Showing posts with label Íslensk hönnun. Show all posts
Showing posts with label Íslensk hönnun. Show all posts

Thursday, January 16, 2014

Rendez-wood? í Listaháskólanum


Seaweed Collector eftir Sigurjón Axelsson
Rendez-wood? verkefni nemenda í hönnun við Listaháskólann er einstaklega áhugavert, enda hefur það farið víða um bloggheima og fjölmiðla. Afrakstur þess er ekki aðeins fallegur heldur er öll úrlausn verkefnisins - hugmynda- og aðferðarfræði, vídeó, vefsíða og kynning -  til fyrirmyndar hvar sem á er litið, enda stóð einvalalið að verkefninu. Nafnið Rendez-wood? er lika skemmtilegur orðaleikur með orðið „rendezvous" sem þýðir „stefnumót".
Verkefninu er lýst vel á vef Listaháskólans en þar segir:

„Ísland var skóglaust land í margar aldir eftir að kjarr og birkiskógar eyddust af völdum landnámsmanna. Nú í dag er skógrækt þó loksins komin vel á veg og fleiri tré eru gróðursett á ári miðað við höfðatölu þjóðar, en á nokkrum öðrum stað í heiminum. Spáð er að á komandi áratugum muni Ísland öðlast sjálfbærni í viðarframleiðslu og er því brýnt að hefja rannsókn á staðbundnum við og möguleikunum á notkun hans í hönnun.Á Rendez-wood? var sýnd röð verka ásamt kynningarefni á bæði- ljósmynda- og myndbandsformi en verkefnin eru öll innblásin af íslenskri náttúru og eiga það sameiginlegt að vinna með „low-tech“ og primitivísk konsemt þar sem einblínt er á þörf nútímamannsins til þess að tengjast náttúrunni enn á ný." 
Þeir nemendur sem tóku þátt í verkefninu eru: Anna Guðmundsdóttir, Katrín Magnúsdóttir, Thelma Hrund Benediktsdóttir, Ágústa Sveinsdóttir, Búi Bjarmar Aðalsteinsson, Sigurjón Axelsson og Björk Gunnbjörnsdóttir.
Kennarar: Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir, Dögg Guðmundsdóttir og Hafsteinn Júlíusson. Fagstjóri í vöruhönnun er Garðar Eyjólfsson.
Smellið á nafn höfundar til að fara á hans svæði á vef Rendez-wood? þar sem fræðast má um verkefnin. Vídeóin eru hæfilega stutt og segja heilmikið um verkin.


Björk Gunnbjörnsdóttir:  GONE BAKING „ Hot spring baking experience"

Anna Guðmundsdóttir: BURN BOWL  „Primitive outdoor cooking experience"

Katrín Magnúsdóttir: INFUSE  Container for a refreshing experience"

Sigurjón Axelsson: SEAWEED COLLECTOR „A connection between two worlds"


Ágústa Sveinsdóttir: SPIL  „Lowtech playful accessories"
Thelma Hrund Benediktsdóttir: STICK AROUND  „Walking stick as a body rest" 
Búi Bjarmar Aðalsteinsson: VERY LIGHT  „For a world in need of sustainable energy"



Friday, February 8, 2013

Hús í Happdrætti DAS

Happdrætti DAS var stofnað 1954 og fór fyrsti útdráttur fram í júlí það ár. Dregnar voru út 6 bifreiðar af  þeim 9 sem fluttar voru inn til landsins í það sinn, en á þessum tíma voru margskonar viðskiptahöft, boð og bönn í gildi sökum gjaldeyrisskorts.
Miðarnir voru prentaðir í fánalitunum. 
Ásgeir Ásgeirsson, þáverandi forseti landsins, tók við fyrsta miðanum sem seinna skilaði honum plötuspilara í vinning. 
Á fyrst árunum voru vinningarnir af mörgu tagi s.s. glæsibifreiðar, góðhestar, trillur, landbúnaðartæki, farmiðar til utanlandsferða og seinna komu raðhús og einbýlishús. Fyrsta DAS-húsið dregið út áðið 1956, íbúð í raðhúsi við Ásgarði í Reykjavík, þá að verðmæti 350.000 krónur.
Húsin voru sýnd almenningi og reyndust sýningarnar svo vinsælar að takmarka þurfti aðgang sumar sýningarhelgar. Þetta voru merkilegar sýningar að því leyti að húsin voru sýnd fullbúin með nýjustu húsgögnum og vönduðum innréttingum. Þarna var því kjörið tækifæri til að sjá hvað var í tísku. Á veggjum voru oftast myndverk eftir Atla Már (höfund Ópal pakkans).
Töluvert af myndum er til frá sýningunum m.a. á vef Happdrættis DAS þaðan sem flestar meðfylgjandi myndir eru fengnar. Það er áhugavert að skyggnast inn í húsin og geta í húsbúnaðinn og hönnuði hans og eru þessar myndir verðmætar heimildir um slíkt. Skrifarinn sem hér situr kann ekki skil á öllu því sem er á myndunum - gaman væri ef þeir sem þekkja til einhvers sendu okkur línu svo bæta megi upplýsingum um hluti sem á þeim eru.


Einbýlishús við Reynilund í Garðabæ 1971
Stóll (Mini) og ljós Gunnars Magnússonar, Ruggustóll og borð eftir Helga Hallgrímsson, eikar skápur frá Kristján Siggeirsson hf.

Íbúð í fjölbýlishúsi við Nóatún Reykjavík 1959.
Rafha eldavél, Sindrastólar og borð, Hansa hillur, sandblásið gler, bólstraður skenkur með harðplasti og málm lista. Flottir lampar.
Hæð í tví- eða þríbýlishúsi í Safamýri í Reykjavík 1962 .
Ofn í vinnuhæð, litir á skápum, tekktímabilioð hafið.

Einbýlishús við Brúarflöt í Garðabæ 1970

Hæð í tvíbýlishúsi við Vogaland í Reykjavík 1972
Þorkell Guðmundsson: Stuðla skilrúm, raðsófi og (sennilega) borðsofuhúsgögn. Gunnar Magnússon: Apollo húsgögn. Jón Ólafsson og Pétur B. Lúthersson: Hekla lampi.




Wednesday, December 19, 2012

Skötuveisla

Þorláksmessa nálgast og það styttist í skötuveisluna. Hér eru þrjár skötur annars eðlis. Þær eru hannaðar af Halldóri Hjálmarssyni húsgagnaarkitekt árið 1959. Sú fremsta er komin til ára sinna, 39-53 ára gömul, hinar tvær eru yngri, framleiddar hjá Sólóhúsgögn þar sem þeir sem ekki þola Skötu úr sjó geta náð sér í eina.
Það er reyndar meira um Skötu hér, þetta er bara jólahugleiðing :-)


Saturday, October 6, 2012

Sturla Már Jónsson - húsgögn 1987-2014




________________________________________________________
Sturla Már Jónsson 
húsgagna- og innanhússarkitekt fhi


Vefsíða Sturlu með upplýsingum um húsgögn og hönnun hans 1987 til dagsins í dag.



________________________________________________________



Saturday, August 11, 2012

Nautn og notagildi í Listasafni Árnesinga

Sýningarstjórarnir:
Anna Jóa og Elisabet V. Ingólfsdóttir
"Nautn og notagildi" heitir sýning sem stendur til 16. 09.2012 í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Þarna hafa sýningarstjórarnir Anna Jóa og Elísabet V. Ingvarsdóttir sett upp sýningu sem stendur framar öllum hönnunarsýningum síðastliðinna ára. Áhorfendur ættu að horfa á uppsetninguna ekki síður en gripina því það er mikil list að setja upp svona fína sýningu. Glæsilegt. 
Ekki missa af þessari sýningu. Það er eitthvað fyrir alla að skoða, ágætt kaffi prýðileg aðstaða fyrir börnin og þarna er alltaf tekið vel á móti manni. Strætó stoppar við safnið, leið 51 og 52. Opið daglega á milli kl. 12 og18.

Hér er texti af vef listasafnsins:
"Efnt er til samræðu verka eftir á annað hundrað höfunda í þeim tilgangi að kanna snertifleti milli myndlistar og hönnunar á Íslandi. Sýningin spannar tímabilið frá öðrum áratug síðustu aldar til samtímans og felur því í sér yfirlit myndlistar- og hönnunarsögu þar sem víða liggja saman þræðir. Áherslur eru meðal annars fólgnar í sýningarumgjörð sem skírskotar til heimilisins. Heimilið er vettvangur þar sem mætast hlutir úr heimum myndlistar og hönnunar; hlutir er gefa tilverunni merkingu sem gjarnan er á óræðum mörkum nautnar og notagildis. Á sýningunni er sjónum beint að slíkum mörkum – en jafnframt að því landamæraleysi sem gjarnan einkennir samtímann – og skyggnst er eftir þeim sköpunarkrafti sem brýtur af sér höft og skilgreiningar" 
Frá sýningunni

Myndir:
efst: af vef Hönnunarmiðstöðvar - af sýningarstjórunun: mbl.is - aðrar myndir fengnar af vef Listasafns Árnesinga.






Friday, March 23, 2012

Hönnunarmars 2012 - Sindrastóllinn H-5 framleiddur á ný

Á pallinum er Sindrastóll frá 1962, við gluggan nýir stólar, skammel og borð Guðbjargar Magnúsdóttur.
Fremst sést í sófa og borð eftir Guðbjörgu og fjærst glittir í Þórshamar Halldórs Hjálmarssonar.
Eitt af því sem mikla athygli vekur á sýningu húsgagnaframleiðenda í Sjóminjasafninu á Granda er endurgerð H-5 Sindrastólsins eftir Ásgeir Einarsson, sem fjallað er um hér. Það eins og allir þurfi að máta þennan stól og sjá má æskuglampa í augum þeirra sem eldri eru þegar þeir minnast samveru sinnar við hann á árum áður, enda var hann vinsæl fermingargjöf og  algengur á heimilum.
Það eru GÁ Húsgögn og Sólóhúsgögn sem framleiða stólinn í tilefni 50 ára afmælis hans. Hann er alíslenskur, öll smíði og bólstrun, meira að segja tapparnir undur fótunum og svo auðvitað gæruskinnið. Flottur.
Guðbjörg Magnúsdóttir hefur teiknað fallegt borð sem fer afar vel við stólinn. Hún hefur einnig teiknað fínt borð við Skötu og Þórshamar Halldórs Hjálmarssonar sem Sólóhúsgögn framleiðir. 



Wednesday, March 21, 2012

Hönnun í beinni - Boðskort



Og þá er komin tími til að fagna! 
Eins og í upphafi var lofað þá endar þetta brall með frumsýningu og "léttum veigum". Hér er boðskortið, vonandi sjáumst við sem flest. Kærar þakkir fyrir samveruna og innleggin.



Sunday, March 11, 2012

Hönnun í beinni

Undanfarna daga hefur verið fylgst með lokahönnun og prufusmíði á stól á Facebook síðunni okkar.
Eftir helgi bætist svo annar stóll við og e.t.v. eitthvað fleira. Umfjöllunin verður flutt hingað á síðuna þegar tími gefst til.
Stólarnir verða frumsýndir á Hönnunarmars 2012 sem fer fram 22-25 mars og auðvitað er þér boðið.



Thursday, February 9, 2012

Mannfreð Vilhjálmsson - Villi-traktor

Villi-traktor
Í Villa-traktor má sjá snilli frábærs arkitekts saman komna í einum litlum hlut, sem halda má á með annari hönd. Hér er allt sem til þarf - ekkert meira - sett saman þannig að það virðist augljóst. En í því fellst einmitt snilldin.
Sagan bak við hönnunina er sú að meðan á húsbyggingu Manfreðs stóð á Álftanesinu varð Vilhjálmur sonur hans sex ára. Manfreð teiknaði þennan grip handa honum og Vilhjámur faðir hans smíðaði hann úr mótakrossviði sem af gekk.


Viðtal við Mannfreð Vilhjálmsson: Fréttablaðið

Friday, October 21, 2011

Gamlir stólar og Skólahús í Grenivík

Gamlir skólastólar í smíðastofu Grenivíkurskóla
1. Í smíðastofunni - 2 og 4. Með vel þekktum félaga - 3. Stóllinn staflast mjög vel
Í Grenivíkurskóla komum við auga á þessa gömlu skólastóla í sumar. Þeim var snyrtilega staflað upp við vegg í smíðastofunni og það fór ekki á milli mála að þeir eru enn í notkun, þrátt fyrir háan aldur. Svona stóll hefði frá mörgu að segja, gleði, sorgum, sögum og söng, gæti hann talað - hver veit nema einhver hafi hæfileika til að ná sambandi. En þeir segja einnig hverjum sem vita vill ýmislegt áhugavert. Ef þeir hafa verið fyrstu stólar í "Gamla skólanum", sem er nokkuð líklegt, eru þeir 86 ára gamlir. Vera má að eitthvað hafi verið lappað upp á þá meira en með málningu en samsetningar, rör og tréverk eru í góðu ásigkomulagi. 
Um tíma mátti víða sjá svona stóla á flækingi en það er óvanalegt að sjá þá enn í notkun.
Gamlir en standa fyrir sínu þó ekki séu þeir samkvæmt stöðlum, enda enginn fullkomin skólastóll til.

Þetta eru einfaldir en sterkir stólar, hæfilega þungir og þeir staflast vel. Sé litið á hlutföll sést að þeir henta ekki vel til setu við borð, til þess er of mikill halli á setu og baki, sethæð passar fullvöxnum (kannske voru fleiri stærðir) og hátt bakið veitir lítinn stuðning. Þetta eru hin dæmigerðu vandamál skólastóla allra tíma - einnig í dag. Til gamans er hér teikning sem sýnir tvær algengar stærðir nútíma skólastóla - Rautt= stór, blátt= miðlungs.  Hér má sjá annan gamlan skólastól með forvitnileg hlutföll.

Gamli skólinn í´Grenivík  eftir Rögnvald Ólafsson 1925
Gamla skólahúsið í Grenivík var tekið í notkun árið 1925. Það var teiknað af Rögnvaldi Ólafssyni (1884-1917) arkitekt. Í því voru tvær kennslustofur og samkomusalur með senu. Í þessu húsi var skólahald og samkomuhús Grýtubakkahrepps til 1981, nú er skrifstofa Grýtubakkahrepps þar til húsa. 


Rögnvaldur var fyrsti Íslendingurinn sem nam byggingarlist og fyrsti nútíma húsameistarinn sem Íslendingar eignuðust. Meðal bygginga sem hann hannaði eru Pósthúsið í Reykjavík, Húsavíkurkirkja og Vífilsstaðahælið, ein mesta bygging landsins á þeim tíma, þar lést Rögnvaldur aðeins 43. að aldri árið 1917. 

Hér er góð grein um Rögnvald Ólafsson eftir Gísla Sigurðsson í Morgunblaðinu 1973.

.
.

Monday, August 15, 2011

Halldór Hjálmarsson - Stóllinn SKATA

Stóllinn SKATA séð frá öllum hliðum - greinilegur skyldleiki við nöfnu henna hér að neðan
Halldór Hjálmarsson húsgagnaarkitekt hannaði stóllinn SKATA árið 1959. Stóllinn átti því 50 ára afmæli árið 2009. Tilvísun formsins í fiskitegundina Skötu er augljós og þjóðleg en fleira kemur til. Enskt heiti skötu er "Ray" en það voru einmitt hjónin Charles og Ray Eames sem  voru frumkvöðlar formbeygðra stóla. Hér er því einnig tilvísun í nafnið Ray.

Fyrirmyndin
Formbeygðir stólar virðast einfaldir, ein skel, einhverskonar fætur og úr verður stóll. Auðvitað er þessu ekki svo farið. Það tók hönnuði og verkfræðinga áratugi að finna ásættanlega aðferð til að gera formbeygðan stól. Mótið sem stóllinn er beygður í er flókin og nákvæm smíði. Því er aðdáunarvert að Halldór skyldi leggja í að smíða slíkt mót, það hlýtur að hafa tekið á og kostað miklar vangaveltur. Hugvitsamlega hönnuð festing fóta undir skelina á sér sennilega ekki hliðstæðu - engin skrúfa eða hlíf til að hylja festingar - einungis ein falleg festing úr mjúku gúmmíi. Allir hlutar stólsins, formbeygð skelin, fætur og gúmmífestngar voru smíðaðir hér heima. Stóllinn SKATA var framleiddur frá 1959 til 1973. Þá lagðist framleiðslan af og því miður mun mótið hafa glatast. Það hefði verið mikil fengur fyrir Hönnunarsafnið að eignast það.

SKATA gekk í endurnýjun lífdaga þegar Sólóhúsgögn hófu smíði hennar á ný árið 2007. Þar er hún framleidd í nokkrum viðartegundum og litum. Í tilefni afmælisins voru smíðuð 50 tölusett eintök sem seld eru hjá Hönnunarsafni Íslands.
Svört, tekk, hnota eða beyki - SKATA sómir sér vel hverju sem hún klæðist

Halldór Hjálmarsson (1927-2010) lærði húsgagnasmíði á smíðastofu föður síns í Reykjavík. Hann nam húsgagnahönnun við listiðnaðarskólann í Kaupmannahöfn 1953-1956 og  voru lærifeður hans Poul Kjærholm, Hans J. Wegner og  Axel Bender Madsen. Að loknu námi stofnaði hann sitt eigið húsgagafyrirtæki en vann auk þess hjá Húsameistara Reykjavíkur. Húsgögn Halldórs voru afar fínleg eins og sjá má hér. Meðal verka hans eru innréttingarnar á kaffihúsinu Mokka við Skólavörðustíg.

Þrjár Skötur - sú fremsta er upprunaleg, 38-52 ára gömul, og ber sig bara vel miðað við aldur

Flottar mjúkar festingar vernda stólana þegar þeim er staflað 




Saturday, August 6, 2011

Berg - Menningarhús í Dalvík

Menningarhúsið Berg í Dalvík
Fögur fjallasýn - efnisval og form mynda fína samsvörun við umhverfið
Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli er haldinn hátíðleg í Dalvíkurbyggð í dag, fyrsta laugardag eftir Verslunarmannahelgi.  Búist er við meira en 30.000 gestum á hátíðina í ár. Þar verða því margir á ferð enda margt að skoða.
Um helgina eru líka tvö ár frá því að Sparisjóður Svarfdælinga afhenti bæjarbúum menningarhúsið "Berg" til afnota, þann 5. ágúst 2009. Í húsinu er aðstaða fyrir menningarstarfsemi af öllu tagi , Bókasafn Dalvíkur, upplýsingamiðstöð, 180 manna fjölnota salur sérhannaður fyrir tónlistarflutning, kaffistofa og aðstaða fyrir sýningar. 
Þetta er flott hús, efnisval og formgjöf frumleg og í góðu samræmi við staðsetninguna. Úr kaffistofunni má njóta útsýnis yfir Eyjafjörð og af pallinum, sunnanvert við húsið, sést til fjalla - þar er líka áhorfendabrekka ef einhver vill performera á pallinum. Flæðandi formið sem myndar kaffistofu og forrými að sal og bókasafni mun vera byggt á smáranum, merki sparisjóðanna. Þeir sem eiga leið um Dalvík ættu að líta við í Bergi, þar líður manni vel.
Fanney Hauksdóttir arkitekt hjá AVH á Akureyri hannaði húsið og á heiður skilinn fyrir. Þeir sem vilja leita húsa hennar á Akureyri og víðar ættu að líta eftir húsum með turni, þeir eru í miklu uppáhaldi hjá Fanneyju. Skemmtilegt.

Flæðandi formið er byggt á smáranum, merki sparisjóðanna
Salur og kaffistofa - skemmtilegar andstæður
Á kaffistofunni - Eyjafjörður og  stóllinn "Skata" eftir Halldór Hjálmarsson


Monday, June 13, 2011

"Hlutirnir okkar" - sýning í Hönnunarsafni Íslands



Það ættu allir að gera sér ferð í Hönnunarsafnið og skoða sýninguna "Hlutirnir okkar". Þar er að finna áhugaverða muni -  íslenska og erlenda - nýja og gamla - handverk og hönnun er í fyrirrúmi og sagan svífur í loftinu. Hér á síðunni verður væntanlega fjallað um sýninguna en hið fornkveðna "Sjón er sögu ríkari" er í fullu gildi. Opið 12-17 nema mánudaga - ókeypis á miðvikudögum.
.
.

Sunday, June 12, 2011

Helgi Hallgrímsson - Ruggustóll 1968

Ruggustóll 1968 - Helgi Hallgrímsson húsgagnaarkitekt fhi
Stóllinn mun hafa verið smíðaður af Ingva Victorssyni í nokkrum
tugum eintaka og bóstraður af Ásgrími P Lúðvíkssyni.
Helgi Hallgrímsson (1911 - 2005) stundaði nám við Listiðnaðarskólann í Kaupmannahöfn að loknu sveinsprófi í húsgagnasmíði. Skólafélagar hans voru m.a. Skarphéðinn Jóhannsson (1914-1970), Hans Wegner, Børge Mogensen og Jens Risom. Allir áttu þeir eftir að hafa mótandi áhrif á norræna bygginga- og  húsganagerðarlist, hver á sinn hátt. Að loknu námi árið 1938 hélt Helgi til hálfs árs námsdvalar í Þýskalandi.

Hann var fyrstur íslenskra húsgagnaarkitekta til að setja upp sjálfstæða teiknistofu í Reykjavík árið 1938 og því sannur brautryðjandi íslenskrar hönnunar. Um tíma (1941-1946) rak hann einnig, ásamt öðrum,  húsgagnavinnustofu sem framleiddi húsgögn og innréttingar eftir teikningum hans. Árið 1940 hóf hann kennslu við Iðnskólann í Reykjavík. Þar var hann yfirkennari og gengdi starfi skólastjóra ef svo bar við til 1985. 

Helgi átti farsælt samstarf við fjölda arkitekta. Hann teiknaði m.a. húsgögn og innréttingar fyrir hús Hæstaréttar (1949), Landsbankann á Selfossi og Múlaútibú Landsbankans í Reykjavík, Ingólfsapótek í Fischersundi og Reykjalund. Eitt af fyrstu verkefnum hans hefur væntanlega verið að teikna litla matstofu, Uppsalakjallarann, í  húsinu Uppsölum í Aðalstræti 18, gegnt Herkastalanum. Eins og við mátti búast var verkið snyrtilega af hendi leyst - brjótsklæðning úr birki krossvið og reyklitir speglar fyrir ofan svo rýmið virtist stærra. 

Helgi var áhugasamur um félags- og fræðslumál. Hann var einn af stofnendum Félags húsgagnaarkitekta árið 1955 og heiðursfélagi í Félagi húsgagna- og innanhússarkitekta. Saga húsgagna var honum hugleikin og 1991 kom út bók hans " Stíll húsgagna", hin fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Í bókinni er m.a. að finna yfirlitskafla um íslenska húsgagnagerð.
.
Heimild: Morgunblaðið 1.sept."98, viðtal við Helga - 
Myndir: Scandinavian Design, Taschen 2002 - Sýningarskrá "Húsgögn 1961"
.

Bætt við 13. október 2011:
Dr. Arndís S. Árnadóttir hönnunarsagnfræðingur flutti fróðlegan fyrirlestur um verk Helga Hallgrímssonar Í Hönnunarsafninu 10. október 2011. Það er gott til þess að vita að svo greinagóðar heimildir hafi verið teknar saman um verk Helga, sem eru ótrúlega mörg, fjölbreytileg og vönduð. Við þetta tækifæri afhenti fjölskylda Gunnars Magnússonar, húsgagnaarkitekts, Hönnunarsafninu eintak af ruggustól Helga til varðveislu. Gunnar og Helgi voru vinir og samstarfsmenn við Iðnskólann í Reykjavík í áratugi.


Sunday, May 29, 2011

Gunnar Magnússon "61-"78 - Sýning í Hönnunarsafni Íslands

Sýningin "Gunnar Magnússon "61-"78" í Hönnunarsafni Íslands

Áhalhabakkar
Á morgun 29.5.2011 lýkur sýningu Hönnunarsafnsins á húsgögnum eftir Gunnar Magnússon. Ásdís Ólafsdóttir sýningarstjóri og Gunnar leiddu gesti um sýninguna í dag. Þetta var einstaklega skemmtileg leiðsögn því með í för voru bæði eiginkona Gunnars, Guðrún Hrönn, og Tinna dóttir þeirra. Fjölskyldan deildi með okkur ýmsu skemmtilegum atvikum sem snerta verk Gunnars og vinnu. Þar sannaðist rækilega að meira liggur að baki hugverki en það sem augað nemur við fyrstu sýn. Mikið lán fyrir sýningargesti að velja einmitt þennan dag.
Mikið af íslenskum húsgögnum hefur farið forgörðum, jafnvel svo að einungis er vitað um fáein eintök af húsgögnum sem þó voru framleidd í stóru upplagi. Einn aðili henti t.d. tugum Appollo stóla skömmu fyrir sýninguna. Það er kannske ljótt af mér að benda á það núna þegar skaðinn er skeður - stólarnir hefðu væntanlega selst á nokkur hundruð þúsund krónur - stykkið! Tökum þetta sem víti til varnaðar og umgöngumst hluti með virðingu. Vonandi vekja sýningar af þessu tagi fólk til vitundar um verðmæti sem það kann að hafa á milli handa. Hönnunarsafnið og Ásdís sýningarstjóri eiga hrós skilið fyrir framtakið og uppsetningu sýningarinnar.


Haganlega gerðar samsetningar á húsgögnum Gunnars Magnússonar.
Frágangur og samsetningar á húsgögnum Gunnars eru fallegar. Oftast er enga skrúfu að sjá -  samskeytin eru hluti af hönnuninni  - gerð af þekkingu og virðingu fyrir handverkinu.


Myndir : Morgunblaðið, gagnasafn • Tímarit Iðnaðarmanna • timarit.is • Hönnun & hlutir
.
.