Showing posts with label Menntun. Show all posts
Showing posts with label Menntun. Show all posts

Thursday, January 16, 2014

Rendez-wood? í Listaháskólanum


Seaweed Collector eftir Sigurjón Axelsson
Rendez-wood? verkefni nemenda í hönnun við Listaháskólann er einstaklega áhugavert, enda hefur það farið víða um bloggheima og fjölmiðla. Afrakstur þess er ekki aðeins fallegur heldur er öll úrlausn verkefnisins - hugmynda- og aðferðarfræði, vídeó, vefsíða og kynning -  til fyrirmyndar hvar sem á er litið, enda stóð einvalalið að verkefninu. Nafnið Rendez-wood? er lika skemmtilegur orðaleikur með orðið „rendezvous" sem þýðir „stefnumót".
Verkefninu er lýst vel á vef Listaháskólans en þar segir:

„Ísland var skóglaust land í margar aldir eftir að kjarr og birkiskógar eyddust af völdum landnámsmanna. Nú í dag er skógrækt þó loksins komin vel á veg og fleiri tré eru gróðursett á ári miðað við höfðatölu þjóðar, en á nokkrum öðrum stað í heiminum. Spáð er að á komandi áratugum muni Ísland öðlast sjálfbærni í viðarframleiðslu og er því brýnt að hefja rannsókn á staðbundnum við og möguleikunum á notkun hans í hönnun.Á Rendez-wood? var sýnd röð verka ásamt kynningarefni á bæði- ljósmynda- og myndbandsformi en verkefnin eru öll innblásin af íslenskri náttúru og eiga það sameiginlegt að vinna með „low-tech“ og primitivísk konsemt þar sem einblínt er á þörf nútímamannsins til þess að tengjast náttúrunni enn á ný." 
Þeir nemendur sem tóku þátt í verkefninu eru: Anna Guðmundsdóttir, Katrín Magnúsdóttir, Thelma Hrund Benediktsdóttir, Ágústa Sveinsdóttir, Búi Bjarmar Aðalsteinsson, Sigurjón Axelsson og Björk Gunnbjörnsdóttir.
Kennarar: Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir, Dögg Guðmundsdóttir og Hafsteinn Júlíusson. Fagstjóri í vöruhönnun er Garðar Eyjólfsson.
Smellið á nafn höfundar til að fara á hans svæði á vef Rendez-wood? þar sem fræðast má um verkefnin. Vídeóin eru hæfilega stutt og segja heilmikið um verkin.


Björk Gunnbjörnsdóttir:  GONE BAKING „ Hot spring baking experience"

Anna Guðmundsdóttir: BURN BOWL  „Primitive outdoor cooking experience"

Katrín Magnúsdóttir: INFUSE  „Container for a refreshing experience"

Sigurjón Axelsson: SEAWEED COLLECTOR „A connection between two worlds"


Ágústa Sveinsdóttir: SPIL  „Lowtech playful accessories"
Thelma Hrund Benediktsdóttir: STICK AROUND  „Walking stick as a body rest" 
Búi Bjarmar Aðalsteinsson: VERY LIGHT  „For a world in need of sustainable energy"



Sunday, September 30, 2012

Úr skóginum - 12 sæti Royal College


Eins manns bátur til að tylla sér í

Royal College of Art lagði sinn skerf til London Design Festival 2012. Í Victoria & Albert safninu sýndu nemendur skólans 12 stóla á sýningunni "Out of the Woods". Verkefnið var víðfeðmt og fól í sér, auk hönnunar, athuganir á umhverfisáhrifum, endingu og framleiðsluaðferðum. Ennfremur voru samdar sögur eða ljóð um hvern stól: "Adventures of Twelve hardwood Chairs".
Harðviðurinn í stólana er amerískur en þeir vor smíðaðir hjá Benchmark í Englandi.
Nemendurnir slógu upp tjaldbúðum garðinum hjá Sir Terence Conran, sem oft en kenndur við Habitat, en hann er einn af eigendum Benchmark. Þar höfðu þau bækistöðvar á milli þess sem unnið var við smíðina í trésmiðjunni. Hér má lesa um Conran fyrirtækin
Oft er sagt að mynd segi meira en orð en í þessu tilfelli á það ekki við. Að baki hvers stóls liggja vangaveltur sem ómögulegt er að tjá nema í orðum - og myndum. Á vef core77.com er ágæt umfjöllun um verkefnið sem vert er að lesa, þar er einnig að finna fleiri myndir.


"Tree Furniture" 


Monday, July 30, 2012

Make It Happen á Egilssöðum

Ég spái því að Make It Happen, ráðstefnan sem haldin verður á Egilsstöðum 25-28 September, verði skemmtileg. Það er þvert á þá þá ályktun sem draga má af ótrúlega hástemmdri kynningu á vef Hönnunarmiðstöðvar - skapandi samfélag og verkferlar, menningarverkefni á jaðarsvæðum, innleiðing skapandi hugsunar - svona hágali er yfirleitt garantí fyrir leiðindum.
Endanleg dagskrá ekki tilbúin ennþá en í drögum að henni má sjá að á Make It Happen skiptast á fyrirlestrar, rútu- og skoðunarferðir og skemmtun í hæfilegum hlutföllum í þrjá daga. Þetta gæti orðið skemmtilegasta hönnunar-ráðstefna Íslands.
Flott framtak!

Make It Happen: http://make.is/makeithappen/
Þorpið:              http://make.is/



Wednesday, June 20, 2012

Einn stóll í viku í Köben

Allt frá skissum og hugmyndavinnu til endanlegra vinnuteikninga

Svona verkefni væri gaman að taka þátt í! Í síðustu viku barst einmitt til tals á milli nokkurra kunningja að gagnlegt væri að hafa öflugt námskeið í húsgagnahönnun við hönnunardeild Listaháskólans og þetta verkefni er fínt dæmi. Stólahönnun er margslungin og módel og skissur segja í raun lítið um stólinn, það verður að þreifa á honum og setjast í hann, ein gráða til eða frá getur gert gæfumuninn. Það er einnig mjög gagnlegt að æfa sig módelsmíði.
Verkefnið var unnið af fjórða árs stúdentum við hönnunardeild Listaháskólans í Kaupmannahöfn undir handleiðslu prófessors og arkitektsins Nicolai de Gier, Deane Simpson og Jesper Pagh, árið 2011. Stúdentarnir smíðuðu, hver fyrir sig, einn stól á viku. Í hverri viku fengu þeir að kynnast nýju efni til að vinna úr. Áhersla var lögð á að aðferðafræði (konseptið) frekar en en handverk, enda verið að kenna hönnun frekar en smíði, þó smíðin sé ágæt viðbót. Þegar upp var staðið höfðu 78 stólar verið smíðaðir, margir hverjir með frábærum árangri. 
Gefin var út greinargóð bók með umfjöllun um hvern stól fyrir sig og er hægt að skoða hana hér. Þar sjást nöfn allra höfunda stólana sem hér eru sýndir og fleiri til. Meðfylgjandi myndir eru úr bókinni.
Hluti stólanna en alls eru þeir 78
Flott smíði á góðum stól


12 stólar í viðbót - skoða alla hér
Þarfagreining fyrir stól

Og svo er bara að setjast of "hygge sig"

Sunday, June 17, 2012

Listasmiðja í Mílanó - Kossaflens


Kossaflens "Filematologia" í Fabbrica del Vapore, Apríl 2012
Karl og kona sitja á Panton stólum og eru að gera hvað? Verkið nefnist "Filematologia" en það munu vera vísindi sem fjalla um  kossa frá sjónarmiði líffræðinnar. Hér er stuttur texti sem skýrir innihald verksins. Þeir sem vilja sökkva sér í líffræði kossa geta skoðað krækjurnar hér að neðan :-)
Verkið var á samsýningu ungra hönnuða í Fabbrica del Vapore, gamalli verksmiðju sem  framleiddi sporvagna,  í Mílanó. Húsakosti verksmiðjunnar hefur nú verið breytt í listasmiðju fyrir unga listamenn - listasetur æskunnar - með góðri vinnuaðstöðu og  sýningarsvæði. Reglulaega er boðið til viðburða sem sýna þann gríðarlega sköpunarkraft sem leysist úr læðingi þegar ungu fólki er sköpuð viðunandi aðstaða til að vinna að hugðarefnum sínum.
Nokkur áhugaverð verkefni frá   verða sýndar hér á síðunni á næstunni. Á þessu myndbandi sést sýningarsvæðið og Alessandro Mendini segir frá verkefninu, mjög áhugavert jafnvel þó maður skilji ekki Ítölsku.
Hér er annað verkefni frá Fabbrica del Vapore.

Hann og hún sitja á "Hennar stól og Hans stól" og gera sig klár í kossinn.

Romeo of Júlía - Rómantískasti koss allra tíma?
Verk: Enski málarinn Frank Bernard Dikcksee
Blákaldar staðreyndir um kossa:

Pilemathology Made Easy 



Saturday, October 22, 2011

Tools at Schools - Nemendur í 8. bekk hanna skólahúsgögn

Á meðan nemendur í 7. bekk Valhúsaskóla unnu "Stólafjör" og flikkuðu upp á gamla stóla úr tilfallandi efni unnu 44 nemendur í 8. bekk grunnskóla, sem starfræktur er við Kolumbíuháskóla, að svipuðu verkefni. Þar var fjárhagur og aðstaða rýmri og því hægt að ganga enn lengra í fræðslunni. 
Glæsileg skólahúsgögn hönnuð af unglingum fyrir unglinga

Verkefnið Tools at Schools" var unnið í samvinnu við tvö heimsþekkt fyrirtæki, hönnunarstofuna Aruliden og húsgagnaframleiðandann Bernhardt Design. Það stóð í 25 vikur og skilaði undraverðum árangri. Aðstandendur verkefnisins fullyrða að allir skólar geti náð sama árangri með vönduðum undirbúningi.
Fataskápar með segulspjaldi og póstlúgu á hurðinni - Viður og mildir litir gera húsgögnin hlýlegri

Verkefnið sem lagt var fyrir nemendurna fólst í því að skoða og meta aðstæður og hluti sem þau umgengust í skólanum sínum og hanna svo kennslustofu framtíðarinnar eins og þau sjá hana. Ekkert smá verkefni.

Hirslan í borðplötunni rúmar ýmislegt t.d. blóm og bækur.
Sæti stólsins er fjaðrandi og á grindinni er hægt að geyma ýmislegt.



Verkefnið var sett upp í alvöru hönnunarferli, þarfagreining, rannsóknir, frumgerðir í skissum, 3vídd og módelsmíði. Hönnuðirnir leiðbeindu nemendunum og miðluðu upplýsingum og fróðleik um allt hvaðeina sem hönnun snertir. Framleiðandinn tók svo við og smíðaði hlutina sem börnin hönnuðu. Niðurstaðan er þessi glæsilegu húsgögn sem nú hafa verið sýnd á söfnum og sýningum og vakið mikla athygli á verkefninu. 
Stoltir hönnuðir við nýju skólahúsgögnin sín

Hér er hægt að skoða nokkur áhugaverð myndbönd um verkefnið
.

Sunday, October 9, 2011

Stólafjör - Börnin í Valhúsaskóla hressa upp á umhverfið

Börnin í 7. bekk Valhúsaskóla unnu skemmtilegt og fræðandi verkefni í fyrra. Eftir margra ára notkun voru stólarnir í mötuneytinu orðnir snjáðir, illa farnir og langt frá því að vera augnayndi. Upp kom sú hugmynd að nemendurnir gætu sjálfir lappað upp á þá.  Móa og Ásta, kennarar í myndmennt og textíl, fræddu börnin um  endurnýtingu, sýndu þeim listaverk, nytjahluti og annað sem tengja mátti verkefninu. Í hópvinnu skiptust börnin á hugmyndum, ákváðu þema og hófu framkvæmdir. Efniviður kom úr safnveitu skólans en í hana fara endurnýtanlegir hlutir sem til falla - taubútar, plastdósir, pappír, bönd o.fl. frá allri starfsemi skólans m.a. skrifstofu og mötuneyti. Árangurinn er glæsilegur - 15 flottir stólar, hver með sitt nafn,  sem geta hresst upp á mötuneytið svo um munar. 
Mikilvægast er þó að hér tóku börnin þátt í að móta umhverfi sitt, fræðast um ýmislegt sem máli skiptir við mótun þess og þau gripu til aðgerða - og tókst frábærlega til. Enginn er of ungur eða gamall til að taka virkan þátt í að móta umhverfi sitt. Til marks um það má benda á smíðavelli barnanna sem hressa upp á umhverfi okkar á sumrin - stórkostleg og óheft byggingarlist -  öllum til gleði, ungum sem öldnum.
Á menningarhátíð Seltjarnarness 2011 var sett upp sýning á stólunum -"Stólafjör" - í Bókasafni Seltjarnarness og vöktu þeir mikla lukku. 



Kærar þakkir til Ástu og Móu fyrir myndirnar. Hönnun & hlutir ber ábyrgð á skuggunum skrítnu sem fylgja stólunum;-)

Thursday, August 25, 2011

Steve Jobs - "How to live before you die"


Frétt dagsins: Steve Jobs hefur ákveðið að draga sig í hlé frá starfi sínu fyrir Apple. 
Árið 2005 ávarpaði hann stúdenta Stanford Háskóla við skólaslit. Titillinn er áhrifamikill "How to live before you die" og ávarpið stendur fyllilega undir honum. Fróðlegt er að heyra hvernig Jobs þakkar velgengni Macintosh m.a. því að hafa hætt í skóla og hafa lært skrautskrift. Boðskapurinn er: "Fylgdu draumum þínum".
Hér er ávarpið í tilefni dagsins, Njótið.




Sunday, July 3, 2011

"New Designers" og "One Year On" sýningar í London

Business Design Centre er til húsa í verndaðri byggingu frá 1861
New Designers sýningin í London er spennandi vettvangur fyrir nýja hönnuði og fyrirtæki sem leita nýrra hugmynda og samstarfs.Þar koma saman ríflega 3500 nýútskifaðir hönnuðir frá 200 breskum menntastofnunum á öllum sviðum, með nýjar og ferskar hugmyndir, tilbúnir að takast á við ný verkefni. Þarna hafa margir þekktir hönnuðir stigið sín fyrstu spor til farsældar. Sýningin er líka einskonar námsstefna þar sem fjöldi fyrirlestra og námskeiða um hvaðeina sem viðkemur heimi hönnunar er í boði
Sýningin, sem nú er haldin í 36. skipti, fer fram í London Business Design Centre í Islington, einstakri byggingu frá 1861 sem smellpassar við allan sköpunarkraftinn. Hún er kostuð af framsýnum fyrirtækjum sem sjá þarna tækifæri til að koma á samstarfi milli hönnuða og framleiðenda. Ótrúlegur uppgangur hönnunar og gríðarlegt framboð hönnuða þýðir hinsvegar að hart er barist um verkefnin. 
Samhliða New Designers er One Year On sýningin. Þar sýna 50 hönnuðir sem stofnað hafa fyrirtæki á síðastliðnu ári. Þarna gefst frábært tækifæri til að koma afurðum fyrirtækisins á framfæri. Ekki komast allir að því sérstök dómnefnd velur þátttakendur. Íslenska hönnunarteymið FærID hlotnaðist sá heiður að vera valið til þáttöku í þetta skiptið og er ástæða til að óska þeim til hamingju með það og góðs gengis. Lítillega var fjallað um FærID hér á Hönnun & hlutir.


Sýningarnar standa  frá 29. júní til 9. júlí

Frá uppsetningu sýningarinar


Myndir: New Designers á Facebook
.
.

Wednesday, May 25, 2011

Iðnskólinn í Hafnarfirði - Vorsýning 2011

Nokkrir hlutir á Vorsýningu 2011
Iðnskólinn í Hafnarfirði var fyrstur íslenskra skóla til að setja á stofn hönnunardeild árið 1990. Seinna bættist hönnunardeild við Iðnskólann í Reykjavík og svo loks við Listaháskólann.  Frá upphafi hefur aðsókn verið mikil og í vetur taldi deildin um  100 nemendur á öllum aldri, sá elsti um sjötugt. Námið er góður undirbúningur fyrir framhaldsnám í listum eða hönnun og hefur nemendum gengið vel að fá skólavist  hér heima og erlendis. 

Í mörg ár hefur skólinn sett upp sýningu á verkum nemenda í lok skólaárs. Myndirnar hér að ofan eru frá Vorsýningu 2011. Hún stendur til 29. maí og er opin frá klukkan 13:00-16:00

.
.

Saturday, April 23, 2011

Listaháskólinn - Útskriftarsýning 2011 - Vöruhönnun

fr
Verk vöruhönnuða á útskriftarsýningu Listaháskólans
 Útskriftarsýning nemenda myndlistardeildar og hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskólans opnaði í dag (23.4.2011) í Hafnarhúsi. Í ár eru 72 útskriftarnemendur sem sýna þar verk sín, 53 í hönnunar- og arkitekúrdeild og 19 í myndlistardeild. Það var mikið fjör og gleði í loftinu enda blasir nú framtíðin við með nýjum tækifærum. Í dag var margt fólk að skoða sýninguna, enda er þetta dagurinn sem vinir, ættingjar, afar og ömmur mæta til að fagna með listamanninum nýútskrifaða.
Og ég mætti líka með myndavélina til að skrá stemminguna en vélin neitaði að taka myndir, enda var rafhlaðan í hleðslutækinu heima. Svei mér þá, maður ætti að þegja yfir svona afglöpum. Ég mynda á morgun enda þarf töluverðan tíma til að skoða allt, byggingarlistin er t.d. tímafrek. Hér eru nú samt myndir - hönnunardeildin var auðvitað með "Press kit" á disk með myndum og upplýsingum um vöruhönnuðina átta sem útskrifast í ár og úthlutaði mér einum. Flott framtak hjá þeim.
Myndir og upplýsingar hér að neðan eru fengnar af diskinum. Hér eru myndir af verkunum sem þau sýna í Hafnarhúsinu ásamt textanum sem þau hafa skrifað um verkin. Í nokkrum tilfellum eru einnig myndir ef eldri verkum. Og svo það sem mestu skiptir: hvar hægt er að ná til þeirra.

Vinsamlega hafið samband ef eitthvað má betur fara, hér er póstfangið



Almar Alfreðsson - almar.is
Hugföng  - Almar Alfreðsson
Hugföng eru geometrísk form sem gerð eru til að örva ímyndunarafl barna á skemmtilegan hátt. Útlit þeirra er byggt á mismunandi samsetningum þrí- og fimmhyrninga sem fylgja reglum um gullinsnið. Hugmyndin er fólgin í því að leggja saman nokkur form, þá opnast möguleikar á tugi mismunandi útkomna þar sem ímyndunaraflið ræður ferðinni. Inni í hverju formi eru seglar sem gera þessar samsetningar mögulegar á einfaldan en jafnframt spennandi hátt. Hugföng koma í þremur mismunandi útgáfum og inniheldur hver þeirra sjö ólík form. Innblástur verksins kemur úr æsku hönnuðar sem einkenndist meðal annars af miklum áhuga á Star Wars og ofurhetjum.

Friðrik Steinn Friðriksson - fridriksteinn.is

Mark/mið  • Mark/mið (hluti)
Á Brú • Koya - Friðrik Steinn Friðriksson

Markið er fornmunur, hefur ekki breyst í meira en hundrað ár. Hvaða áhrif hefur nýtt form? Verður knattspyrna að öðrum leik ef umgjörð hennar breytist? Breytingin sjálf er í ættboga knattarins, formfræði hans. Form marksins er fengið úr hyrningum boltans og samspil þess við hann því meira.


Helga Ragnheiður Jósepsdóttir - www.helgajoseps.com
Hi! Jewlery (2009)  • Kjötkrókur (2009) • HispaNordicTable (2008)
Bubblumublur - 
Helga Ragnheiður Jósepsdóttir
Bubblumublur draga jarðhitann upp á yfirborðið og mynda þannig mannvænt hverasvæði; samkomustað sem yljar bæði sálinni og skrokknum.

Inga Dóra Jóhannsdóttir • www.spoi.is
Bátt Blóð matarsett - 47-8 mjólkurkanna - Inga Dóra Jóhannsdóttir

Tignarfók fyrr á öldum óttaðist smitsjúdóma og greip til ýmissa ráða til að koma í veg fyrir þá. Matur var geymdur, borinn fram og snæddur af silfri, því silfur hefur þann eiginleika að eyða bakteríum. Þessi ofnotkun á silfri olli því að silfuragnir sátu eftir í líkama fólks og lituðu hörund þess blátt. Blátt Blóð er matarsett úr postulíni, skreytt snertiflötum úr silfri.


Sigríður Þóra Árdal • www.sigridurardal.com
Flow & company vörur - Sigríður Þóra Árdal

Í heimi flæðandi forma er allt mögulegt. Litríkar verur af óræðum uppruna opna sýn inn í ævintýraheim. Flow and company er vörulína unnin úr þessum myndheimi sem settur hefur verið fram í vefnaði og veggfóðri.


Tinna Jóhannsdóttir - tinnatinna@gmail.com
Jafnvægi / Bollar (2009) - Hvörf ljós -Tinna Jóhannsdóttir
Hvörf er ljós sem sýnir gang sólar á heilu ári; frá sólstöðum á sumri til sólhvarfa á vetri. Ljósmagnið minnkar og eykst í öfugu hlutfalli við sólargang; er mest þegar dagur er stystur og minnst þegar náttúrulegrar birtu nýtur daglangt.

Silja Ósk Þórðardóttir - www.siljaosk.is
Lovísa, Munda og Veiga hirslur - Silja Ósk Þórðardóttir
Við tengjumst hlutum sem okkur er annt um; persónugerum þá. Lovísa, Munda og Veiga eru í senn hirslur fyrir þessa hluti og sjálfstæðar persónur sem hver og einn túlkar á sinn hátt – strengjabrúður sem tengjast eiganda sínum órjúfanlegum böndum í gegnum sögurnar sem þær varðveita fyrir hann.


Unnur Valdís Kristjánsdóttir - www.leynivopnid.is
Ljós fyrir Gunnhildi - Unnur Valdís Kristjánsdóttir

Ljós fyrir Gunnhildi er verkefni innblásið af sögu Gunnhildar Eyþórsdóttur sem fluttist ung kona til Kairó árið 1945 og þurfti að takast á við lífið í framandi menningarsam félagi. 
.
.

Thursday, December 16, 2010

Barnaskólar um víða veröld

Hér má sjá börn í skólum við ýmsar aðstæður. Myndirnar eru víða að; Indland, 

Kambódia, Rússland, Bretland, USA og víðar.

Menntun er ekki allsstaðar sjálfsögð og aðstæður eru æði misjafnar, eins og sjá má.


Ef textinn er truflandi þá er til einföld lausn:
Bara skoða tvisvar og einbeita sér að myndum og tónlist í seinna skiptið!