Showing posts with label Textil. Show all posts
Showing posts with label Textil. Show all posts

Sunday, May 15, 2011

Hattar Hennar Hátignar

Elísabet II í gulu við hið konunglega brúðkaup. Silkiblóm á hattinum.
Þar sem Elísabet II Englandsdrottning  er - þar er fallegur hattur. Svona er þetta allanvegan í mínum huga og trúlega verður fleirum hugsað til hatta og Elísabetar II í sömu andrá. Þannig hefur þetta verið alla tíð. Drottningin er óvanalega djörf í litavali. Þegar ég hugsa til þjóðhöfðingja vestrænna landa sé ég fyrir mér hvítt, svart og blátt - birtu, myrkur, himin og haf. Elísabet II klæðist hinsvegar yfirleitt einhverjum af grunnlitunum - skærrautt, himinblátt, páskagult og jafnvel fjólublátt -  og gengur með flotta hatta. Auðvitað eru skiptar meiningar um smekkvísi hennar hátignar, sumir segja hana fremur lummó en aðrir benda á að hún leggi sig fram um að klæðast í stíl millistéttarinnar. Ég safnaði 38 myndum af henni við ýmiss tækifæri með 36 hatta og setti þær á Facebook síðuna svona rétt til að sjá úrvalið og gera upp hug minn. Myndirnar eru hér.
Myndirnar sem hér fylgja eru frá brúðkaupinu 29. apríl síðastliðinn. Drottningin klæddist skærgulu og gulum barðastórum hatti með samlitri skreytingu úr silki. Hanskarnir eru hvítir og skórnir samlitir veskinu.
Elísabet fæddist 21. apríl 1926. Við tign Englandsdrottningar tók hún 2. júní 1953 og er þjóðhöfðingi 125 miljón manna.

Elísabet II og Filippus prins skunda til brúðkaups.
 Flottir litir þarna saman komnir.
Drottning í gulu og Prins í svörtu.

Fleiri flottir hattar eru hér!
Myndirnar eru frá Let's Colour Project
.
.

Tuesday, February 22, 2011

Einskonar húsgögn Raw Collection

Gert úr tré og ullar renningum,  líkist húsgagni - en getur auðveldlega verið eitthvað allt annað.
Coiling Collection, sem hér er sýnd, er gerð úr ullar ræmum og viði. Ullin er vafin utan um viðinn og síðan vætt með plastkvoðu til að festa hana saman og halda forminu. Á þennan hátt eru gerðir hlutir sem líkjast kollum, pullum og ábreiðum. Hönnuðirnir Yael Mer & Shay Alkalay,  sem standa að Raw Edges vinnustofunni í London, búa sjálf til hlutina. Þau fást við tilraunir í formsköpun sem þau segja vera einhvers staðar milli iðnhönnunar og sjónlistar. Þau hafa hlotið viðurkenningar fyrir mörg verkefni og það eru áhugaverðir hlutir á vefsíðunni þeirra. Ég bendi sérstaklega á pappírstré sem kallast "Revolving Trees".

Hönnuðirnir framleiða hlutina og segja þá flokkast einhvers staðar á milli iðnhönnunar og sjónlistar.

Wednesday, February 9, 2011

Tyrknesk teppi endurunnin með skærum litum

Gölluð og slitin teppi eru aflituð og síðan lituð aftur með skærum náttúrulitum.
Handofin teppi eru ekki alltaf fullkomin, vefnaðurinn getur mistekist og þá fær vefarinn lítið eða ekkert fyrir vinnu sína.  ABC Carpets, sem selur teppi frá Tyrklandi, Indlandi og Pakistan,  ákvað að reyna að gera verðmæti úr þessum teppum með því að aflita þau og lita síðan með náttúrulitum. Tilraunin tókst vel og nú rokseljast lituðu teppin. Aðferðinni, sem nefnd er "Color Reform," er einnig beitt á gömul slitin teppi og vefnað sem annars hefði verið verðlaus.
Þetta er birt hér m.a. vegna þess hve myndirnar eru fallegar - hér má skoða þær í fullri stærð.


Maija Isola: Unikka tauþrykk fyrir Marimekko

Unikka tauþrykk, sennilega þekktasta mynstur tuttugustu aldarinnar. 


Listakonan Maija Isola.


Þegar eigandi Marimekko, Armi Ratia, tilkynnti að blómamynstur yrðu ekki framleidd hjá fyrirtækinu mótmælti listakonan Maija Isola (1927-2001) með því að hanna blómamynstrið Unikka. Mynstrið var byggt á blómum draumsóleyjar, óvenjulega stórgert, í skærum litum og tilkomumikið. Armi stóðst ekki mátið og keypti mynstrið ásamt nokkrum öðrum sem Maija hafði hannað í sama stíl. Mynstrið var fyrst þrykkt árið 1964 og varð þegar einskonar vörumerki fyrir Marimekko, í dag er það sennilega eitt þekktasta tauþrykk sem gert hefur veriði. Maija Isola starfaði hjá Marimekko í 38 ár og hannaði yfir 500 mynstur, hún var ennfremur virk listakona á öðrum sviðum og eftir hana liggur fjöldi annara verka.

Nokkur tauþrykk sem Maija Isola hannaði.
Lovelovelove 1969   •   Lokki 1961   •   Silkkikuikka 1951   •    Käspaikka 1959   •   Kaivo 1951
Musta Lammas 1957  •  
Husarri 1967  •  Albatross 1967  •  Himmeli 1957  •  Tiikerinlilja 1967

 Maija Isola á finnish design.com      •     Heimasíða Marimekko: marimekko.com

Tuesday, January 25, 2011

Bíll, klútur og stólar, allt í stíl

• Klútur í stíl •

Ég þori ekki að sverja fyrir það, en það er mjög líklegt að liturinn á bílnum, klúturinn og áklæði stólana séu eftir sama hönnuðinn.  Hann heitir Cristian Zuzunaga, er frá Barcelona og stundaði nám í London. Hann vinnur efnin sín með því að taka nærmyndir af hlutum bygginga og vinna svo með myndirnar í mikilli stækkun þannig að hver pixill er greinilegur. Þannig verður til mynstur sem hann segir þó aðeins vera hluta af mikið stærri heild sem sé byggingin öll.
Það getur varla verið neitt flottara en að þeysa um á Mini með blakandi klút í stíl við stólana heima. Best væri að hafa pláss fyrir bílinn í stofunni.

• Mini í stíl •


• Stólar í stíl •

Saturday, January 22, 2011

Hattar og höfuðdjásn

• Hluti af: Sumar 2008 "Desert Rose" •

Diana prinsessa og Rolling Stones áttu það sameiginlegt að ganga með hatta frá  Stephen Jones. Hann er einn af áhrifamestu hötturum heimsins og vinnur með öllum helstu tískuhúsunum og fólki sem eitthvað má sín í bransanum. 
Mér skilst að allir sem eitthvað vita um tísku eigi að þekkja Stephen Jones. Þetta á ekki við um mig, ég veit lítið um hatta, svo ég læt duga að gefa upp vefsíðuna hans þar sem sjá má fullt af flottum höttum og finna áhugaverðar upplýsingar. Eitt veit ég þó; þessir hattar eru heillandi hönnun, algjört augnayndi. 
Hvers vegna gengur fólk ekki lengur með hatt? Hattur gefur afar persónuleg skilaboð um þann sem hann ber og þeim fylgja allskonar skemmtilegir siðir svo sem og að taka ofan eða heilsa einhverjum með því að bera hönd að hattbarðinu.

• Hlutar af: Shangri-la 2007 (efri röð), Sumar 2010 (neðri röð) •  

• Hluti af "Covent Garden" 2008 •
• Brúðarhattar / slör •

Vefsíða Stephen Jones  •  Stephen Jones í Wikipedia




Monday, December 27, 2010

WOKmedia

WOKmedia er stofnað 2004 af hönnuðunum Julie Mathias and Wolfgang Kaeppner. Þau vinna í London en reka útibú í Shanghai.
WOKmedia fæst bæði við hönnun og innsetningar. Þau hafa tekið þátt í mörgum alþjóðlegum sýningum  og eru verk þeirra á mörgum söfnum. Það verður áhugavert að fylgjast með þeim áfram.
Hér eru sýnd nokkur dæmi um verk WOKmedia en þau komu einnig við sögu hér.

• Between Lines • Hönnun / Design: WOKmedia
Between Lines, sem er 2.7 metrar á lengd, er gert úr stáli sem skorið er með lasergeisla og síðan húðað með svörtu gúmmíi. Hægt er að vefja því upp svo lítið fari fyrir því eða festa það upp á margvíslegan hátt með skrúfum. Hönnuðirnir telja það verkinu til ágætis að það safni ekki ryki eins og dæmigerðar bókahillur.



• Once hlutir úr matprjónum • Hönnun / Design: WOKmedia
Once er gert úr matprjónum (chopsticks) sem "prjónaðir" eru saman til að móta hluti án þess að nota nokkur önnur efni t.d. lím. Nafnið "Once" stendur fyrir "einnota" og vilja hönnuðirnir með þessu fá fólk til að endurmeta neysluvenjur sínar. Hver hlutur er gerður í tuttugu eintökum. Once hefur fengið fjölda viðurkenninga og er m.a. sýnt söfnum í Bandaríkjunum og Hollandi.



 •Precious bursti • Hönnun / Design: WOKmedia
 Ætli rykmaurum finnist þeir hafi mætt ofjarli, eða örlögum, sínum þegar þeir mæta Precious!