Ljósmyndasyrpa Ellie Davies heitir "Come With Me”. Það er réttnefni því myndirnar kalla til áhorfandans, vekja forvitni og löngun til að fylgja slóða gerðum úr allskonar efnum, sum hver sem eru framandi í skógarsverðinum - blár litur, hvítt duft og ull.
Ljósmyndir Ellie Davies segja gjarnan sögu sem áhorfendur verða sjálfir að botna, hver fyrir sig. Ýmislegt kemur á óvart, hlutir í framandi umhverfi, undarleg birta og óvanalegar aðstæður.
Á vefsíðu Ellie Davies eru fleiri áhugaverðar myndasyrpur, hún er á Facebook og fróðlegt er að skoða Flikr síðuna hennar, þar sést þróun ljósmynda hennar í nokkur ár.
Via houhouhaha.fr
No comments:
Post a Comment
Gaman væri að heyra frá þér. Skrifaðu ummæli hér.