Showing posts with label Hitt og þetta. Show all posts
Showing posts with label Hitt og þetta. Show all posts

Wednesday, April 23, 2014

Endalok?

Hæ, ég er að reyna að gera mér grein fyrir því hvort tími gefst til að halda áfram að blogga hér. Það er skemmtilegt en töluverð vinna að standa í þessu en nú er líka meira að gera í vinnunni og hún verður að hafa forgang.
Þetta hefur aðallega verið gert til að stytta mér stundir og deila með öðrum en þegar langt er á milli færslna verður síðan ekki lifandi og þá eins gott að gera upp hug sinn og annað hvort finna tíma til að halda áfram eða láta staðar numið. Tek mér að minnsta kosti frí í nokkra mánuði til að hugsa málið.
Engin breyting verður á Facebook síðunni, hún verður áfram í gangi með reglulegum póstum. Sama á við um Pinterest, þar verður haldið áfram að safna saman hlutum og tenglum á íslenska hönnuði.
Takk til allra sem litið hafa við á síðunni, vonandi hefur einhver hafi haft gaman af.

Hér er svo netfangið ef einhver vill hafa samband:  honnunoghlutir@gmx.com




Tuesday, November 26, 2013

Kampavínsstólar

Vinningshafinn Rockin`Chaise
Design Within Reach (DWR) er verslun sem selur klassíska hönnun á vefnum og í verslunum sínum, aðallega í Bandaríkjunum. Þar má finna mörg vel þekkt húsgögn, nýja og eldri hönnun, sem framleidd eru í dag. Á vefsíðu DWR er einnig margskonar fróðleikur um hönnun og hönnuði sem gaman er að skoða og bloggið þeirra er einnig áhugavert.
Öðru hvoru stendur DWR fyrir skemmtilegum uppákomum t.d. var efnt til óvenjulegrar  keppni um stólahönnun árið 2011 þar sem einungis mátti nota tappa, innsigli og merkimiða af kampavínsflösku til að hanna smástól. Fjöldi tillagna barst og hér eru birtar myndir af nokkrum þeirra. Tillögur sem komust í undanúrslit má svo sjá hér og vinningshafa hér.
Það þarf sem sé ekkert nema kampavínsflösku til að gera sér svona stól og það er jafn góð afsökun og hvað annað til að fá sér kampavín!


champagne chair

Án titils

Good girl, Club Chair!

Á titils

Champagne Twist - Royal French

Á titils
Án titils

Án titils



Tuesday, November 19, 2013

Element - ílát á mörg hundruð vegu

Element ílát frá vitamin

38 einingar til að raða saman

Allskonar tölvustýrð vinnsla og framleiðsla hefur breytt starfsumhverfi hönnuða og listamanna mikið. Nú býðst prentun í 3vídd, geislaskurður á allskonar efnum, fræsing og rennsla og svo mætti lengi telja. Galdurinn er að kunna að nýta þessa möguleika á hugvitsamlegan hátt.
Ílátin sem hér eru sýnd eru gott dæmi um hvernig má með útsjónarsemi og sköpunarmætti gera margbreytilegan hlut úr tiltölulega fáum stykkjum. Grunneiningin er handblásið gler 40sm að hæð. Utan á og undir glerið má raða einingum af ýmsu tagi sem allar eiga það sameiginlegt að vera framleiddar með hinni nýju tækni. Kaupandinn raðar svo sjálfur saman einingum að eigin smekk og þegar 10 kaupendur hafa raðað saman einingum á sama hátt er ekki hægt að kaupa meira af þeirri samsetningu. Frábær hugmynd því það er margsannað að eigandinn binst sterkustu böndunum við það sem hann hefur verið þátttakandi í að skapa.  Auðvitað er þetta líka flott markaðssetning og það þarf sköpunarmátt til að búa til slíkt konsept.
Í fljótu bragði mætti halda að þar sem aðeins verða seld 10 stykki af hverri samsetningu muni sölumöguleika fljótt þrjóta. En skoðum það nánar. Í lottó með 40 tölum og fimm tölum í útdrætti eru líkurnar á að fá fimm tölur réttar 1 á móti 658.008. Ef sömu reikningsaðferð er beitt og miðað við að hvert ílát sé gert úr fimm af 38 mögulegum hlutum fáum við út að möguleikar á að fá tvo sem eru nákvæmlega eins samsettir eru 1 á móti 501.942!  Það má því selja ansi marga hluti til að fá 10 eins - en ekki gleyma að þetta er spurning um tilviljun og hverju er haldið að viðskiptavininum. Eigi að síður - markaðsetningin er bara tær snilld og ílátin eru gullfalleg í hvaða samsetningu sem valin er.

Fjögur ílát sett saman ú samtals 21 einingu



Og hér eru enn fleiri einingar
Element ílátin og fleiri fallegir og skondnir hlutir fást hjá vitamin.com en þau má einnig fá í völdum verslunum í London. Ílátin kosta frá 1500 sterlingspundum. Já, þau eru dýr en verðið endurspeglar loforðið um að kaupandinn eignist einn af tíu tölusettum hlutum :-)

Við vangaveltur um fjölda samsetninga var stuðst við þessa grein á Vísindavefnum.




Sunday, August 11, 2013

Sirkus Íslands safnar fyrir tjaldi!



Þeir sem voru svo heppnir að sjá sýningu Sirkus Íslands á nýafstaðinni sirkushátíð eru sammála um að það hafi verið einstök upplifun. Sumir halda því jafnvel fram að sýning þetta hafi verið besta sýningin. Vafalaust kemur þetta mörgum á óvart því ekki hefur farið mikið fyrir sirkusnum en tilfellið er að hér er á ferð alvöru sirkus, sem tekur hlutverk sitt alvarlega með ströngum æfingum og mikilli hugkvæmni.

En það vantar sirkustjald! Slíkt tjald er nauðsynlegt svo mögulegt sé að setja upp alvöru sýningar.  Það þarf að koma áhorfendum fyrir og svona sýningar þarfnast mikillar lofthæðar svo hægt sé að sýna alvöru loftfimleika.

Sirkus Íslands safnar nú fyrir alvöru sirkustjaldi sem mun kosta um 40 þúsund evrur. Þeir sem leggja söfnuninni lið fá í staðinn miða á sýningar hjá Sirkusi Íslands árið 2014 í nýja tjaldinu.

Þessi orð eru skrifuð til að hvetja alla til að leggja söfnuninni lið því tilefnið er ærið - alvöru íslenskur sirkus! Kíkið á þessa síðu - þar kemur allt fram sem máli skiptir.

Uppfærsla: Söfnuninni lokið. Henni var afar vel tekið og söfnuðust ríflega 42.000. Við megum því búast við raunverulegum íslenskum sirkus sýningum á næstunni. Frábært!

Saturday, June 1, 2013

Maggie´s endurhæfingastöðvarnar

Maggie's Cancer Caring Centres eru endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðvar fyrir þá sem hafa fengið krabbamein og aðstandendur þeirra. Stöðvarnar eiga upphaf sitt að rekja til hönnuðarins og landslagsarkitektsins Maggie Keswick Jencks, sem gekkst sjálf undir krabbameinsmeðferð og fann hve erfitt er að afla upplýsinga um sjúkdóminn og andlegs stuðnings, sem er mikilvægt fyrir fólk í sem greinst hefur með krabbamein. 
Sýn hennar var að koma upp byggingum á nágrenni sjúkrahúsa þar sem leita mætti upplýsinga og stuðnings hjá fagfólki. Athvarfs þar sem hver sem er getur komið hvenær sem er til að deila með öðrum og skapa sér aðstæður til að lifa lífinu til fulls í vinalegu umhverfi sem ekki minnir á sjúkrastofnun.
Maggí vann hörðum höndum að skipulagningu fyrsta stöðvarinnar sem opnaði í Edinborg árið 1996 - einu ári eftil andlát hennar. Stöðin er staðsett í endurbyggðu hesthúsi og hlöðu frá Viktoríutímabilinu. Hún er hönnuð af vini Maggíar, arkitektinum Richard Murphy, sem hannaði einnig stækkun við hana sem var opnuð 2001.
Sem hönnuður þekkti Maggí hver áhrif umhverfi getur haft á fólk og lagði mikla áherslu á að gott umhverfi væri bæði heilandi og sjálfsögð mannréttindi og hún fékk til liðs við sig færa arkitekta til að tryggja að Maggie´s stöðvarnar þjónuðu þessum þörfum.
Eiginmaður Maggíar, Charles Jencks arkitekt og rithöfundur, hefur síðan haldið uppi merki hennar og fengið heimsfræga arkitekta til liðs við Maggie's stofnunina til að hanna stöðvar á Bretlandi og víðar svo brátt verða þær orðnar 23, allt frá Skotlandi til Hong Kong, og fleirri eru í undirbúningi. Auk þess hafa ýmiss önnur samtök komið á upp stöðvum víða um heim sem starfa í anda Maggie´s .
Um starfsemi Maggie´s Cancer Caring Centre mætti skrifa langa grein en hér er aðalega fjallað um byggingarnar. Á heimasíðu Maggie´s má nálgast meiri upplýsingar um starfsemi stöðvanna og þar er einnig hægt að sækja "A View From the Front Line" frásögn af baráttu Maggíar. Á vef The Guardian er mjög fróðleg grein sem segir í stuttu máli frá baráttukonunni Maggí, samtökunum og byggingarlistinni.
Sennilega hefur hvergi verið safnað saman jafn mörgum stjörnu-arkitektum til að vinna fyrir einn og sama aðilan. Til dæmis er Maggie´s Centre í Fife í Skotlandi fyrsta bygging sem reist er eftir Zaha Hadid á Bretlandi þrátt fyrir að teiknistofa hennar hafi starfað í London í mörg ár og Hadid fyrir löngu öðlast heimsfrægð fyrir verk sín. Í Dundee teiknaði Frank Gehry stöð sem opnaði 2003 og nú er hann að teikna aðra stöð í Hong Kong, í Aberdeen er norska teinistofan Snøhetta að teikna stöð og stöðina í Glasgow hannaði Rem Koolhaas (OMA).  Allt heimsfrægar teiknistofur enda hafa byggingar Maggie´s hlotið fjölda verðlauna fyrir hönnun.  Framhald............

Friday, January 11, 2013

Ókeypis dagatal 2013 með klassískri hönnun

Áður hefur verið sagt frá einstaklega fallegum dagatölum sem hægt er að nálgast á vefsíðu blue ant studio. 
Nú hefur hefur Joel Pirela, sem heldur síðunni úti, gefið út enn eitt dagatal og nú fyrir árið 2013.  Það einfaldara en hin fyrri en eigi að síður mjög fallegt með stílfærðum myndum af mörgum vel þekktum stólum. 
Hægt er að sækja dagatalið hér. Best er að velja "original" stærðina, hún prentast vel á A4 með  spássíu fyrir gorm efst á blaðinu. Myndirnar eru í hreinum litum og prentast fullkomlega úr laser- eða blek prentara.
Fyrri útgáfur má skoða hér: 2010,  2011, 2012, það er vel þess virði
Joel Pirela kemur víða við. Á pireladesign má sjá hnífa sem hann hannar, á blueartstudio eru til sölu fallegar veggmyndir af hönnun sem flestir þekkja (yfirlit hér) og svo skrifar hann um hönnun á blue ant studio og design-milk



Thursday, November 1, 2012

Vagg og velta fyrir börnin


Ruggubíll frá 1950 eftir Hans Brockhage (1925-2009). Hjól á einni hlið,vagg og velta á hinni.

Allir njóta þess að setjast í eitthvað sem vaggar og veltur, sérstaklega börn. Til að uppfylla þessa þörf hafa hönnuðir fundið upp á ótrúlegustu hluti. 
Hér eru nokkur dæmi sem þarfnast ekki skýringa - myndirnar segja meira en orð.
Myndirnar koma víða að, upplýsingarnar um þær eru frá vinstri til hægri.




Ruggubúkki (hestur) - Remodelista
Rockid - Ontwerpduo
Eames ruggustóll - Vitra
Rugguhestur ú endurnýttu efni - StillNovoDesign
La Clinica róla - Ciszak Dalmas


Rugguönd - Florian Hauswirth
 Mokuba rugguhestur - O & M Design
Rugguvespa - Etzy
Rugguhestur - Marc Newson
Ruggustóll/vagga - Scott Morrison



Hér er svo eitthvað fyrir þá sem ekki sætta sig við rugguhest: Ruggukind í mörgum litum.
Útskurðarmeistarinn Povl Kjær smíðar gripinn, sem fæst m.a. í Schiang Living.




Wednesday, August 1, 2012

Stóllinn sem fór til sjós


Snyrtilega er stólnum komið fyrir ásamt öðrum græjum karlanna.
Við erum í gönguferð norður í landi og tökum okkur ferð með bátnum sem trússar farangur hópsins á næsta næturstað. Það reynist svo sannarlega þess virði - á bakborða landið okkar í blíðskaparveðri og á stjórnborða Steypireyður í villtum dansi innan um bátana. Karlarnir blóta henni, hún tekur allan fiskinn. 
Hönnuðurinn, sem er alltaf í vinnunni, rekur augun í stól sem er snyrtilega komið fyrir ásamt öðrum græjum karlanna, þeir tylla sér á hann á meðan beðið er eftir línunni. Þetta er flottur stóll, bogið bak, mjúkt bólstur og vandað áklæði, hann minnir  svolítið á stól Finnska arkitektsins Eero Saarinen frá 1957. Stóllinn er dreginn fram myndaður og skoðaður á alla kanta. 
Þegar heim er komið eru myndirnar bornar undir fróðan mann sem hefur smíðað stóla í áratugi. Hann segir stólinn íslenska smíð, sennilega frá Stálhúsgögnum, og nefnir tvo möguleika og einn til vara - stóllinn er annaðhvort úr Klúbbnum sáluga, sem varð eldi að bráð, eða úr Loftleiðahótelinu sem nú heitir Natura eða (til vara) úr Sjallanum. Hann er að vinna í málinu og niðurstaðan birtist hér þegar hún liggur fyrir.
Þessi stóll má muna tímana tvenna. Hann hefur prýtt fínustu veitingahús landsins, beðið síðan eftir nýju og verðugu hlutverki og nú er hann kominn til sjós - í trillubransan. Og hvað er betra en að flytja Norður og eyða ævikvöldinu við veiðar í góðum félagsskap?


Systir blá stólsins er fundin.
Hún fæddist árið 1966

19.oktober 2012.
Í dag kom ég auga á þennan rauða stól inni á verkstæðinu hjá GÁ Húsgögn í Ármúlanum. Þarna er komið annað eintak af stólnum sem fjallað er um hér að ofan og ég forvitnast um það hjá Grétari bólstrara hvaðan stóllinn sé. Hann segir stólinn vera úr Hótel Loftleiðir sem nú heitir Natura. 
Hótel Loftleiðir tók til starfa árið 1966, væntanlega hefur stóllinn verið í Blómasalnum svokallaða, hann er því 46 ára gamall. Ekki veit ég hvert stóllinn á bólsturverkstæðinu á að fara en það sannast eitt sinn en sem oft er haldið fram hér á síðunni - á milli "gamalt" og "ónýtt" er ekki samasem merki.

Þessi staður er ólíkur skemmtanabransanum - enn skemmtilegur eigi að síður
Hver skyldi nú ævisaga hans vera
__________________________________________________
Stóll með reynslu í skemmtanabransanum 
óskar eftir plássi á góðum krókabát. 
Visamlega hafið samband við Góða hirðinn.
__________________________________________________



Monday, July 30, 2012

Make It Happen á Egilssöðum

Ég spái því að Make It Happen, ráðstefnan sem haldin verður á Egilsstöðum 25-28 September, verði skemmtileg. Það er þvert á þá þá ályktun sem draga má af ótrúlega hástemmdri kynningu á vef Hönnunarmiðstöðvar - skapandi samfélag og verkferlar, menningarverkefni á jaðarsvæðum, innleiðing skapandi hugsunar - svona hágali er yfirleitt garantí fyrir leiðindum.
Endanleg dagskrá ekki tilbúin ennþá en í drögum að henni má sjá að á Make It Happen skiptast á fyrirlestrar, rútu- og skoðunarferðir og skemmtun í hæfilegum hlutföllum í þrjá daga. Þetta gæti orðið skemmtilegasta hönnunar-ráðstefna Íslands.
Flott framtak!

Make It Happen: http://make.is/makeithappen/
Þorpið:              http://make.is/



Tuesday, June 26, 2012

Fjölhæfir blaðsneplar

Árið 1968 bjó apótekari nokkur til lím sem sem hægt var að nota aftur og aftur. Hann kynnti límið á ýmsan hátt, m.a. fyrir risa-fyrirtækinu 3M sem sýndi því lítinn áhuga. Starfsbróðir apótekarans, sem hafði sótt eina af kynningum hans, fékk þá hugmynd að setja límið á blaðsnepla sem hann notaði sem bókamerki í sálmabókina sína. Hann hafði síðar samband við 3M sem tók þátt í að þróa hugmyndina áfram. Upphafsmaður hugmyndarinnar fékk því aldrei neitt í sinn hlut fyrir hana. Ljótt er að heyra - og meira að segja sálmabók með í plottinu! - en svona gengur þetta stundum fyrir sig, jafnvel hjá fyrirtækjum sem þykjast vönd að virðingu sinni.  Post-it var markaðssett árið 1977 og sigurgangan var hafin. 


Post- it er notað til ótrúlegustu hluta



Sunday, June 17, 2012

Listasmiðja í Mílanó - Kossaflens


Kossaflens "Filematologia" í Fabbrica del Vapore, Apríl 2012
Karl og kona sitja á Panton stólum og eru að gera hvað? Verkið nefnist "Filematologia" en það munu vera vísindi sem fjalla um  kossa frá sjónarmiði líffræðinnar. Hér er stuttur texti sem skýrir innihald verksins. Þeir sem vilja sökkva sér í líffræði kossa geta skoðað krækjurnar hér að neðan :-)
Verkið var á samsýningu ungra hönnuða í Fabbrica del Vapore, gamalli verksmiðju sem  framleiddi sporvagna,  í Mílanó. Húsakosti verksmiðjunnar hefur nú verið breytt í listasmiðju fyrir unga listamenn - listasetur æskunnar - með góðri vinnuaðstöðu og  sýningarsvæði. Reglulaega er boðið til viðburða sem sýna þann gríðarlega sköpunarkraft sem leysist úr læðingi þegar ungu fólki er sköpuð viðunandi aðstaða til að vinna að hugðarefnum sínum.
Nokkur áhugaverð verkefni frá   verða sýndar hér á síðunni á næstunni. Á þessu myndbandi sést sýningarsvæðið og Alessandro Mendini segir frá verkefninu, mjög áhugavert jafnvel þó maður skilji ekki Ítölsku.
Hér er annað verkefni frá Fabbrica del Vapore.

Hann og hún sitja á "Hennar stól og Hans stól" og gera sig klár í kossinn.

Romeo of Júlía - Rómantískasti koss allra tíma?
Verk: Enski málarinn Frank Bernard Dikcksee
Blákaldar staðreyndir um kossa:

Pilemathology Made Easy 



Monday, May 21, 2012

Lífræn list





Port Salut upp á sitt besta

Einu sinni deildi ég vinnustofu með vinkonu minni sem gerir allt að list - sama hvað er. Eitt af áhugamálum hennar á þessum tíma var að fylgjast með allskonar lífrænum hlutum þroskast . Tilraunirnar voru gerðar í sameiginlegri kaffistofu 10 eða 12 listamanna sem sýndu þessu mikið umburðarlyndi. Lífræn list er nefnilega síbreytileg, höfðar til allra skynfæra okkar og krefst mikillar þolinmæði - ekki síst þolinmæði áhorfandans Tökum dæmi:  Þroskaferli Port Salut osts sem stendur út í glugga í marga daga - bragð, lykt, ásýnd og þroskaskeið  - mikið sjónarspil en á köflum næstum því óbærilegt, sérstaklega lyktin! Egg, ávextir, melóna sem sprakk í loft upp í orðsins fyllstu merkingu, það var allt prófað. 
Mér varð hugsað til þessa tíma þegar ég sá þessa banana með myndverkum sem þroskast með þeim og hverfa að lokum.  Aðferðinni svipar til koparstungu og það er einmitt eitt af því sem vinkona mín fæst við. Höfundur bananaverksins, Phil Hansen,  líkir aðferðinni, hinsvegar, við húðflúr - hýðisflúr? - sem á vel við í þessu tilfelli. Hann fæst einnig við fleira sem skoða má og sækja á vefsíðuna philinthewhaaat.com 
Tattóveraðir bananar

Via: designboom.com

Tuesday, March 27, 2012

Skondnar merkingar

Umhverfismerkingar eru mikil list. Fæstir leiða hugan að því hve þróað þetta táknmál er, vanhagi þá um eitthvað er næsta víst að einhversstaðar sé merki til leiðbeiningar. Stundum eru þessar leiðbeiningar svolítið skondnar, til gamans eru hér nokkur dæmi.

Hvað skyldi hún tákna þessi merking í Hörpu? Gæti það t.d. verið "Nei, það ekki hér, snúðu við"?

Skátarnir við Úlfljótsvatn hafa leyst þetta á einfaldan hátt, eins og þeim einum er lagið.

Mundir þú kaupa bíl hjá þessu umboði við Elliðaárvog?
Reynsluaksturinn lofar ekki góðu.

Munið að slíðra vopnin á meðan dælt er hjá Atlantsolíu!

Á hóteli nokkru er neyðardyrum lokað með borði og miði límdur á hurðina þessu til staðfestingar. Skyldi samt einhverjum detta í hug að nota þessa hurð, t.d. ef hótelið stæði í ljósum logum, tekur ekki betra við því fyrir utan eru rúmir 40 sm niður á jörð og engar tröppur. 
Ég tók mér bessaleyfi og lagfærði texta miðans.



Thursday, February 9, 2012

Reykjavík 1770-1872

Reykjavík í 102 ár 
 1770-1872
Bókin "Reykjavík fyrr og nú" var gefin út af Ísafoldarprentsmiðju í samvinnu við Reykvíkingafélagið, árið 1948. Vilhjálmur Þ. Gíslason ritar formála um vöxt bæjarins, sem er bæði fræðandi og skemmtileg lesning. Í bókinni eru 188 myndir, málaðar, teikningar og ljósmyndir, sem gefa góða mynd af mannlífi og þróun bæjarins sem nú er höfuðborg Íslands. 
Þessar myndir úr bókinni  sýna þróun bæjarins frá 1770 til 1872. Þær eru flestar úr safni Dr. Jóns Helgasonar Biskups. 
Til að gera sér grein fyrir stærð bæjarins má hafa í huga að árið 1703 eru íbúar 111, árið 1801 eru þeir 600 og árið 1901 eru þeir 6,321. Íbúar Reykjavíkur voru rúmlega 119,000 árið 2011 og á höfuðborgarsvæðinu öllu voru þeir um 202,000.

Reykjavík 1770
Reykjavík 1790

Reykjavík 1809
Reykjavík 1820

Reykjavík 1836
Reykjavík 1872

Friday, February 3, 2012

Kertastjakar úr steypujárni




Kertastjakarnir "Heima" eru úr steypujárni sem verður að teljast frekar óvenjulegt efni í kertastjaka nú til dags. Þeir eru þungir, kaldir og grófir og eiga að minna á gamalt norrænt handverk. Stjakarnir hafa hlotið nokkrar viðurkenningar m.a. IF verðlaun árið 2010.
Hönnuður "Heima" kertastjakana er Francis Cayouette.