnu var fágaður og einkennist af öryggi og þekkingu á efninu sem unnið er með. Vafalaust kemur þar að einhverju til  kvenlegt innsæi en ljóst er að þekking hennar á húsgagnasmíði átti þar stóran þátt - þess bera smáatriðin sem hún nostraði við merki. Engu er ofaukið í hönnun hennar og á seinni árum urðu form og efnisnotkun einfaldari og efnisminni svo jaðrar við minimalisma án þess þó að falla beinlínis undir þá skilgreiningu, manni verður ósjálfrátt hugsað til japanskrar hönnunar. Fáeinar myndir segja auðvitað lítið um svo yfirgripsmikið ævistarf en á vefnum Nanna Ditzel má sjá hve víða hún kom við.
Bekkur fyrir tvo (Bænk fo to),  samvinnuverkefni með Fredericia árið 1989, vann japanska samkeppni 472 húsgagna. Bekkurinn er smíðaður úr örþunnum (1.5mm) flugvélakrossviði  með silkiprentuðum röndum. Rendurnar ljá bekknum munstur sem virðist vera á stöðugri hreyfingu.
Vel þekkt húsgagn Nönnu er þetta borð frá 1958. Það var framleitt í þremur viðartegundum með þremur og fjórum skúffum. Svona borð eru seld fyrir 7-9000 dollara á uppboðsmörkuðum í dag.

Oda stólinn hannaði Nanna með Jörgen eiginmanni sínum árið 1953. Viðar armarnir setja afar sérstakan  svip á stólinn en fyrirkomulag þeirra gerir að það verkum að stóllinn umfaðmar notandan á óvanalegan hátt. Árið 2001 var framleiðsla Oda stólsins hafin á ný hjá Brdr. Petersens

Tappatogari 1957. Hannað fyrir Georg Jensen 1957. Handfangið reyndist svo þægilegt að sama lag var notað á aðalhurð verslunar Georg Jensen í Östergade.


Trinidad stóllinn er í dag eitt af söluhæstu húsgognum Nönnu, mánaðarlega seljast meira en 1000 eintök af honum. Mynstið og nafnið er innblásið af útskurði sem heillaði Nönnu í Trinidad. 
Hangandi körfustóll Nönnu og Jörgens er stundum kallaður "Egg stóll" enda gefur formið tilefni til þess. Hann er teiknaður árið 1959 og getur ýmist hangið í lofti eða á sérstakri málm grind.

Copenhagen bekkinn má sjá víða en alveg örugglega í Tívoí. Hann er úr steypujárni og tekk og framleiddur í dag hjá Forms´Surfaces.



Sunday, June 2, 2013

Skeljastóllinn - Síðbúið 20. aldar íkon.

"Stóll er ekki tilbúinn fyrr en einhver situr í honum" (Hans J. Wegner)

Hans J. Wegner hannaði Skeljastólinn (Shell Chair) fyrir húsgagnaframleiðandan Carl Hansen & Søn árið 1963 en fyrir þá hafði hann teiknað marga vinsæla stóla, allt frá því að leiðir lágu saman árið 1949..
Skeljastóllinn átti að vera einstakur, framsækinn, þægilegur og á viðráðanlegu verði. Við hönnun stólsins notaði Wegner eiginleika krossviðar til hins ítrasta en á þessum tíma voru margir að gera tilraunir með húsgögn úr krossviði með misjöfnum árangri. 
Niðurstaðan var svo sannarlega framsækin og ólík nokkrum öðrum stól nema ef vera mætti stól Eames frá 1946, en vissulega gengur Wegner enn lengra í meðferð viðarins og stóllinn hans hefur aðeins þrjá fætur.
En stóllinn öðlaðist ekki vinsældir og aðeins 15 eintök voru framleidd - síðustu tveir stólarnir voru meira að segja gefnir - svo dræm var salan. Það var því sjálfgefið að hætta framleiðslunni.


Það kom því flestum í opna skjöldu þegar Sotheby’s uppboðshúsið í London seldi tvo Skeljastóla á 20.000- sterlingspund stykkið árið 1997. Carl Hansen & Søn voru fljótir að taka við sér og hefja framleiðslu Skeljastólsins á ný en salan var enn dræm - stóllinn þótti of framúrstefnulegur. Smám saman tók þó framleiðslan við sér og stóllinn fór að seljast og hljóta verðlaun um allan heim.
Í dag - 50 árum síðar - er þessi stóll talin til eins af íkonum hönnunar 20. aldarinnar. Það sannast því að góðir stólar geta þurft langa meðgöngu.
Í tilefni 50 ára afmælisins völdu Hella Jongerius og Paul Smith saman liti og áklæði frá Maharam á tuttugu stóla á sýninguna The Shell Chair Project. Myndirnar að ofan eru af nokkrum þeirra. 


Skeljastóll Hans J. Wegners er stundum kallaður "Brosstóll (Smile Chair)" af augljósum ástæðum

Með þrjá fætur og hugvitsamlega gert burðarkerfi - en það má líka hugsa sér eitthvað dýr þegar horft er á hliðina.




Friday, February 22, 2013

Nýlendustóllinn

Safari stóll Kaare Klint er sennilega best þekkta afbrigðið

Þverslárnar hengja allt saman
Stóllinn gengur undir tveimur nöfnum: Nýlendu- og Safaristóllinn. Bæði nöfnin benda til uppruna hans en hann var hannaður fyrir enska herforingja sem þjónuðu í Indlandi. Hann er léttur og einfalt er að taka hann í sundur í tólf hluta sem auðvelt er að flytja. Uppbygging er einföld - sex þverslár sem mjókka til endana og falla í göt í fótunum. Bak, seta og leðuról draga svo hlutana saman þegar setið er í stólnum - þeim mun betur sem notandinn er þyngri. Þetta er snjöll lausn vegna þess að viðurinn er á hreyfingu og þegar hann dregst saman, t.d. í miklum hita, gengur hann einfaldlega lengra inn í gatið og stóllinn hangir alltaf saman. 
Reyndar er misjafnt hve vel samsetningin virkar. Sumir stólarnir eru hannaðir þannig að setan togar stólinn sama á langveginn en bakið á þverveginn en á  öðrum er setan fest á allar fjórar hliðarnar - hvort tveggja hefur sína kosti og galla.
Það er ekkert mjög þægilegt að sitja í þessum stól nema með púða á setunni.
Stóll Arne Norel - setan fest á fjórar hliðar
Hönnuður upprunalega stólsins er ekki þekktur en stóllinn hefur veitt mörgum innblástur og til er fjöldi afbrigða, þar eru best þekktir stólar Kaare Klint (1933) og Arne Norel (ca.1960). Samsvarandi, en af allt öðrum toga, eru Wassily (1925) stóll Marcel Breuers og Basculant (1928) stóll Le Corbuiser, sem er reyndar hannaður af Charlotte Perriand sem vann með Corb. Annars er auðvelt að ímynda sér þennan stól meðal frumbyggja sem þurftu að nýta það sem hendi er næst án margra verkfæra, svo hann gæti át uppruna sinn að rekja langt aftur í aldir.


Sviss ættað afbrigði


Le Corbusier - ekki hægt að fella saman en uppruni formsins er augljós





Marcel Breuer - ýmislegt er sameiginlegt með Safari stólnum þó langt sé á milli

Thursday, February 21, 2013

Barcelona stóllinn

Barcelona stóllinn dregur nafn sitt af því að hann var hannaður fyrir sýningarsvæði Þjóðverja á Heimssýningunni í Barcelona árið 1929. Arkitektinum Mies van der Rohe var falið að hanna stól sem hæfði jafnt konungi, svikara eða sendiherra. Hönnunin mætir vafalaust þessum kröfum þó deila megi um hvort svikara hæfir jafn fínn og dýr stóll og þessi. Sumir svikarar hafa þurft að setjast í óþægilegri stól sem enginn situr nema einu sinni í. 
Vandlega pólerað stál og 72 skrúfur
Flest húsgögn Mies van der Rohe eru þung og krefjast mikillar vinnu við smíðina.  Þessi stóll gefur ekkert eftir hvað það varðar, pólerað gegnheilt stálið, sem myndar Xlaga stell, er haglega soðið saman, slípað og pólerað. Sjötíu og tvær skrúfur þarf til að festa borðana undir setunni og seta og bak er handsaumað úr fjörutíu einingum af leðri. Fyrir utan smávægilegan saumaskap undir setunni er stóllinn handsmíðaður. Útlit stólsins gefur ekki þessa miklu vinnu til kynna við fyrstu sýn en ef vel er að gáð, skoðað undir púða, stólnum velt við og forvitni svalað skilur maður þetta betur.
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á framleiðsluháttum, stellið er nú úr ryðfríu stáli og setan úr svampi í stað hamps og hrosshára. Hvort tveggja gerir stólinn endingarbetri svo það bitnar ekki á gæðum hans. 
Aðalframleiðandi Barcelona stólsins er Knoll en margar eftirlíkingar eru framleiddar. Allskonar málaferli hafa verið í gangi vegna stólsins og er þar ýmist Knoll að stefna vegna eftirlíkinga eða einhver að stefna Knoll til að fá úr því skorið hvort 50 ára tilkall til höfundarréttar sé ekki liðið.

Barcelona stóll með skammelli



Stóll innblásinn af sög

Rammasög með strekkisnúru
Þessi stóll frá 1966 hangir saman á einföldu lögmáli - strekkt snúra og slá - líkt og sög úr viðar-ramma með snúru sem strekkir sagarblaðið, enda var það sögin sem gaf hönnuðinum hugmyndina. 
Þetta er einskonar fellistóll -  þegar hann er tekin í sundur, með því að slaka á snúrunni,  er sköftunum fjórum og slánni rúllað inn í segldúkinn sem myndar sæti og bak og þá er hægt að bera hann undir hendinni eða á öxlinni á milli staða. Sundurtekinn telur hann átta sjálfstæða hluti; fjögur sköft, tvo segldúka, strekkislá og kaðall. Enginn málmur er í honum. Til að kóróna allt er þetta sennilega þægilegasti fellistóll sem völ er á. 
Stóllinn er oftast nefndur "Sav stolen". 
Hönnuðurinn og húsgagnasmiðurinn Ole Gjerlov-Knudson (f 1930) stundaði nám við Listiðnaðarskólann í Kaupmannahöfn þar sem hann varð síðar kennari og rektor við húsgagnadeild skólans 1967.


Losa snúruna og hann leysist upp í átta frumeiningar.

Myndir: lauritz.com